Frá Upplýsingafulltrúa; upplyfting á byggðamerki - tillaga

Málsnúmer 202512012

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1177. fundur - 12.03.2026

Undir þessum lið koma á fund byggðaráðs Friðjón Árni Sigurvinsson, upplýsingafulltrúi kl. 15.05.

Á 386. fundi sveitarstjórnar þann 20. janúar sl. var samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum að ganga til samninga við Kríu hönnunarstofu um mörkun Dalvíkurbyggðar og uppfærslu á byggðamerki.

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað Upplýsingafulltrúa þar sem kynnt er tillaga að upplyftingu á byggðamerki.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum meðfylgjandi tillögu að upplyftingu á byggðamerki Dalvíkurbyggðar og vísar því til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn - 388. fundur - 17.03.2026

Á 1177. fundi byggðaráðs þann 12. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Undir þessum lið koma á fund byggðaráðs Friðjón Árni Sigurvinsson, upplýsingafulltrúi kl. 15.05.
Á 386. fundi sveitarstjórnar þann 20. janúar sl. var samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum að ganga til samninga við Kríu hönnunarstofu um mörkun Dalvíkurbyggðar og uppfærslu á byggðamerki.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað Upplýsingafulltrúa þar sem kynnt er tillaga að upplyftingu á byggðamerki.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum meðfylgjandi tillögu að upplyftingu á byggðamerki Dalvíkurbyggðar og vísar því til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og fyrirliggjandi tillögu að mörkun og upplyftingu á byggðamerki Dalvíkurbyggðar.
Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að fela sveitarstjóra að sækja um endurskráningu byggðamerkisins hjá Hugverkastofunni.