Frá UT-teymi; Verksamningur um Hillu; viðaukabeiðni vegna skráningu lausafjármuna.

Málsnúmer 202603145

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1179. fundur - 09.04.2026

Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs, dagsett þann 8. apríl sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 til að innleiða skráningakerfi fyrir lausafjármuni sveitarfélagsins samstarfi við Advania. Vísað er til minnisblaðs kerfisstjóra fyrir hönd UT-teymis Dalvíkurbyggðar þar sem lagt er til að gengið verði til samninga við Advania um þessa lausn á grundvelli verksamnings.
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum þá tillögu UT-teymis að gengið verði til samninga við Advania um skráningarkerfi fyrir lausafjármuni sveitarfélagsins.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni við fjárhagsáætlun 2026, viðauka nr. 13, þannig að liður 21400-4391 lækki um kr. 1.100.000 og liður 21400-4331 hækki um sömu fjárhæð á móti.
c) Byggðaráð samþykkir jafnframt samhljóða með 3 atkvæðum að áformum um útboð á tryggingapakka sveitarfélagsins 2026, samkvæmt starfs- og fjárhagsáætlun 2026, verði frestað um eitt ár.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn - 389. fundur - 21.04.2026

Á 1179. fundi byggðaráðs þann 9. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs, dagsett þann 8. apríl sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 til að innleiða skráningakerfi fyrir lausafjármuni sveitarfélagsins samstarfi við Advania.
Vísað er til minnisblaðs kerfisstjóra fyrir hönd UT-teymis Dalvíkurbyggðar þar sem lagt er til að gengið verði til samninga við Advania um þessa lausn á grundvelli verksamnings.
Niðurstaða :
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum þá tillögu UT-teymis að gengið verði til samninga við Advania um skráningarkerfi fyrir lausafjármuni sveitarfélagsins.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni við fjárhagsáætlun 2026, viðauka nr. 13, þannig að liður 21400-4391 lækki um kr. 1.100.000 og liður 21400-4331 hækki um sömu fjárhæð á móti.
c) Byggðaráð samþykkir jafnframt samhljóða með 3 atkvæðum að áformum um útboð á tryggingapakka sveitarfélagsins 2026, samkvæmt starfs- og fjárhagsáætlun 2026, verði frestað um eitt ár.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórn."
Enginn tók til máls.

a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs um að gengið verði til samninga við Advania um skráningarkerfi fyrir lausafjármuni sveitarfélagsins.
b) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 13 við fjárhagsáætlun 2026 þannig að liður 21400-4391 lækki um kr. 1.100.000 og liður 21400-4331 hækki um sömu fjárhæð á móti.
c) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs að áformum um útboð á tryggingapakka sveitarfélagins 2026 verði frestað um eitt ár.