Ákvörðun um kjördeildir og kjörstaði v. sveitarstjórnarkosninga 2026

Málsnúmer 202603082

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 388. fundur - 17.03.2026

Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdi eftirfarandi tillaga:
Ákvörðun sveitarstjórnar um fjölda kjördeilda og kjörstaði vegna sveitarstjórnarkosninga þann 16. maí nk., sbr. 11. gr. III. kafla kosningalaga nr. 112 frá 25. júní 2021 og sbr. 78 gr. XIII. kafla sömu laga, með síðari breytingum.
Sbr. 11. og 78. gr. kosningalaga nr. 112 frá 25. júní 2021 með síðari breytingum samþykkir sveitarstjórn eina kjördeild í Dalvíkurbyggð og verður hún í Dalvíkurskóla, líkt og verið hefur undanfarnar kosningar.
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu um eina kjördeild í Dalvíkurbyggð og að hún verði í Dalvíkurskóla vegna kosninga til sveitarstjórnar 16. mai nk.