Gull- silfur- og bronsmerki Dalvíkurbyggðar fyrir starf í þágu íþrótta

Málsnúmer 202601078

Vakta málsnúmer

Íþrótta- og æskulýðsráð - 184. fundur - 03.02.2026

Íþróttafulltrúi leggur til að tekið verði upp kerfi, líkt og þekkist víða, til að heiðra fólk innan íþróttahreyfingarinnar í Dalvíkurbyggð.
Íþrótta- og æskulýðsráð felur íþróttafulltrúa að vinna að nánari útlistun reglna um heiðursmerki fyrir starf í þágu íþrótta í sveitarfélaginu.

Íþrótta- og æskulýðsráð - 185. fundur - 03.03.2026

Íþróttafulltrúi leggur til upptöku á heiðursviðurkenningum fyrir störf í þágu íþrótta á vegum sveitarfélagsins.
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir með fjórum atkvæðum gull-, silfur- og bronsmerki Dalvíkurbyggðar í þágu íþrótta í sveitarfélaginu.

Sveitarstjórn - 388. fundur - 17.03.2026

Á 185. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 3. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Íþróttafulltrúi leggur til upptöku á heiðursviðurkenningum fyrir störf í þágu íþrótta á vegum sveitarfélagsins.
Niðurstaða : Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir með fjórum atkvæðum gull-, silfur- og bronsmerki Dalvíkurbyggðar í þágu íþrótta í sveitarfélaginu."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu íþrótta- og æskulýðsráðs og fyrirliggjandi tillögu að reglum um heiðursviðurkenningar fyrir störf í þágu íþróttahreyfingarinnar í Dalvíkurbyggð.