Á 368. fundi sveitarstjórnar þann 16. apríl 2024 var eftirfarandi bókað:
"Á 19. fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 5. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
Farið yfir málefni fjallgirðinga og viðhaldi á þeim. Niðurstaða:Umhverfis- og dreifbýlisráð leggur til að farið verði í endurnýjun fjallgirðinganna milli Upsa, Hóls og Svæðis auk viðhalds á öðrum fjallgirðingum í landi sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Niðurstaða : Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu umhverfis- og dreifbýlisráðs um endurnýjun fjallgirðinga. Upphæðin verði tekin af lið 13210-4396 sem rúmast á fjárhagsáætlun ársins 2024."
Á 41. fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 13. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Árið 2024 var gerður verksamningur við GÞ verktaka vegna endurnýjunar og færslu á fjallgirðingunni við Upsir og Hól/Svæði. Í ljós hefur komið að tilfærsla á girðingunni er ekki fýsileg í ljósi krafna um fornleifaskráningu á fyrirhuguðu girðingarstæði.
Niðurstaða : Umhverfis- og dreifbýlisráð leggur til að samningi við GÞ verktaka verði rift á grundvelli breyttra forsenda.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.