Ósk um framlengingu á verksamningi um hádegisverð í leik - og grunnskóla skólaárið 2026 - 2027

Málsnúmer 202603027

Vakta málsnúmer

Fræðsluráð - 314. fundur - 11.03.2026

Tekið fyrir minnisblað frá Sviðsstjóra fræðslu - og menningarsviðs dags. 04.03.2026
Fræðsluráð gerir ekki athugasemd við minnisblað og vísar málinu inn í Byggðaráð Dalvíkurbyggðar.

Byggðaráð - 1177. fundur - 12.03.2026

Helgi Einarsson vék af fundi undir þessum lið vegna vanhæfis kl. 14:39 og varaformaður, Freyr Antonsson tók við fundarstjórn.


Á 314. fundi fræðsluráðs þann 11. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir minnisblað frá Sviðsstjóra fræðslu - og menningarsviðs dags. 04.03.2026
Niðurstaða : Fræðsluráð gerir ekki athugasemd við minnisblað og vísar málinu inn í Byggðaráð Dalvíkurbyggðar."

Gísli vék af fundi kl. 14:41.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu fræðsluráðs um að nýta seinni heimild til að framlengja samningi við Blágrýti ehf. um eitt ár vegna skólamáltíða í leiks- og grunnskólum Dalvíkurbyggðar. Viðbótarsamningur sem gerður var við Leikskólann Krílakot fellur þar undir, þ.e. eitt skólaár 2026-2027.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn - 388. fundur - 17.03.2026

Á 1177. fundi byggðaráðs þann 12. mars sl. var eftirfarandi bókað:
H"elgi Einarsson vék af fundi undir þessum lið vegna vanhæfis kl. 14:39 og varaformaður, Freyr Antonsson tók við fundarstjórn.
Á 314. fundi fræðsluráðs þann 11. mars sl. var eftirfarandi bókað:
Tekið fyrir minnisblað frá Sviðsstjóra fræðslu - og menningarsviðs dags. 04.03.2026
Niðurstaða : Fræðsluráð gerir ekki athugasemd við minnisblað og vísar málinu inn í Byggðaráð Dalvíkurbyggðar.
Gísli vék af fundi kl. 14:41.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu fræðsluráðs um að nýta seinni heimild til að framlengja samningi við Blágrýti ehf. um eitt ár vegna skólamáltíða í leiks- og grunnskólum Dalvíkurbyggðar.
Viðbótarsamningur sem gerður var við Leikskólann Krílakot fellur þar undir, þ.e. eitt skólaár 2026-2027.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Til máls tók:

Helgi Einarsson, sem gerði grein fyrir vanhæfi sínum hvað þennan lið varðar og vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu kl. 16:32.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og framlengingu á samningi við Blágrýti ehf. um eitt ár. Helgi Einarsson tekur ekki þátt í umfjöllun og afgreiðslu vegna vanhæfis.