Sveitarstjórn

389. fundur 21. apríl 2026 kl. 16:15 - 17:42 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Freyr Antonsson aðalmaður
  • Helgi Einarsson aðalmaður
  • Sigríður Jódís Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Katrín Sif Ingvarsdóttir aðalmaður
  • Gunnar Kristinn Guðmundsson aðalmaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
  • Kristinn Bogi Antonsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
Helgi Einarsson boðaði forföll í byrjun fundar og varamenn hans boðuðu einnig forföll.Helgi Einarsson mætti á fundinn undir lið 7 kl 16:24.

Engar athugasemdir við fundarboð eða fundarboðun.

1.Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 1178; frá 24.03.2026.

Málsnúmer 2603009FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 13 liðum.
Liður 3 er sér mál á dagskrá, mál 202603086.
Liður 4 er sér mál á dagskrá; mál 202409170.
Enginn tók til máls um fundargerðina og hún lögð fram til kynningar.

2.Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 1179; frá 09.04.2026.

Málsnúmer 2604001FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 16 liðum.
Liður 2 er sér mál á dagskrá; mál 202603047.
Liður 3 er sér mál á dagskrá; mál 202603145.
Liður 4 er sér mál á dagskrá; mál 202603146.
Liður 5 er sér mál á dagskrá; mál 202604016.
Liður 8 er sér mál á dagskrá; mál 202411012.

Enginn tók til máls um fundargerðina og hún lögð fram til kynningar.

3.Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 1180; frá 16.04.206

Málsnúmer 2604004FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 15 liðum.
Liður 1 er sér mál á dagskrá; mál 202512011.
Liður 2 er sér mál á dagskrá; mál 202508043.
Liður 5 er sér mál á dagskrá; mál 202603102.
Liður 7 er sér mál á dagskrá; mál 202409170.
Liður 8 er sér mál á dagskrá; mál 202602011.
Liður 9 er sér mál á dagskrá; mál 202604027.
Liður 11 er sér mál á dagskrá; mál 202603151.
Enginn tók til máls um fundargerðina og hún lögð fram til kynningar.

4.Fjölskylduráð - 1; frá 14.04.2026.

Málsnúmer 2603010FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 13 liðum.
Liður 4 er sér mál á dagskrá; mál 202603039.
Liður 6 er sér mál á dagskrá; mál 202603057.
Enginn tók til máls um fundargerðina og hún lögð fram til kynningar.

5.Framkvæmdaráð - 1; frá 15.04.2026

Málsnúmer 2604002FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 11 liðum.
Liður 1 er sér mál á dagskrá; mál 202603117.
Liður 5 er sér mál á dagskrá; mál 202401136.
Enginn tók til máls um fundargerðina og hún lögð fram til kynningar.

6.Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 155; frá 15.04.2026.

Málsnúmer 2604003FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 10 liðum.
Ekkert þarfnast afgreiðslu.
Enginn tók til máls um fundargerðina og hún lögð fram til kynningar.

7.Ársreikningur Dalvíkurbyggðar 2025 og endurskoðun. Fyrri umræða.

Málsnúmer 202512011Vakta málsnúmer

Helgi Einarsson kom á fundinn undir þessum lið kl. 16:24.

Á 1180. fundi byggðaráðs þann 16. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
"Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs, Þorsteinn G. Þorsteinsson, löggiltur endurskoðandi frá KPMG, Eyrún Rafnsdóttir, sviðsstjóri félagsmálasviðs, Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, og eftirtaldir aðalmenn í sveitarstjórn; Gunnar Kristinn Guðmundsson og Kristinn Bogi Antonsson, kl. 13:15.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi ársreikningur Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2025.
Þorsteinn G. Þorsteinsson, endurskoðandi, fór yfir reikninginn og kynnti helstu niðurstöður.
Þorsteinn, Eyrún, Gunnar Kristinn og Kristinn Bogi viku af fundi kl. 14:07.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ársreikningi Dalvíkurbyggðar 2025 til fyrri umræðu í sveitarstjórn."

Helstu niðurstöður úr ársreikningi Dalvíkurbyggðar 2026:
Rekstrarniðurstaða A-hluta er jákvæð um kr. 70.273.000.
Rekstrarniðurstaða A- og B- hluta er jákvæð um kr. 274.465.000.
Veltufé frá rekstri fyrir A- og B- hluta er kr. 479.217.000.
Fjárfesting og framkvæmdir fyrir A- og B- hluta er kr. 658.467.000.
Engin lán voru tekin á árinu. Afborganir lána fyrir A- og B- hluta var 124.248.000.


Til máls tóku:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sem gerði grein fyrir helstu niðurstöðum úr ársreikningi Dalvíkurbyggðar 2025.

Helgi Einarsson
Freyr Antonsson
Kristinn Bogi Antonsson

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að vísa ársreikningi Dalvíkurbyggðar 2025 til síðari umræðu í sveitarstjórn þriðjudaginn 12.maí nk.

8.Frá 1179. fundi byggðaráðs þann 09.04.2026; Verksamningur um Hillu; viðauki #13.

Málsnúmer 202603145Vakta málsnúmer

Á 1179. fundi byggðaráðs þann 9. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs, dagsett þann 8. apríl sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 til að innleiða skráningakerfi fyrir lausafjármuni sveitarfélagsins samstarfi við Advania.
Vísað er til minnisblaðs kerfisstjóra fyrir hönd UT-teymis Dalvíkurbyggðar þar sem lagt er til að gengið verði til samninga við Advania um þessa lausn á grundvelli verksamnings.
Niðurstaða :
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum þá tillögu UT-teymis að gengið verði til samninga við Advania um skráningarkerfi fyrir lausafjármuni sveitarfélagsins.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni við fjárhagsáætlun 2026, viðauka nr. 13, þannig að liður 21400-4391 lækki um kr. 1.100.000 og liður 21400-4331 hækki um sömu fjárhæð á móti.
c) Byggðaráð samþykkir jafnframt samhljóða með 3 atkvæðum að áformum um útboð á tryggingapakka sveitarfélagsins 2026, samkvæmt starfs- og fjárhagsáætlun 2026, verði frestað um eitt ár.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórn."
Enginn tók til máls.

a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs um að gengið verði til samninga við Advania um skráningarkerfi fyrir lausafjármuni sveitarfélagsins.
b) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 13 við fjárhagsáætlun 2026 þannig að liður 21400-4391 lækki um kr. 1.100.000 og liður 21400-4331 hækki um sömu fjárhæð á móti.
c) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs að áformum um útboð á tryggingapakka sveitarfélagins 2026 verði frestað um eitt ár.

9.Frá 1179. fundi byggðaráðs þann 09.04.2026; Tilkynningar með íbúakorti; viðauki #14.

Málsnúmer 202603146Vakta málsnúmer

Á 1179. fundi byggðaráðs þann 9. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs, dagsett þann 8. apríl sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 að upphæð kr. 636.450 vegna innleiðingu á stafrænu íbúakorti í gegnum veskislausn í BC frá Wise. Vísað er í meðfylgjandi minnisblað kerfisstjóra fyrir hönd UT-teymis þar sem þessi lausn er lögð til semtilkynningakerfi til íbúa þannig að hægt verði að koma nauðsynlegum tilkynningum til íbúa fljótt og vel.
Niðurstaða : a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu um innleiðingu á íbúakorti í gegnum veskislausn frá Wise.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauki nr. 14 við fjárhagsáætlun 2026, þannig að liður 21400-4338 hækki um kr. 111.600 og liður 21400-4331 hækki um kr. 524.850. Byggðaráð samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.
a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðráðs og innleiðingu á íbúakorti í gegnum veskislausn frá Wise.
b) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 14 við fjárhagsáætlun 2026 þannig að liður 21400-4338 hækki um kr. 111.600 og liður 21400-4331 hækki um kr. 524.850. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.

10.Frá 1179. fundi byggðaráðs þann 09.04.2026; OneSystems; hýsing og oneCore; viðauki #15.

Málsnúmer 202604016Vakta málsnúmer

Á 1179. fundi byggðaráðs þann 9. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs, dagsett þann 8. apríl sl., þar sem vísað er til meðfylgjandi minnisblað kerfisstjóra fyrir hönd UT-teymis þar sem fram kemur að lagt er til að farið verði með
Onesystems mála- og skjalakerfið í hýsingu hjá Onesystems og keyptar verði þær uppfærslur sem tilgreindar eru í minnisblaðinu. Um er að ræða uppfærslu á OneCore sem er "léttari" útgáfa af skjala- og málakerfinu og nýtist m.a.
vel í störfum starfsmanna skóla. Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 1.975.526 við fjárhagsáætlun 2026 vegna þessa.
Niðurstaða : a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að gengið verði til samninga við OneSystems um hýsingu á mála- og skjalakerfi sveitarfélagsins sem og um þær uppfærslur sem hér að ofan greinir og samkvæmt fyrirliggjandi gögnum.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðauka við fjárhagsáætlun 2026, viðauka nr. 15, þannig að liður 21400-4338 hækki um kr 608.666 og liður 21400-4331 hækki um kr. 1.366.860. Byggðaráð samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.
a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og samþykkir að gengið verði til samninga við OneSystems um hýsingu á mála- og skjalakerfi sveitarfélagsins sem og þær uppfærslur sem lagðar eru til á fyrirliggjandi gögnum.
b) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 15 við fjárhagsáætlun 2026 þannig að liður 21400-4338 hækki um kr. 608.666 og liður 21400-4331 hækki um kr. 1.366.866. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.

11.Frá 1180. fundi byggðaráðs þann 16.04.2026; Ósk um kaup á hljóðkerfi í íþróttamannvirki; viðauki #16.

Málsnúmer 202603102Vakta málsnúmer

Á 1180. fundi byggðaráðs þann 16. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
"Á 1179. fundi byggðaráðs þann 9. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
Tekið fyrir erindi frá íþróttafulltrúa, dagsett þann 30. mars sl. og 7. apríl sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 vegna kaupa á hljóðkerfi í Íþróttamiðstöð. Beiðnin kom fram við gerð fjárhagsáætlun 2026 en var hafnað. Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 2.675.000. Fram kemur að ekki er metið svigrúm til lækkunar á öðrum liðum á móti.
Niðurstaða : Afgreiðslu frestað til næstu viku."
Með fundarboði byggðaráðs fylgdu upplýsingar frá íþróttafulltrúa um að ekki er metið svigrúm innan fjárhagsramma Íþróttamiðstöðvar til að mæta þessari viðaukabeiðni.
Gísli og Jón Stefán viku af fundi kl. 14:54.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhjóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauka nr. 16 við fjárhagsáætlun 2026, að upphæð kr. 2.675.000 á lið 06500-2810.
Byggðaráð samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 16 við fjárhagsáætlun 2026 þannig að liður 06500-2810 hækki um kr. 2.675.000. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.

12.Frá 1180. fundi byggðaráðs þann 16.04.2026; Fjárfestingar og framkvæmdir 2026; viðaukar #17 - #18 - #19.

Málsnúmer 202602011Vakta málsnúmer

Á 1180. fundi byggðaráðs þann 16. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
"Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Óðinn Steinsson, verkefnastjóri þvert á svið kl.15:06.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi viðaukabeiðni frá Framkvæmdasviði vegna veitna:
Vatnsveita liður 44200-11606 hækki nettó um kr. 9.500.000 með eftirfarandi sundurliðun:
Nýtt verkefni; Ljóstæki vatnstankur Upsa, kr. 4.000.000.
Hækkun á verkefni; Hönnun og nýlagnir Hamar, kr. 2.000.000.
Tekið út verkefni; Brattavellir - ljóstæki, kr. -3.000.000.
Nýtt verkefni; Bakkavarnir í landi Bakka, kr. 3.500.000.
Nýtt verkefni; Vatnsöflun Árskógsströnd, kr. 7.000.000.
Tekið út verkefni; Tenging við Engihlíð, Sólvelli og Vallholt, kr. -4.000.000.
Hitaveita liður 48200-11607, nettó breyting lækkun um kr. -29.289.000.
Tekið út verkefni; Djúpdæla HA 11 niðursetning, kr. -16.000.000.
Lækkun á verkefni; Endurnýjun dæli í ÁRS32, kr -4.200.000.
Hækkun á verkefni; Þorvaldsdalur uppgjör v. 2025, kr. 12.411.000.
Hækkun á verkefni; Þorvaldsdalur áætlun 2026, kr. 9.000.000.
Nýtt verkefni; Endurnýjun á dælu í ÁRS29, kr. 15.000.000.
Tekið út verkefni; Sameining borholuskúra; kr. -15.000.000.
Tekið út verkefni; Þak á hitaveitutanki Hamri; kr. -13.900.000.
Tekið út verkefni; Loftræsting á dælustöðvar; kr. - 8.000.000.
Lækkun á verkefni; Kaup á mælum; kr. - 8.000.000.
Búnaðarbeiðni á lið 47310-2810, kaup á Leica GPS staf kr. 3.950.000.
Alls breyting til lækkunar kr. -25.339.000.
Fráveita, liður 74200-11503; nettó breyting hækkun um kr. 19.500.000.
Lækkun á verkefni; Nýlagnir og endurnýjun lagana, kr. -1.000.000.
Nýtt verkefni; Framlenging útrásar á Hauganesi, kr. 18.000.000.
Nýtt verkefni; Endurnýjun stjórnbúnaðar, kr. 2.500.000.
Óðinn gerði grein fyrir ofangreindum viðaukabeiðnum veitna.
Óðinn vék af fundi kl. 15:57.
Niðurstaða : a)Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka, viðauki nr. 17 við fjárhagsáætlun 2026, þannig að fjárfestingar Vatnsveitu hækki um kr. 9.500.000 nettó skv. ofangreindri sundurliðun,
liður 44200-11606. Byggðaráð samþykkir samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé. Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka, viðauka nr. 18 við fjárhagsáætlun 2026, þannig að fjárfestingar Hitaveitu lækki um kr. 29.289.000 skv. ofangreindri sundurliðun, liður
48200-11607. Einnig samþykkir byggðaráð viðaukabeiðni að upphæð kr. 3.950.000 á lið 47310-2810 vegna búnaðarkaupa. Heildarviðaukinn nettó er því lækkun um kr. 25.339.000. Byggðráð samþykkir samhljóða að viðaukanum verði mætt með hækkun á handbæru fé. Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
c) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka, viðauki nr. 18 við fjárhagsáætlun 2026, þannig að fjárfestingar Fráveitu hækki um kr. 19.500.000 nettó skv. ofangreindri sundurliðun,
liður 74200-11503. Byggðaráð samþykkir samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé. Vísaðtil umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.

a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 17 við fjárhagsáætlun 2026 þannig að liður 44200-11606 hækki nettó um kr. 9.500.000 skv. ofangreindri sundurliðun. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
b) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 18 við fjárhagsáætlun 2026 þannig að liður 48200-11607 lækki um kr. 29.289.000 nettó skv. ofangreindri sundurliðun og liður 47310-2810 hækki um kr. 3.950.000. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að viðaukanum verði mætt með hækkun á handbæru fé
c) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 19 við fjárhagsáætlun 2026 þannig að liður 74200-11503 hækki um kr. 19.500.000 nettó skv. ofangreindri sundurliðun. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.

13.Frá 1180. fundi byggðaráðs þann 16.04.2026; Beiðni um viðauka vegna frístundalóða á Hamri; viðauki #20.

Málsnúmer 202604027Vakta málsnúmer

Á 1180. fundi byggðaráðs þann 16. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar, dagsett þann 13. apríl sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 vegna innviðauppbyggingar fyrir frístundalóðir á Hamri.Fram kemur að ekki var gert ráð fyrir innviðauppbyggingu á Hamri í fjarhagsáætlun 2026, en mikill vilji er til þess að ná að auglýsa lausar fleiri lóðir á svæðinu sem fyrst. Gert er ráð fyrir að hægt verði að auglýsa og úthluta 10 lóðum til viðbótar vestast á svæðinu auk þess að bæta aðkomu að tveimur lóðum sem nú þegar er búið að úthluta ef fjárheimild fæst.
Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 4.500.000 á lið 32200-11900 vegna gatnagerðar á svæðinu og kr. 9.000.000 á lið 48200-11607 vegna lagningu á nýrri stofnæð hitaveitu frá borholunum að Hamri niður í nýja hverfið.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauka nr. 20 við fjárhagsáætlun 2026 þannig að liður 32200-11900 hækki um kr. 4.500.000 og liður 48200-11607 hækki um kr. 9.000.000.
Byggðaráð samþykkir að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé. Vísað til umföllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 20 við fjárhagsáætlun 2026 þannig að liður 32200-11900 hækki um kr. 4.500.000 og liður 48200-11607 hækki um kr. 9.000.000. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.

14.Frá 1180. fundi byggðaráðs þann 16.04.2026; Trúnaðarmál - viðauki #21

Málsnúmer 202603151Vakta málsnúmer

Á 1180. fundi byggðaráðs þann 16. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
"Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðaukabeiðni nr. 21 við fjárhagsáætlun 2026 þannig að deild 04210 hækki um kr. 1.098.805, deild 04240 hækki um kr. 291.626 og deild 05620 hækki um kr. 145.805. Alls viðauki að upphæð kr. 1.536.236. Byggðaráð samþykkir samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 21 við fjárhagsáætlun 2026 að upphæð kr. 1.536.236 í samræmi við ofangreinda sundurliðun. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.

15.Frá 1179. fundi byggðaráðs þann 09.04.2026; Tenging við Jónsbók

Málsnúmer 202603047Vakta málsnúmer

Á 1179. fundi byggðaráðs þann 9. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 5. mars sl., þar sem Stafræna teymið kannar áhuga sveitarfélaga á að taka þátt í verkefninu „Jónsbók - tenging við skjalakerfi“. Í verkefninu felst að greina leiðir, kostnað og fýsileika þess að þróa tengingu milli skjalakerfa og Jónsbókar. Jónsbók er gervigreindarlausn sem er sérstaklega hönnuð fyrir íslenska lögfræðinga (https://jonsbok.ai/is). Í þessum hluta er sveitarfélögum boðið að taka þátt í að gera greiningu á verkefninu. Afurð þessa hluta verkefnisins eru lýsingar og áætlanir um útfærslu.
Verkefnið er unnið eftir verkferli þróunarverkefna sem samstarf sveitarfélaga í stafrænum málum hefur skilgreint. Frekari upplýsingar um verkferil er að finna í meðfylgjandi gögnum.
Óskað er eftir áhugasömum sveitarfélögum til að taka þátt í og fjármagna frekari greiningu á verkefninu. Skilafrestur er 10. apríl nk.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs upplýsti að UT-teymi sveitarfélagsins fundaði um ofangreint erindi og leggur teymið til að taka ekki þátt, a.m.k. að svo stöddu.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að Dalvíkurbyggð taki ekki þátt í þessu verkefni."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs um að Dalvikurbyggð taki ekki þátt í verkefni Sambands íslenskra sveitarfélaga "Jónsbók - tenging við skjalakerfi".

16.Frá 1178. fundi byggðaráðs þann 24.03.2026: Beiðni um styrk frá Sjómannadagsráði.

Málsnúmer 202603086Vakta málsnúmer

Á 1178. fundi byggðaráðs þann 24. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Sigmari Erni Harðarsyni, dagsett þann 13. mars sl., þar sem óskað er eftir fyrir hönd Sjómannadagsráðs framlagi frá Dalvíkurbyggð vegna leigu eða kaupa á klósettgámi til að hafa á hafnarsvæði og við Íþróttamiðstöðina á Sjómannadaginn 6. júní nk. Leiguverð í einn mánuð er um 239 þkr. og kaupverð er um 3,9 m.kr.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum framlag að upphæð kr. 230.000, vísað á deild 05810.
Byggðaráð minnir á að árlega auglýsir sveitarfélagið eftir erindum, tillögum og óskum frá íbúum og félagasamstökum vegna vinnu við fjárhagsáætlun. Umsóknarfrestur í ár verður líklega um miðjan ágúst.
sjá einnig reglur sveitarfélagsins varðandi umsóknir almennt um styrki:
https://www.dalvikurbyggd.is/static/files/Adalvefur/Reglugerdir/120320-styrkveitingar-almennar-reglur- dalvikurbyggdar.pdf"
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og styrk til Sjómannadagsráðs að upphæð kr. 230.000 á lið 05810 vegna leigu á klósettgámi.

17.Frá 1. fundi fjölskylduráðs þann 14.04.2026; Umsókn um styrk- Sterkari út í lífið

Málsnúmer 202603057Vakta málsnúmer

Á 1. fundi fjölskylduráðs þann 14. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekin fyrir tölvupóstur dags. 07.03.2026 frá Sálfræðistofunni en um er að ræða hóp sálfræðinga sem leita eftir styrkjum vegna verkefnisins Sterkari út í lífið. Verkefnið hefur það að markmiði að gefa foreldrum ókeypis efni sem auðveldar þeim að takast á við foreldrahlutverkið og styrkja sjálfsmynd barna sinna. Verkefnið varðar forvarnir, æskulýðsmál, lýðheilsu, sjálfsmynd barna og unglinga sem og valdeflingu foreldra.
Niðurstaða : Fjölskylduráð hafnar erindinu með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu fjölskylduráðs og hafnar erindinu.

18.Frá 1180. fundi byggðaráðs þann 16.04.2026; Beiðni um þjónustusamning vegna starfs byggingafulltrúa

Málsnúmer 202409170Vakta málsnúmer

Á 1180. fundi byggðaráðs þann 16. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
"Á 1178. fundi byggðaráðs þann 24. mars sl. voru samþykkt fyrirliggjandi samningsdrög vegna framlengingu á verktakasamningi vegna embættis byggingarfulltrúa á milli Dalvíkurbyggðar og Akureyrarbæjar um 6 mánuði eða til og með 30. september.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdu uppfærð samningsdrög þar sem fram kemur breytingartillaga frá Akureyrarbæ varðandi skoðun á áframhaldandi samstarfi og því að gerður verði nýr heildarsamningur um verkefnið með gildistöku 1. október 2026.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdu einnig upplýsingar um þau áform að byggingarfulltrúi muni hafa ákveðna fasta viðveru í Dalvíkurbyggð.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda og meðfylgjandi tillögu að breytingu á samningsdrögunum og vísar þeim til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og fyrirliggjandi tillögu að samningsdrögum vegna framlengingu á verktakasamningi vegna embættis byggingarfulltrúa á milli Dalvíkurbyggðar og Akureyrarbæjar um 6 mánuði eða til og með 30. september nk.

19.Frá 1179. fundi byggðaráðs þann 09.04.2026; Samningur um bókhald- og launavinnslu-Dalbær - endurskoðun

Málsnúmer 202411012Vakta málsnúmer

Á 1179. fundi byggðaráðs þann 9. apríl sl. var m.a. eftirfarandi bókað:
"Með fundarboði byggðaráðs fylgdi rafpóstur frá hjúkrunarframkvæmastjóra Dalbæjar, dagsettur þann 7. apríl sl., þar sem fram kemur að stjórn Dalbæjar samþykkti á fundi sínum þann 25. mars sl. fyrirliggjandi samningi um bókhalds-og launavinnslu.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi verktakasamning um bókhalds- og launavinnslu og vísar honum til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar, með breytingu á lið 3.gr í samræmi við samþykkt stjórnar Dalbæjar er varðar aðgang að nýju mannauðs- og launakerfi og greiðslu á kostnaði vegna þess."
Til máls tók:
Kristinn Bogi Antonsson, sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu hvað þennan lið varðar og vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu kl. 16:46.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum fyrirliggjandi vektakasamning á milli Dalbæjar og Dalvíkurbyggðar um bókhalds- og launavinnslu, Kristinn Bogi Antonsson tekur ekki þátt í umfjöllun og afgreiðslu vegna vanhæfis.

20.Frá 1180. fundi byggðaráðs þann 16.04.2026; Framtíðarsýn skólahúsnæðis í Dalvíkurbyggð

Málsnúmer 202508043Vakta málsnúmer

Kristinn Bogi Antonsson kom inn á fundinn undir þessum lið kl. 16:48.
Á 1180. fundi byggðaráðs þann 16. apríl sl. var m.a. eftirfarandi bókað:
"Með fundarboði byggðaráðs fylgdi skýrsla ofangreinds vinnuhóps sem sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs kynnti.
Fram kom að nokkrir valkostir voru skoðaðir en á síðasta fundi hjá hópnum komst hann að þeirri niðurstöðu að ekki væri tímabært að fara í framkvæmdir eins og er, helgast það fyrst og fremst á því að grunnskóladeildin sem var í Árskógarskóla fer í Dalvíkurskóla næsta haust og skapast þá möguleiki á að nýta húsnæði Árskógarskóla betur ef þörf verður á og bjóða þar uppá leikskóladvöl fyrir börn. Taka svo upp þráðinn aftur ef íbúum/nemendum fer að
fjölga verulega.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa skýrslu vinnuhópsins til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að vinnuhópurinn hafi lokið störfum hér með og verði lagður niður."
Til máls tók:
Helgi Einarsson.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda niðurstöðu vinnuhópsins um að ekki sé tímabært að fara í framkvæmdir við nýtt skólahúsnæði eins og er og samþykkir jafnframt samhljóða að leggja vinnuhópinn niður.
Sveitarstjórn þakkar vinnuhópnum fyrir vinnuna.

21.Frá 1. fundi fjölskylduráðs þann 14.04.2026; Skóladagatöl skólanna fyrir skólaárið 2026 - 2027

Málsnúmer 202603039Vakta málsnúmer

Á 1. fundi fjölskylduráðs þann 14. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekin fyrir skóladagatöl leik - og grunnskóla fyrir skólaárið 2026 - 2027.
Niðurstaða : Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum skóladagatal Dalvíkurskóla fyrir skólaárið 2026 - 2027.
Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum skóladagatal Krílakots með þeirri breytingu að dagarnir milli jóla og nýs árs verði skráningadagar."
Til máls tóku:
Helgi Einarsson.
Monika Margrét Stefánsdóttir.
Freyr Antonsson.
Gunnar Kristinn Guðmundsson.
Katrín Sif Ingvarsdóttir.
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir.
Kristinn Bogi Antonsson.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu fjölskylduráðs og fyrirliggjandi tillögur að skóladagatali Dalvíkurskóla fyrir skólaárið 2026-2027 og fyrirliggjandi tillögu að skóladagatali Krílakots með þeirri breytingu að dagarnir milli jóla og nýs árs verði skráningardagar.

22.Frá 1. fundi framkvæmdaráðs þann 15.04.2026; Vinnuskóli Dalvíkurbyggðar - staða og framtíð

Málsnúmer 202401136Vakta málsnúmer

Á 1. fundi framkvæmdaráðs þann 15. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
"Á 388. fundi sveitarstjórnar þann 17. mars sl. var samþykkt samhljóða að vísa tillögu Kristins Boga Antonssonar um að auglýst verði nokkur almenn sumarstörf fyrir 18 ára og eldri hjá Eigna- og framkvæmdadeild í sumar til umræðu í framkvæmdaráði.
Fyrir fundinum lá minnisblað frá starfsmönnum Dalvíkurbyggðar þar sem lagt er til að störf fyrir 18 ára ungmenni verði auglýst laus til umsóknar sumarið 2026.
Niðurstaða : Framkvæmdaráð samþykkir tillögu um að störf fyrir 18 ára ungmenni verði auglýst laus til umsóknar skv. minnisblaði starfsmanna.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Til máls tóku:
Kristinn Bogi Antonsson.
Katrín Sif Ingvarsdóttir.
Freyr Antonsson.
Helgi Einarsson.
Monika Margrét Stefánsdóttir.

Fleiri tóku ekki til máls.

a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu framkvæmdaráðs.
b) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að beina því til framkvæmdaráðs að taka til skoðunar hvort hægt sé að bæta 19 ára ungmennum við.

23.Frá 1. fundi framkvæmdaráðs þann 15.04.2026; Kambhóll - umsókn um stækkun húss

Málsnúmer 202603117Vakta málsnúmer

Á 1. fundi framkvæmdaráðs þann 15. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
"Erindi dagsett 18.mars 2026 þar sem Eyrún Anna Finnsdóttir f.h. Bergmanna ehf. sækir um stækkun hússins Kambhóls við Karlsrauðatorg á Dalvík.
Fyrirhugað er að byggja viðbyggingu við íbúðar- og gistihús.
Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu. Í gildandi aðalskipulagi er lóðin á svæði fyrir íbúðarbyggð.
Niðurstaða : Rekstur íbúðar- og gistihúss samræmist ekki gildandi Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 þar sem umrædd lóð er á svæði sem skilgreint er sem íbúðarsvæði. Framkvæmdaráð samþykkir að gerð verði breyting á
Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 þar sem lóðinni Kambhól verði breytt úr íbúðarsvæði í blandaða notkun íbúðarsvæðis / miðsvæðis.
Að mati framkvæmdaráðs er um óverulega breytingu að ræða í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem breytingin hefur hvorki í för með sér verulegar breytingar á landnotkun né er hún líkleg til að hafa
mikil áhrif á einstaka aðila eða stór svæði.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Vísað til sveitarstjórnar til staðfestingar.
Skjal sótt af '2901693219' dags: 21.04 2026
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu framkvæmdaráðs og samþykkir að gerð verði breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 þar sem lóðinni Kambhól verði breytt úr íbúðarsvæði í blandaða notkun íbúðarsvæðis / miðsvæðis.
Að mati sveitarstjórnar er um óverulega breytingu að ræða í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem breytingin hefur hvorki í för með sér verulegar breytingar á landnotkun né er hún líkleg til að hafa mikil áhrif á einstaka aðila eða stór svæði.

24.Verbúðir - sala; útfærsla

Málsnúmer 202501076Vakta málsnúmer

Á 1158. fundi byggðaráðs þann 25. september sl. var eftirfarandi bókað:
"Á 382.fundi sveitarstjórnar þann 16.september sl., var tekin fyrir b) liður bókunar veitu- og hafnaráðs af 148.fundi þess þar sem eftirfarandi var bókað:
b) Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að leggja til við byggðaráð að verbúðirnar fari úr eigu og rekstri Hafnasjóðs/sveitarfélagsins.

Á 1151.fundi byggðaráðs þann 3.júlí sl., var samþykkti byggðaráð samhljóða með 3 atkvæðum að vísa b) lið um sölu verbúða til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn.

Niðurstaða sveitarstjórnar á 382.fundi sínum var eftirfarandi:
Undir þessum lið vék Freyr Antonsson af fundi sveitarstjórnar kl. 17:23 og 1. varaforseti tók við fundarstjórn.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum ofangreinda tillögu veitu- og hafnaráðs um að verbúðirnar fari úr eigu og rekstri Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar.
Freyr Antonsson tekur ekki þátt í umfjöllun og afgreiðslu vegna vanhæfis. Freyr Antonsson kom inn á fundinn að nýju að þessum lið loknum kl. 17:26 og tók við fundarstjórn.
Freyr Antonsson vék af fundi vegna vanhæfis kl. 16:24.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að fela sveitarstjóra að semja við fasteignasölu til þess að sjá um söluferlið á verbúðunum.

Freyr kom aftur til fundar kl. 16:30."
Til máls tók:

Freyr Antonsson, sem leggur fram eftirfarandi tillögu:
"Verbúðir hafa verið auglýstar til sölu. Tekin verður afstaða til tilboða í fyrsta sinn á byggðaráðsfundi 30. apríl. Eftir það þegar tilboð berast.
Sveitarstjórn óskar eftir því að tilboðsgjafar tilgreini í hverju framtíðarnot á húsnæðinu verða og hvernig viðhaldi þeirra verður háttað.
Byggðaráði og hafnastjóra er hér með falið að annast söluferlið og koma með tillögu til sveitarstjórnar. "


Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu forseta sveitarstjórnar.

25.Frá Margréti Ásgeirsdóttur; Ósk um lausn sem varamaður í kjörstjórn

Málsnúmer 202604060Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Margréti Ásgeirsdóttur, dagsett þann 10. apríl sl., þar sem hún óskar lausnar sem varamaður í kjörstjórn Dalvíkurbyggðar.
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að veita Margréti Ásgeirsdóttur lausn frá störfum sem varamaður í kjörstjórn og færir henni þakkir fyrir framlag sitt í þágu sveitarfélagsins.

26.Kosningar skv. Samþykktum um stjórn Dalvíkurbyggðar

Málsnúmer 202604072Vakta málsnúmer

a) Varamaður í kjörstjórn.

Til máls tók forseti sveitarstjórnar sem leggur til að Einar Hafliðason taki sæti Margrétar Ásgeirsdóttur sem varamaður í kjörstjórn.
Fleiri tóku ekki til máls.

Fram komu ekki aðrar tillögur og er því Einar Hafliðason réttkjörinn sem varamaður í kjörstjórn Dalvíkurbyggðar.

27.Fundargerðir stjórnar Dalbæjar 2026;jan, feb, mars.

Málsnúmer 202604015Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Dalbæjar frá 19.01.2026, 25.02.2026 og 25.03.2026.
Enginn tók til máls.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:42.

Nefndarmenn
  • Freyr Antonsson aðalmaður
  • Helgi Einarsson aðalmaður
  • Sigríður Jódís Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Katrín Sif Ingvarsdóttir aðalmaður
  • Gunnar Kristinn Guðmundsson aðalmaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
  • Kristinn Bogi Antonsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs