Skipulagsráð

36. fundur 12. ágúst 2025 kl. 12:30 - 15:30 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Katrín Sif Ingvarsdóttir formaður
  • Freyr Antonsson varaformaður
  • Emil Júlíus Einarsson aðalmaður
  • Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson aðalmaður
  • Þorsteinn Ingi Ragnarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • María Markúsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: María Markúsdóttir Skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Nýtt íbúðasvæði við Böggvisbraut - breyting á aðalskipulagi

Málsnúmer 202410032Vakta málsnúmer

Kynningu tillögu á vinnslustigi að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna nýrrar íbúðabyggðar við Böggvisbraut lauk þann 18.júní sl.
Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Rarik, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, Norðurorku og Minjastofnun Íslands.
Skipulagsfulltrúa er falið að vinna áfram að endanlegri skipulagstillögu í samráði við skipulagshönnuð og leggja fram á næsta fundi ráðsins.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

2.Böggvisbraut - nýtt deiliskipulag

Málsnúmer 202302121Vakta málsnúmer

Kynningu tillögu á vinnslustigi að nýju deiliskipulagi fyrir íbúðabyggð við Böggvisbraut lauk þann 18.júní sl.
Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Rarik, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra og Minjastofnun Íslands.
Skipulagsfulltrúa er falið að vinna áfram að endanlegri skipulagstillögu í samráði við skipulagshönnuð á næsta fundi ráðsins.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

3.Árskógssandur - breyting á aðalskipulagi vegna nýrrar íbúðabyggðar

Málsnúmer 202402088Vakta málsnúmer

Kynningu tillögu á vinnslustigi að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna stækkunar á íbúðarsvæði 706-ÍB á Árskógssandi lauk þann 5.júní sl.
Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Rarik, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, Mílu, Hörgársveit og Minjastofnun Íslands.
Skipulagsráð samþykkir að unnin verði endanleg tillaga að aðalskipulagsbreytingu með þeim breytingum sem koma fram í umsögnum. Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 og að tillagan verði auglýst skv. 31.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

4.Árskógssandur - nýtt deiliskipulag

Málsnúmer 202303040Vakta málsnúmer

Kynningu tillögu á vinnslustigi að deiliskipulagi fyrir nýja íbúðabyggð á Árskógssandi lauk þann 5.júní sl.
Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Rarik, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra og Minjastofnun Íslands.
Skipulagsráð samþykkir að unnin verði endanleg tillaga að deiliskipulagi með þeim breytingum sem koma fram í umsögnum. Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki tillögu að deiliskipulagi og að tillagan verði auglýst skv. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samhliða auglýsingu aðalskipulagsbreytingar.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

5.Skógarhólar - breyting á aðalskipulagi

Málsnúmer 202402087Vakta málsnúmer

Kynningu tillögu á vinnslustigi að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna stækkunar íbúðarbyggðar og nýrrar götu út frá Skógarhólum lauk þann 11.ágúst sl.
Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands, Vegagerðinni og Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra.

Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 og að tillagan verði auglýst skv. 31.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

6.Skógarhólar - breyting á deiliskipulagi Hóla- og Túnahverfis

Málsnúmer 202301077Vakta málsnúmer

Kynningu tillögu á vinnslustigi að breytingu á deiliskipulagi Hóla- og Túnahverfis á Dalvík vegna áforma um fjölgun byggingarlóða og lagningu nýrrar götu út frá Skógarhólum lauk þann 11.ágúst sl.
Ein athugasemd barst. Umsagnir bárust frá Rarik, Landsneti, Minjastofnun Íslands, Heilbrigðiðseftirliti Norðurlands eystra og Vegagerðinni.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að deiliskipulagi með breytingu skv. umsögn Vegagerðarinnar og jafnframt þeirri breytingu að ný gata til norðurs frá Skógarhólum fái heitið Birkihólar í samræmi við innkomnar ábendingar. Þá leggur skipulagsráð til við sveitarstjórn að tillagan verði auglýst skv. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samhliða auglýsingu aðalskipulagsbreytingar.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

7.Aðveitustöð Hríshöfða - breyting á aðalskipulagi

Málsnúmer 202507043Vakta málsnúmer

Gera þarf breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 þar sem iðnaðarlóð undir spennahús Rarik við Hríshöfða er stækkuð úr 0,2 ha í 0,9 ha til samræmis við gildandi lóðarleigusamning.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki að gerð verði breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 til samræmis við erindið. Að mati skipulagsráðs er breytingin óveruleg skv. 2.mgr. 36.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem hún hefur ekki í för með sér verulegar breytingar á landnotkun eða er líkleg til að hafa áhrif á einstaka aðila eða stór svæði.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

8.Landeldi og vinnsla norðan Hauganess - breyting á aðalskipulagi

Málsnúmer 202504091Vakta málsnúmer

Kynningu á skipulagslýsingu fyrir breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna áforma um uppbyggingu landeldisstöðvar norðan Hauganess lauk þann 23.júlí sl.
Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Skipulagsstofnun, Landsneti, Fjallabyggð, Slökkviliði Dalvíkur, Vegagerðinni, Umhverfis- og orkustofnun, Rarik og Matvælastofnun.
Skipulagsfulltrúa er falið að vinna áfram að skipulagstillögu á vinnslustigi í samráði við skipulagshönnuð.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

9.Landeldi og vinnsla norðan Hauganess - nýtt deiliskipulag

Málsnúmer 202506122Vakta málsnúmer

Kynningu á skipulagslýsingu fyrir nýtt deiliskipulag fyrir uppbyggingu landeldisstöðvar norðan Hauganess lauk þann 23.júlí sl.
Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Skipulagsstofnun og Vegagerðinni.
Skipulagsfulltrúa er falið að vinna áfram að skipulagstillögu á vinnslustigi í samráði við skipulagshönnuð.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

10.Íbúðahverfi sunnan Dalvíkur - nýtt deiliskipulag

Málsnúmer 202205033Vakta málsnúmer

Rætt um næstu skref í vinnu við gerð deiliskipulags fyrir íbúðarhverfis sunnan Dalvíkur.
Skipulagsfulltrúa er falið að vinna áfram að endanlegri deiliskipulagstillögu í samvinnu við skipulagshönnuði.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

11.Birnunes - umsókn um skipulag fyrir frístundabyggð

Málsnúmer 202507025Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9.júlí 2025 þar sem Kjartan Gústafsson sækir um heimild til að vinna deiliskipulag fyrir frístundabyggð í landi Birnuness. Fyrirhugað er að skipuleggja 8 lóðir sem hver um sig verður 1 ha að stærð.
Afgreiðslu frestað þar til fyrir liggja gögn um áformin.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

12.Aðalgata 3 - umsókn um stækkun lóðar

Málsnúmer 202508023Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8.ágúst 2025 þar sem Trausti Þór Sigurðsson sækir um stækkun lóðar nr. 3 við Aðalgötu á Hauganesi. Óskað er eftir því að lóðin verði stækkuð til samræmis við gildandi deiliskipulag.
Fyrir liggur samþykki framkvæmdasviðs við erindinu.
Skipulagsráð samþykkir erindið og felur skipulagsfulltrúa að láta vinna breytingu á deiliskipulagi til samræmis við endanlega uppmælingu lóðarinnar.
Að mati skipulagsráðs er breytingin óveruleg skv. 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal hún grenndarkynnt skv. 44.gr. laganna.
Grenndarkynnt skal fyrir lóðarhöfum Mólands og Aðalgötu 1 og 5.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

13.Skáldalækur ytri - umsókn um deiliskipulag fyrir frístundalóðir

Málsnúmer 202401038Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Skipulagsstofnunar, dags. 27.júní 2025 þar sem gerð er athugasemd við málsmeðferð deiliskipulags fyrir frístundabyggð í landi Skáldalækjar ytri.
Skipulagsráð samþykkir að deiliskipulagstillagan verði auglýst á nýjan leik skv. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 í samræmi við tilmæli Skipulagsstofnunar.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

14.Sjávarstígur 2 - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir notkun sprengiefnis í borholur

Málsnúmer 202505155Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 22.maí 2025 þar sem Jón Örn Pálsson f.h. Ocean Eco Farm ehf. sækir um heimild til þess að nota sprengiefni í borholu undir sjávarbotni á lóð nr. 2 við Sjávarstíg á Hauganesi.
Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 6.júní sl. og var afgreiðslu frestað þar til fyrir lægi álit óháðs aðila á hugsanlegum áhrifum af norkun sprengiefnis.
Nú liggur fyrir umsögn Eflu verkfræðistofu og veitustjóra Dalvíkurbyggðar.
Skipulagsráð samþykkir erindið og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öll tilskilin gögn hafa borist.
Lóðarhafar á Hauganesi skulu upplýstir um framkvæmdina.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

15.Stærri Árskógur - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu ljósleiðara

Málsnúmer 202508022Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8.ágúst 2025 þar sem Bergur Þór Þórðarson f.h. Orkufjarskipta sækir um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu ljósleiðara um 370 m leið í landi Stærri Árskógs.
Meðfylgjandi er afstöðumynd ásamt greinargerð og samþykki landeiganda og Vegagerðarinnar.
Skipulagsráð samþykkir erindið og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öll tilskilin gögn hafa borist.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

16.Hamar lóð 13 - umsókn um lóð

Málsnúmer 202505002Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 30.apríl 2025 þar sem Ragnar Þór Georgsson sækir um frístundalóð nr. 13 í landi Hamars.
Skipulagsráð frestar afgreiðslu og vísar til vinnu við gerð gjaldskrár fyrir frístundalóðir í Dalvíkurbyggð. Við samþykkt gjaldskrár verða frístundalóðir auglýstar lausar til úthlutunar og umsóknin tekin fyrir á nýjan leik.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

17.Garðatröð 9e - Umsókn um lóð

Málsnúmer 202505161Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 26.maí 2025 þar sem Reynir Lárusson sækir um frístundalóð nr. 9E við Garðatröð.
Skipulagsráð frestar afgreiðslu og vísar til vinnu við gerð gjaldskrár fyrir frístundalóðir í Dalvíkurbyggð. Við samþykkt gjaldskrár verða frístundalóðir auglýstar lausar til úthlutunar og umsóknin tekin fyrir á nýjan leik.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

18.Garðatröð 1D - umsókn um lóð

Málsnúmer 202507033Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15.júlí 2025 þar sem Jón Þór Arngrímsson sækir um frístundalóð nr. 1D við Garðatröð.
Skipulagsráð frestar afgreiðslu og vísar til vinnu við gerð gjaldskrár fyrir frístundalóðir í Dalvíkurbyggð. Við samþykkt gjaldskrár verða frístundalóðir auglýstar lausar til úthlutunar og umsóknin tekin fyrir á nýjan leik.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

19.Garðatröð - umsókn um lóð

Málsnúmer 202507037Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15.júlí 2025 þar sem Arngrímur Jónsson sækir um frístundalóð nr. 1D við Garðatröð.
Skipulagsráð frestar afgreiðslu og vísar til vinnu við gerð gjaldskrár fyrir frístundalóðir í Dalvíkurbyggð. Við samþykkt gjaldskrár verða frístundalóðir auglýstar lausar til úthlutunar og umsóknin tekin fyrir á nýjan leik.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

20.Garðatröð 1D - umsókn um lóð

Málsnúmer 202507038Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15.júlí 2025 þar sem Ingi Þór Arngrímsson sækir um frístundalóð nr. 1D við Garðatröð.
Skipulagsráð frestar afgreiðslu og vísar til vinnu við gerð gjaldskrár fyrir frístundalóðir í Dalvíkurbyggð. Við samþykkt gjaldskrár verða frístundalóðir auglýstar lausar til úthlutunar og umsóknin tekin fyrir á nýjan leik.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

21.Sánuvagn - stöðuleyfi

Málsnúmer 202508025Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 1.ágúst 2025 þar sem María Pálsdóttir f.h. Hælisins ehf. sækir um tímabundið stöðuleyfi fyrir sánuvagn dagana 18.-20.ágúst nk.
Fyrirhuguð staðsetning er í flæðarmálinu við Sandskeið á Dalvík.
Skipulagsráð samþykkir erindið og vísar því til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

22.Sandskeið - umsókn um stöðuleyfi fyrir gám

Málsnúmer 202506052Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9.júní 2025 þar sem Ívar Örn Vignisson sækir um stöðuleyfi fyrir 20 ft gám við Sandskeið.
Meðfylgjandi er afstöðumynd.
Skipulagsráð samþykkir erindið.
Málinu er vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

23.Umsókn um stöðuleyfi fyrir gám

Málsnúmer 202507036Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15.júlí 2025 þar sem Hartmann Kristjánsson sækir um stöðuleyfi fyrir gám við Sandskeið.
Skipulagsráð samþykkir erindið.
Málinu er vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

24.Sandskeið - umsókn um stöðuleyfi fyrir gám

Málsnúmer 202508010Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28.júlí 2025 þar sem Hjálmar Randversson sækir um stöðuleyfi fyrir gám við Sandskeið.
Skipulagsráð samþykkir erindið.
Málinu er vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

25.Kirkjuvegur 13 - umsókn um byggingu garðskúrs

Málsnúmer 202508009Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20.júlí 2025 þar sem Ingvar Kristinsson sækir um leyfi fyrir byggingu garðskúrs á lóð nr. 13 við Kirkjuveg.
Skipulagsráð samþykkir erindið með vísan í kafla 3.3.3 í greinargerð með deiliskipulagi svæðisins. Þar segir að heimilt sé að reisa óupphitað smáhýsi undir 15 m2 fyrir hverja íbúð innan lóðar og er staðsetning heimil utan byggingarreits.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

Málinu er vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

26.Öldugata 11, Árskógssandi - umsókn um byggingu bílgeymslu

Málsnúmer 202507028Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 13.júlí 2025 þar sem Ólafur Sigurðsson sækir um leyfi til byggingar bílgeymslu á lóð nr. 11 við Öldugötu á Árskógssandi.
Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.
Skipulagsráð samþykkir að grenndarkynna áformin skv. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynnt skal fyrir lóðarhöfum Öldugötu 6, 7, 8 og 9.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

27.Kvíalækur - umsókn um smáhýsi

Málsnúmer 202507022Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 3.júlí 2025 þar sem Vignir Sveinsson sækir um heimild til byggingar smáhýsis á jörðinni Kvíalæk.
Skipulagsráð samþykkir erindið.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

28.Dalvíkurlína 2 - stígur meðfram lagnaleið

Málsnúmer 202111018Vakta málsnúmer

Lagt fram á nýjan leik erindi hestamannafélagsins Hrings dags. 16.mars 2025 þar sem skorað er á Dalvíkurbyggð að fyrirhugaður göngu- og hjólastígur meðfram Dalvíkurlínu 2 verði jafnframt skilgreindur sem reiðvegur. Afgreiðslu var frestað og skipulagsfulltrúa falið að ræða við stígahönnuð og Vegagerðina um erindið.
Skipulagsráð hafnar erindinu.
Samþykkt samhjóða með fimm atkvæðum.

29.Ósk um lagningu reiðstígs

Málsnúmer 202507045Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15.júlí 2025 þar sem Þorleifur Kristinn Karlsson sækir um að lagður verði reiðstígur meðfram heimreið upp að Svæði. Meðfylgjandi er skýringarmynd.
Erindinu er vísað til vinnu við fjárhagsáætlunargerð næsta árs.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

30.Goðabraut 8 - umsókn um stækkun bílastæðis

Málsnúmer 202508021Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7.ágúst 2025 þar sem Sigríður Dóra Friðjónsdóttir sækir um stækkun bílastæðis á lóð nr. 8 við Goðabraut.
Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.
Skipulagsráð samþykkir erindið þar sem það er í samræmi við reglur Dalvíkurbyggðar um bílastæði og úrtök úr kantsteini.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

31.Gjaldskrá fyrir frístundalóðir í Dalvíkurbyggð

Málsnúmer 202504019Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað, unnið af KPMG, varðandi forsendur fyrir gjaldtöku fyrir frístundalóðir í landi Dalvíkurbyggðar, ásamt drögum að gjaldskrá fyrir frístundalóðir í Dalvíkurbyggð.
Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 9.apríl sl.
Lagt fram til kynningar.

32.Aðalskipulag Fjallabyggðar 2008-2032 vegna Fljótaganga, nr. 08192025 Lýsing (Breyting á aðalskipulagi)

Málsnúmer 202506070Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12.júní 2025 þar sem óskað er umsagnar Dalvíkurbyggðar um skipulagslýsingu fyrir breytingu á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2032 vegna Fljótaganga.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemdir við framlagða skipulagslýsingu.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

33.Skipulag skógræktar

Málsnúmer 202506018Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4.júní 2025 þar sem Vinir íslenskrar náttúru vekja athygli sveitarfélaga á Íslandi á áhrifum stórfelldrar skógræktar á landslag og vistkerfi og mikilvægi skipulagsvinnu í tengslum við skógrækt.
Lagt fram til kynningar.

34.Undirbúningur aðalskipulags Skagafjarðar og Húnabyggðar - Fyrirspurn og umfjöllun um gerð vega um Húnavallaleið og Vindheimaleið.

Málsnúmer 202507020Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Samgöngufélagsins, dags. 7.júlí 2025, til Vegagerðarinnar og sveitarfélaganna Skagafjarðar og Húnabyggðar, varðandi Vindheimaleið og Húnavallaleið.
Lagt fram til kynningar.

35.Fundargerðir svæðisskipulagsnefndar 2025

Málsnúmer 202501117Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 17.fundar, dags. 20.maí 2025.
Lagt fram til kynningar.

36.Fundargerðir byggingarfulltrúa 2025

Málsnúmer 202501031Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 5. fundar dags. 26. júní 2025, með fullnaðarafgreiðslum erinda.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:30.

Nefndarmenn
  • Katrín Sif Ingvarsdóttir formaður
  • Freyr Antonsson varaformaður
  • Emil Júlíus Einarsson aðalmaður
  • Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson aðalmaður
  • Þorsteinn Ingi Ragnarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • María Markúsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: María Markúsdóttir Skipulagsfulltrúi