Ársreikningur Dalvíkurbyggðar 2025 og endurskoðun

Málsnúmer 202512011

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1180. fundur - 16.04.2026

Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs, Þorsteinn G. Þorsteinsson, löggiltur endurskoðandi frá KPMG, Eyrún Rafnsdóttir, sviðsstjóri félagsmálasviðs, Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, og eftirtaldir aðalmenn í sveitarstjórn; Gunnar Kristinn Guðmundsson og Kristinn Bogi Antonsson, kl. 13:15.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi ársreikningur Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2025.

Þorsteinn G. Þorsteinsson, endurskoðandi, fór yfir reikninginn og kynnti helstu niðurstöður.

Þorsteinn, Eyrún, Gunnar Kristinn og Kristinn Bogi viku af fundi kl. 14:07.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ársreikningi Dalvíkurbyggðar 2025 til fyrri umræðu í sveitarstjórn.

Sveitarstjórn - 389. fundur - 21.04.2026

Helgi Einarsson kom á fundinn undir þessum lið kl. 16:24.

Á 1180. fundi byggðaráðs þann 16. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
"Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs, Þorsteinn G. Þorsteinsson, löggiltur endurskoðandi frá KPMG, Eyrún Rafnsdóttir, sviðsstjóri félagsmálasviðs, Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, og eftirtaldir aðalmenn í sveitarstjórn; Gunnar Kristinn Guðmundsson og Kristinn Bogi Antonsson, kl. 13:15.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi ársreikningur Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2025.
Þorsteinn G. Þorsteinsson, endurskoðandi, fór yfir reikninginn og kynnti helstu niðurstöður.
Þorsteinn, Eyrún, Gunnar Kristinn og Kristinn Bogi viku af fundi kl. 14:07.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ársreikningi Dalvíkurbyggðar 2025 til fyrri umræðu í sveitarstjórn."

Helstu niðurstöður úr ársreikningi Dalvíkurbyggðar 2026:
Rekstrarniðurstaða A-hluta er jákvæð um kr. 70.273.000.
Rekstrarniðurstaða A- og B- hluta er jákvæð um kr. 274.465.000.
Veltufé frá rekstri fyrir A- og B- hluta er kr. 479.217.000.
Fjárfesting og framkvæmdir fyrir A- og B- hluta er kr. 658.467.000.
Engin lán voru tekin á árinu. Afborganir lána fyrir A- og B- hluta var 124.248.000.


Til máls tóku:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sem gerði grein fyrir helstu niðurstöðum úr ársreikningi Dalvíkurbyggðar 2025.

Helgi Einarsson
Freyr Antonsson
Kristinn Bogi Antonsson

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að vísa ársreikningi Dalvíkurbyggðar 2025 til síðari umræðu í sveitarstjórn þriðjudaginn 12.maí nk.