Á 1179. fundi byggðaráðs þann 9. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs, dagsett þann 8. apríl sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 að upphæð kr. 636.450 vegna innleiðingu á stafrænu íbúakorti í gegnum veskislausn í BC frá Wise. Vísað er í meðfylgjandi minnisblað kerfisstjóra fyrir hönd UT-teymis þar sem þessi lausn er lögð til semtilkynningakerfi til íbúa þannig að hægt verði að koma nauðsynlegum tilkynningum til íbúa fljótt og vel.
Niðurstaða : a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu um innleiðingu á íbúakorti í gegnum veskislausn frá Wise.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauki nr. 14 við fjárhagsáætlun 2026, þannig að liður 21400-4338 hækki um kr. 111.600 og liður 21400-4331 hækki um kr. 524.850. Byggðaráð samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauki nr. 14 við fjárhagsáætlun 2026, þannig að liður 21400-4338 hækki um kr. 111.600 og liður 21400-4331 hækki um kr. 524.850. Byggðaráð samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.