Garðatröð 1D - umsókn um lóð

Málsnúmer 202507033

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 36. fundur - 12.08.2025

Erindi dagsett 15.júlí 2025 þar sem Jón Þór Arngrímsson sækir um frístundalóð nr. 1D við Garðatröð.
Skipulagsráð frestar afgreiðslu og vísar til vinnu við gerð gjaldskrár fyrir frístundalóðir í Dalvíkurbyggð. Við samþykkt gjaldskrár verða frístundalóðir auglýstar lausar til úthlutunar og umsóknin tekin fyrir á nýjan leik.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.