Á 1180. fundi byggðaráðs þann 16. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
"Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Óðinn Steinsson, verkefnastjóri þvert á svið kl.15:06.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi viðaukabeiðni frá Framkvæmdasviði vegna veitna:
Vatnsveita liður 44200-11606 hækki nettó um kr. 9.500.000 með eftirfarandi sundurliðun:
Nýtt verkefni; Ljóstæki vatnstankur Upsa, kr. 4.000.000.
Hækkun á verkefni; Hönnun og nýlagnir Hamar, kr. 2.000.000.
Tekið út verkefni; Brattavellir - ljóstæki, kr. -3.000.000.
Nýtt verkefni; Bakkavarnir í landi Bakka, kr. 3.500.000.
Nýtt verkefni; Vatnsöflun Árskógsströnd, kr. 7.000.000.
Tekið út verkefni; Tenging við Engihlíð, Sólvelli og Vallholt, kr. -4.000.000.
Hitaveita liður 48200-11607, nettó breyting lækkun um kr. -29.289.000.
Tekið út verkefni; Djúpdæla HA 11 niðursetning, kr. -16.000.000.
Lækkun á verkefni; Endurnýjun dæli í ÁRS32, kr -4.200.000.
Hækkun á verkefni; Þorvaldsdalur uppgjör v. 2025, kr. 12.411.000.
Hækkun á verkefni; Þorvaldsdalur áætlun 2026, kr. 9.000.000.
Nýtt verkefni; Endurnýjun á dælu í ÁRS29, kr. 15.000.000.
Tekið út verkefni; Sameining borholuskúra; kr. -15.000.000.
Tekið út verkefni; Þak á hitaveitutanki Hamri; kr. -13.900.000.
Tekið út verkefni; Loftræsting á dælustöðvar; kr. - 8.000.000.
Lækkun á verkefni; Kaup á mælum; kr. - 8.000.000.
Búnaðarbeiðni á lið 47310-2810, kaup á Leica GPS staf kr. 3.950.000.
Alls breyting til lækkunar kr. -25.339.000.
Fráveita, liður 74200-11503; nettó breyting hækkun um kr. 19.500.000.
Lækkun á verkefni; Nýlagnir og endurnýjun lagana, kr. -1.000.000.
Nýtt verkefni; Framlenging útrásar á Hauganesi, kr. 18.000.000.
Nýtt verkefni; Endurnýjun stjórnbúnaðar, kr. 2.500.000.
Óðinn gerði grein fyrir ofangreindum viðaukabeiðnum veitna.
Óðinn vék af fundi kl. 15:57.
Niðurstaða : a)Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka, viðauki nr. 17 við fjárhagsáætlun 2026, þannig að fjárfestingar Vatnsveitu hækki um kr. 9.500.000 nettó skv. ofangreindri sundurliðun,
liður 44200-11606. Byggðaráð samþykkir samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé. Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka, viðauka nr. 18 við fjárhagsáætlun 2026, þannig að fjárfestingar Hitaveitu lækki um kr. 29.289.000 skv. ofangreindri sundurliðun, liður
48200-11607. Einnig samþykkir byggðaráð viðaukabeiðni að upphæð kr. 3.950.000 á lið 47310-2810 vegna búnaðarkaupa. Heildarviðaukinn nettó er því lækkun um kr. 25.339.000. Byggðráð samþykkir samhljóða að viðaukanum verði mætt með hækkun á handbæru fé. Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
c) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka, viðauki nr. 18 við fjárhagsáætlun 2026, þannig að fjárfestingar Fráveitu hækki um kr. 19.500.000 nettó skv. ofangreindri sundurliðun,
liður 74200-11503. Byggðaráð samþykkir samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé. Vísaðtil umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."