Frá Slysavarnardeildinni Dalvík; Styrktarbeiðni

Málsnúmer 202603062

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1177. fundur - 12.03.2026

Tekið fyrir erindi frá Slysavarnardeildinni Dalvík, dagsett þann 6. mars 2026, þar sem óskað er eftir styrk frá Dalvíkurbyggð að upphæð kr. 220.000 - 250.000 þar sem fyrirhugað er að fá veltibíl frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg á Sjómannadaginn 7. júní nk. og hafa hann við safnaðarheimilið á meðan Sjómannadagskaffið er haldið.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hafna erindinu.
Byggðaráð bendir Slysavarnarfélaginu á að árlega er auglýst eftir erindum frá íbúum og félagasamtökum við gerð fjárhagsáætlunar Dalvíkurbyggðar. Umsóknarfrestur verður líklega um miðjan ágúst 2026 vegna fjárhagsáætlunar 2027 og þriggja ára áætlunar 2028-2030.

Sveitarstjórn - 388. fundur - 17.03.2026

Á 1177. fundi byggðaráðs þann 12. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Slysavarnardeildinni Dalvík, dagsett þann 6. mars 2026, þar sem óskað er eftir styrk frá Dalvíkurbyggð að upphæð kr. 220.000 - 250.000 þar sem fyrirhugað er að fá veltibíl frá Slysavarnarfélaginu
Landsbjörg á Sjómannadaginn 7. júní nk. og hafa hann við safnaðarheimilið á meðan Sjómannadagskaffið er haldið.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hafna erindinu.
Byggðaráð bendir Slysavarnarfélaginu á að árlega er auglýst eftir erindum frá íbúum og félagasamtökum við gerð fjárhagsáætlunar Dalvíkurbyggðar. Umsóknarfrestur verður líklega um miðjan ágúst 2026 vegna fjárhagsáætlunar 2027 og þriggja ára áætlunar 2028-2030."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og hafnar erindinu.