Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Tenging við Jónsbók

Málsnúmer 202603047

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1179. fundur - 09.04.2026

Tekið fyrir erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 5. mars sl., þar sem Stafræna teymið kannar áhuga sveitarfélaga á að taka þátt í verkefninu „Jónsbók - tenging við skjalakerfi“. Í verkefninu felst að greina leiðir, kostnað og fýsileika þess að þróa tengingu milli skjalakerfa og Jónsbókar. Jónsbók er gervigreindarlausn sem er sérstaklega hönnuð fyrir íslenska lögfræðinga (https://jonsbok.ai/is). Í þessum hluta er sveitarfélögum boðið að taka þátt í að gera greiningu á verkefninu. Afurð þessa hluta verkefnisins eru lýsingar og áætlanir um útfærslu.

Verkefnið er unnið eftir verkferli þróunarverkefna sem samstarf sveitarfélaga í stafrænum málum hefur skilgreint. Frekari upplýsingar um verkferil er að finna í meðfylgjandi gögnum.
Óskað er eftir áhugasömum sveitarfélögum til að taka þátt í og fjármagna frekari greiningu á verkefninu. Skilafrestur er 10. apríl nk.

Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs upplýsti að UT-teymi sveitarfélagsins fundaði um ofangreint erindi og leggur teymið til að taka ekki þátt, a.m.k. að svo stöddu.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að Dalvíkurbyggð taki ekki þátt í þessu verkefni.

Sveitarstjórn - 389. fundur - 21.04.2026

Á 1179. fundi byggðaráðs þann 9. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 5. mars sl., þar sem Stafræna teymið kannar áhuga sveitarfélaga á að taka þátt í verkefninu „Jónsbók - tenging við skjalakerfi“. Í verkefninu felst að greina leiðir, kostnað og fýsileika þess að þróa tengingu milli skjalakerfa og Jónsbókar. Jónsbók er gervigreindarlausn sem er sérstaklega hönnuð fyrir íslenska lögfræðinga (https://jonsbok.ai/is). Í þessum hluta er sveitarfélögum boðið að taka þátt í að gera greiningu á verkefninu. Afurð þessa hluta verkefnisins eru lýsingar og áætlanir um útfærslu.
Verkefnið er unnið eftir verkferli þróunarverkefna sem samstarf sveitarfélaga í stafrænum málum hefur skilgreint. Frekari upplýsingar um verkferil er að finna í meðfylgjandi gögnum.
Óskað er eftir áhugasömum sveitarfélögum til að taka þátt í og fjármagna frekari greiningu á verkefninu. Skilafrestur er 10. apríl nk.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs upplýsti að UT-teymi sveitarfélagsins fundaði um ofangreint erindi og leggur teymið til að taka ekki þátt, a.m.k. að svo stöddu.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að Dalvíkurbyggð taki ekki þátt í þessu verkefni."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs um að Dalvikurbyggð taki ekki þátt í verkefni Sambands íslenskra sveitarfélaga "Jónsbók - tenging við skjalakerfi".