Á 45. fundi skipulagsráðs þann 11. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Kynningu tillögu á vinnslustigi að deiliskipulagi fyrir iðnaðarsvæði í landi Ytri Haga lauk þann 10.febrúar sl. Engar athugasemdir bárust.
Umsagnir bárust frá Vegagerðinni, Landsneti, Minjastofnun Íslands, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, Rarik, Náttúruverndarstofnun, veitum Dalvíkurbyggðar og Mílu.
Niðurstaða : Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki að framlögð tillaga að deiliskipulagi fyrir athafnasvæði í landi Ytri Haga verði auglýst skv. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með lagfæringum til samræmis við umsögn
Vegagerðarinnar.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.