Frá Leigufélaginu Bríet ehf.; Hluthafafundur Leigufélagsins Bríetar ehf

Málsnúmer 202603008

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1177. fundur - 12.03.2026

Sveitarstjóri gerði grein fyrir hlutahafafundi Leigufélagsins Bríet ehf. sem hún sat fyrir hönd Dalvíkurbyggðar fimmtudaginn 5. mars sl. Til umfjöllunar staðfesting skipting hlutafjár skv. skiptingaráætun sem hefur verið birt í Lögbirtingarblaðinu vegna Leigufélags Grindavíkur ehf.


Með fundarboði fylgdi m.a.:
Uppfærð Samþykkt fyrir Leigufélagið Bríet ehf.
Skiptingaráætlun dagsett 30.06.2025 og stofnun Leigufélags Grindavíkur ehf.
Fundargerð Leigufélagsins Bríet ehf. frá 05.03.2026.

Í fundargerð kemur m.a. fram að eftir umræður var skipting Leigufélagsins Bríetar ehf. og stofnun Leigufélags Grindavíkur ehf.
borin undir fundarmenn og voru þau staðfest með öllum atkvæðum

Samkvæmt skiptingaráætlun er hlutdeild Dalvíkurbyggðar í félaginu 2,96%,
Byggðaráð gerir ekki athugaemdir við meðfylgjandi og ofangreind gögn.

Sveitarstjórn - 388. fundur - 17.03.2026

Á 1177. fundi byggðaráðs þann 12. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Sveitarstjóri gerði grein fyrir hlutahafafundi Leigufélagsins Bríet ehf. sem hún sat fyrir hönd Dalvíkurbyggðar fimmtudaginn 5. mars sl. Til umfjöllunar staðfesting skipting hlutafjár skv. skiptingaráætun sem hefur verið birt í Lögbirtingarblaðinu vegna Leigufélags Grindavíkur ehf.
Með fundarboði fylgdi m.a.:
Uppfærð Samþykkt fyrir Leigufélagið Bríet ehf.
Skiptingaráætlun dagsett 30.06.2025 og stofnun Leigufélags Grindavíkur ehf.
Fundargerð Leigufélagsins Bríet ehf. frá 05.03.2026.
Í fundargerð kemur m.a. fram að eftir umræður var skipting Leigufélagsins Bríetar ehf. og stofnun Leigufélags Grindavíkur ehf. borin undir fundarmenn og voru þau staðfest með öllum atkvæðum
Samkvæmt skiptingaráætlun er hlutdeild Dalvíkurbyggðar í félaginu 2,96%,
Niðurstaða : Byggðaráð gerir ekki athugaemdir við meðfylgjandi og ofangreind gögn."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og gerir ekki athugasemdir við meðfylgjandi gögn.