Útboð á snjómokstri og hálkuvörnum 2026-2029

Málsnúmer 202602141

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og dreifbýlisráð - 41. fundur - 13.03.2026

Fyrir fundinum lá minnisblað Deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar þar sem farið var yfir stöðu á útboði snjómoksturs og hálkuvarna 2026-2029. Búið er að semja við ráðgjafa vegna vinnu við útboðið og stefnt á auglýsingu í apríl.
Umhverfis- og dreifbýlisráð samþykkir framlagða tillögu deildarstjóra um að útboð snjómoksturs og hálkuvarna verði tvískipt, þannig að þjónustan fyrir Dalvík verði boðin út sérstaklega og þjónustan fyrir Árskógssand og Hauganes hins vegar. Þetta fyrirkomulag hefur verið á þjónustunni undanfarin ár og gefist vel.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

Sveitarstjórn - 388. fundur - 17.03.2026

Á 41. fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 13. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Fyrir fundinum lá minnisblað Deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar þar sem farið var yfir stöðu á útboði snjómoksturs og hálkuvarna 2026-2029. Búið er að semja við ráðgjafa vegna vinnu við útboðið og stefnt á auglýsingu í apríl.
Niðurstaða : Umhverfis- og dreifbýlisráð samþykkir framlagða tillögu deildarstjóra um að útboð snjómoksturs og hálkuvarna verði tvískipt, þannig að þjónustan fyrir Dalvík verði boðin út sérstaklega og þjónustan fyrir Árskógssand og Hauganes
hins vegar. Þetta fyrirkomulag hefur verið á þjónustunni undanfarin ár og gefist vel.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu umhverfis- og dreifbýlisráðs og samþykkir að útboð snjómoksturs og hálkuvarna verði tvískipt, þannig að þjónustan fyrir Dalvík verði boðin út sérstaklega og þjónustan fyrir Árskógssand og Hauganes
hins vegar. Snjómokstur og hálkuvarnir í framdölum Svarfaðar- og Skíðadals verði áfram utan útboðs og sama verklag verði áfram viðhaft - þ.e. að sveitarfélagið gangi inn í samning Vegagerðarinnar.