Á 45. fundi skipulagsráðs þann 11. mars 2026 var eftirfarandi bókað:
"Á fundi sveitarstjórnar þann 15.apríl 2025 var samþykkt að gerð yrði breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008- 2020 vegna áforma um uppbygginu í tengslum við Bjórböðin (Ægisgötu 31) á Árskógssandi. Þá var jafnframt samþykkt að lóðum nr. 29 við Ægisgötu og 26 við Öldugötu yrði úthlutað til lóðarhafa Ægisgötu 31 án undangenginnar auglýsingar að loknum skipulagsbreytingum.
Nú er lögð fram skipulagslýsing fyrir deiliskipulag svæðisins, unnin af Snæ arkitektum og ASK arkitektum. í lýsingunni er gerð grein fyrir fyrirhugaðri uppbyggingu á svæðinu, sem felur m.a. í sér að framkvæmdasvæði kemur til með að ná yfir hluta af lóð nr. 37 við Öldugötu og óbyggt land Dalvíkurbyggðar, til viðbótar við lóðir nr. 29 við Ægisgötu og 26 við Öldugötu.
Niðurstaða : Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða skipulagslýsingu og að lýsingin verði kynnt skv. 3.mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt leggur skipulagsráð til við sveitarstjórn að hún samþykki að lóð nr. 37 við Öldugötu verði úthlutað til umsækjanda án undangenginnar auglýsingar, ásamt óútvísuðu landi Dalvíkurbyggðar skv. framlögðum gögnum, að loknum skipulagsbreytingum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.