Umsókn um styrk úr Menningar- og viðurkenningarsjóði

Málsnúmer 202602059

Vakta málsnúmer

Menningarráð - 113. fundur - 27.02.2026

Tekin fyrir umsókn frá Kvenfélaginu Tilraun. Þau sækja um 6.500.000 kr. styrk í viðhald á Tunguseli sem er við Tungurétt í Svarfaðardal, hús sem er notað meðal annars fyrir kaffisölu og salernisskúr.
Menningarráð hafnar erindinu með þremur atkvæðum þar sem að upphæð er of há fyrir sjóðinn og vísar málinu inn í Byggðaráð þar sem að Menningarráð telur verkefnið þarft.

Byggðaráð - 1177. fundur - 12.03.2026

Á 113. fundi menningarráðs þann 27. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekin fyrir umsókn frá Kvenfélaginu Tilraun. Þau sækja um 6.500.000 kr. styrk í viðhald á Tunguseli sem er við Tungurétt í Svarfaðardal, hús sem er notað meðal annars fyrir kaffisölu og salernisskúr.
Niðurstaða : Menningarráð hafnar erindinu með þremur atkvæðum þar sem að upphæð er of há fyrir sjóðinn og vísar málinu inn í Byggðaráð þar sem að Menningarráð telur verkefnið þarft."
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hafna ofangreindu erindi.
Byggðaráð bendir Kvenfélaginu Tilraun á að árlega auglýsir sveitarfélagið eftir erindum frá íbúum og félagasamtökum vegna vinnu við fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar. Umsóknarfrestur verður líklega um miðjan ágúst 2026 vegna fjárhagsáætlunar 2027 og þriggja ára áætlunar 2028-2030.

Sveitarstjórn - 388. fundur - 17.03.2026

Á 1177. fundi byggðaráðs þann 12. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Á 113. fundi menningarráðs þann 27. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
Tekin fyrir umsókn frá Kvenfélaginu Tilraun. Þau sækja um 6.500.000 kr. styrk í viðhald á Tunguseli sem er við Tungurétt í Svarfaðardal, hús sem er notað meðal annars fyrir kaffisölu og salernisskúr.
Niðurstaða : Menningarráð hafnar erindinu með þremur atkvæðum þar sem að upphæð er of há fyrir sjóðinn og vísar málinu inn í Byggðaráð þar sem að Menningarráð telur verkefnið þarft.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hafna ofangreindu erindi.
Byggðaráð bendir Kvenfélaginu Tilraun á að árlega auglýsir sveitarfélagið eftir erindum frá íbúum og félagasamtökum vegna vinnu við fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar. Umsóknarfrestur verður líklega um miðjan ágúst 2026 vegna fjárhagsáætlunar 2027 og þriggja ára áætlunar 2028-2030."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og hafnar erindinu.