Á 1. fundi framkvæmdaráðs þann 15. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
"Erindi dagsett 18.mars 2026 þar sem Eyrún Anna Finnsdóttir f.h. Bergmanna ehf. sækir um stækkun hússins Kambhóls við Karlsrauðatorg á Dalvík.
Fyrirhugað er að byggja viðbyggingu við íbúðar- og gistihús.
Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu. Í gildandi aðalskipulagi er lóðin á svæði fyrir íbúðarbyggð.
Niðurstaða : Rekstur íbúðar- og gistihúss samræmist ekki gildandi Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 þar sem umrædd lóð er á svæði sem skilgreint er sem íbúðarsvæði. Framkvæmdaráð samþykkir að gerð verði breyting á
Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 þar sem lóðinni Kambhól verði breytt úr íbúðarsvæði í blandaða notkun íbúðarsvæðis / miðsvæðis.
Að mati framkvæmdaráðs er um óverulega breytingu að ræða í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem breytingin hefur hvorki í för með sér verulegar breytingar á landnotkun né er hún líkleg til að hafa
mikil áhrif á einstaka aðila eða stór svæði.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Vísað til sveitarstjórnar til staðfestingar.
Skjal sótt af '2901693219' dags: 21.04 2026
Að mati framkvæmdaráðs er um óverulega breytingu að ræða í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem breytingin hefur hvorki í för með sér verulegar breytingar á landnotkun né er hún líkleg til að hafa mikil áhrif á einstaka aðila eða stór svæði.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Vísað til sveitarstjórnar til staðfestingar.