Umsókn um styrk- Sterkari út í lífið

Málsnúmer 202603057

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð - 1. fundur - 14.04.2026

Tekin fyrir tölvupóstur dags. 07.03.2026 frá Sálfræðistofunni en um er að ræða hóp sálfræðinga sem leita eftir styrkjum vegna verkefnisins Sterkari út í lífið. Verkefnið hefur það að markmiði að gefa foreldrum ókeypis efni sem auðveldar þeim að takast á við foreldrahlutverkið og styrkja sjálfsmynd barna sinna. Verkefnið varðar forvarnir, æskulýðsmál, lýðheilsu, sjálfsmynd barna og unglinga sem og valdeflingu foreldra.
Fjölskylduráð hafnar erindinu með fimm atkvæðum.

Sveitarstjórn - 389. fundur - 21.04.2026

Á 1. fundi fjölskylduráðs þann 14. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekin fyrir tölvupóstur dags. 07.03.2026 frá Sálfræðistofunni en um er að ræða hóp sálfræðinga sem leita eftir styrkjum vegna verkefnisins Sterkari út í lífið. Verkefnið hefur það að markmiði að gefa foreldrum ókeypis efni sem auðveldar þeim að takast á við foreldrahlutverkið og styrkja sjálfsmynd barna sinna. Verkefnið varðar forvarnir, æskulýðsmál, lýðheilsu, sjálfsmynd barna og unglinga sem og valdeflingu foreldra.
Niðurstaða : Fjölskylduráð hafnar erindinu með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu fjölskylduráðs og hafnar erindinu.