Á 1177. fundi byggðaráðs þann 12. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Á 113. fundi menningarráðs þann 27. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
Tekin er fyrir umsókn frá Árna Daníel Júlíusarsyni, þar sem hann sækir um 400.000 kr. styrk til að mæta kostnaði við verkefnið Eyðibyggðir miðalda.
Niðurstaða : Menningarráð samþykkir með þremur atkvæðum að hafna erindinu þar sem umsókn samræmist ekki reglum sjóðsins. Menningarráði þykir verkefnið áhugvert og vísar því inn í Byggðaráð Dalvíkurbyggðar.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hafna ofangreindu erindi þar sem, samkvæmt umsókninni, er um að ræða verkefni á vegum Fornleifastofnunar Íslands, sem er sjálfeignarstofnun. Í reglum Menningar- og
viðurkenningarsjóðs er m.a. skilyrt að umsækjandi sé með lögheimili í Dalvíkurbyggð."