Frá íþróttafulltrúa; Ósk um kaup á hljóðkerfi í íþróttamannvirki - viðaukabeiðni.

Málsnúmer 202603102

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1179. fundur - 09.04.2026

Tekið fyrir erindi frá íþróttafulltrúa, dagsett þann 30. mars sl. og 7. apríl sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 vegna kaupa á hljóðkerfi í Íþróttamiðstöð. Beiðnin kom fram við gerð fjárhagsáætlun 2026 en var hafnað. Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 2.675.000. Fram kemur að ekki er metið svigrúm til lækkunar á öðrum liðum á móti.
Afgreiðslu frestað til næstu viku.

Byggðaráð - 1180. fundur - 16.04.2026

Á 1179. fundi byggðaráðs þann 9. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá íþróttafulltrúa, dagsett þann 30. mars sl. og 7. apríl sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 vegna kaupa á hljóðkerfi í Íþróttamiðstöð. Beiðnin kom fram við gerð fjárhagsáætlun 2026 en var hafnað. Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 2.675.000. Fram kemur að ekki er metið svigrúm til lækkunar á öðrum liðum á móti.
Niðurstaða : Afgreiðslu frestað til næstu viku."

Með fundarboði byggðaráðs fylgdu upplýsingar frá íþróttafulltrúa um að ekki er metið svigrúm innan fjárhagsramma Íþróttamiðstöðvar til að mæta þessari viðaukabeiðni.

Gísli og Jón Stefán viku af fundi kl. 14:54.
Byggðaráð samþykkir samhjóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauka nr. 16 við fjárhagsáætlun 2026, að upphæð kr. 2.675.000 á lið 06500-2810.
Byggðaráð samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn - 389. fundur - 21.04.2026

Á 1180. fundi byggðaráðs þann 16. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
"Á 1179. fundi byggðaráðs þann 9. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
Tekið fyrir erindi frá íþróttafulltrúa, dagsett þann 30. mars sl. og 7. apríl sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 vegna kaupa á hljóðkerfi í Íþróttamiðstöð. Beiðnin kom fram við gerð fjárhagsáætlun 2026 en var hafnað. Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 2.675.000. Fram kemur að ekki er metið svigrúm til lækkunar á öðrum liðum á móti.
Niðurstaða : Afgreiðslu frestað til næstu viku."
Með fundarboði byggðaráðs fylgdu upplýsingar frá íþróttafulltrúa um að ekki er metið svigrúm innan fjárhagsramma Íþróttamiðstöðvar til að mæta þessari viðaukabeiðni.
Gísli og Jón Stefán viku af fundi kl. 14:54.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhjóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauka nr. 16 við fjárhagsáætlun 2026, að upphæð kr. 2.675.000 á lið 06500-2810.
Byggðaráð samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 16 við fjárhagsáætlun 2026 þannig að liður 06500-2810 hækki um kr. 2.675.000. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.