Hluthafafundur í Greiðri leið ehf.

Málsnúmer 202602106

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1176. fundur - 26.02.2026

Tekinn fyrir rafpóstur frá Greiðri leið ehf., dagsettur þann 18. febrúar sl, þar sem boðað er til hluthafafundar 27. febrúar nl. kl. 13.00 í gegnum TEAMS.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að sitja fundinn fyrir hönd Dalvíkurbyggðar.

Sveitarstjórn - 388. fundur - 17.03.2026

Á 1176. fundi byggðaráðs þann 26. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekinn fyrir rafpóstur frá Greiðri leið ehf., dagsettur þann 18. febrúar sl, þar sem boðað er til hluthafafundar 27. febrúar nl. kl. 13.00 í gegnum TEAMS.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að sitja fundinn fyrir hönd Dalvíkurbyggðar."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs um að fela sveitarstjóra að sitja fund Greiðrar leiðar ehf. þann 27. febrúar sl.