Frá framkvæmdasviði; Beiðni um viðauka vegna frístundalóða á Hamri

Málsnúmer 202604027

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1180. fundur - 16.04.2026

Tekið fyrir erindi frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar, dagsett þann 13. apríl sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 vegna innviðauppbyggingar fyrir frístundalóðir á Hamri.Fram kemur að ekki var gert ráð fyrir innviðauppbyggingu á Hamri í fjarhagsáætlun 2026, en mikill vilji er til þess að ná að auglýsa lausar fleiri lóðir á svæðinu sem fyrst. Gert er ráð fyrir að hægt verði að auglýsa og úthluta 10 lóðum til viðbótar vestast á svæðinu auk þess að bæta aðkomu að tveimur lóðum sem nú þegar er búið að úthluta ef fjárheimild fæst.


Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 4.500.000 á lið 32200-11900 vegna gatnagerðar á svæðinu og kr. 9.000.000 á lið 48200-11607 vegna lagningu á nýrri stofnæð hitaveitu frá borholunum að Hamri niður í nýja hverfið.


Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauka nr. 20 við fjárhagsáætlun 2026 þannig að liður 32200-11900 hækki um kr. 4.500.000 og liður 48200-11607 hækki um kr. 9.000.000. Byggðaráð samþykkir að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé. Vísað til umföllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn - 389. fundur - 21.04.2026

Á 1180. fundi byggðaráðs þann 16. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar, dagsett þann 13. apríl sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 vegna innviðauppbyggingar fyrir frístundalóðir á Hamri.Fram kemur að ekki var gert ráð fyrir innviðauppbyggingu á Hamri í fjarhagsáætlun 2026, en mikill vilji er til þess að ná að auglýsa lausar fleiri lóðir á svæðinu sem fyrst. Gert er ráð fyrir að hægt verði að auglýsa og úthluta 10 lóðum til viðbótar vestast á svæðinu auk þess að bæta aðkomu að tveimur lóðum sem nú þegar er búið að úthluta ef fjárheimild fæst.
Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 4.500.000 á lið 32200-11900 vegna gatnagerðar á svæðinu og kr. 9.000.000 á lið 48200-11607 vegna lagningu á nýrri stofnæð hitaveitu frá borholunum að Hamri niður í nýja hverfið.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauka nr. 20 við fjárhagsáætlun 2026 þannig að liður 32200-11900 hækki um kr. 4.500.000 og liður 48200-11607 hækki um kr. 9.000.000.
Byggðaráð samþykkir að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé. Vísað til umföllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 20 við fjárhagsáætlun 2026 þannig að liður 32200-11900 hækki um kr. 4.500.000 og liður 48200-11607 hækki um kr. 9.000.000. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.