Á 1158. fundi byggðaráðs þann 25. september sl. var eftirfarandi bókað:
"Á 382.fundi sveitarstjórnar þann 16.september sl., var tekin fyrir b) liður bókunar veitu- og hafnaráðs af 148.fundi þess þar sem eftirfarandi var bókað:
b) Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að leggja til við byggðaráð að verbúðirnar fari úr eigu og rekstri Hafnasjóðs/sveitarfélagsins.
Á 1151.fundi byggðaráðs þann 3.júlí sl., var samþykkti byggðaráð samhljóða með 3 atkvæðum að vísa b) lið um sölu verbúða til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn.
Niðurstaða sveitarstjórnar á 382.fundi sínum var eftirfarandi:
Undir þessum lið vék Freyr Antonsson af fundi sveitarstjórnar kl. 17:23 og 1. varaforseti tók við fundarstjórn.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum ofangreinda tillögu veitu- og hafnaráðs um að verbúðirnar fari úr eigu og rekstri Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar.
Freyr Antonsson tekur ekki þátt í umfjöllun og afgreiðslu vegna vanhæfis. Freyr Antonsson kom inn á fundinn að nýju að þessum lið loknum kl. 17:26 og tók við fundarstjórn.
Freyr Antonsson vék af fundi vegna vanhæfis kl. 16:24.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að fela sveitarstjóra að semja við fasteignasölu til þess að sjá um söluferlið á verbúðunum.
Freyr kom aftur til fundar kl. 16:30."
Freyr Antonsson, sem leggur fram eftirfarandi tillögu:
"Verbúðir hafa verið auglýstar til sölu. Tekin verður afstaða til tilboða í fyrsta sinn á byggðaráðsfundi 30. apríl. Eftir það þegar tilboð berast.
Sveitarstjórn óskar eftir því að tilboðsgjafar tilgreini í hverju framtíðarnot á húsnæðinu verða og hvernig viðhaldi þeirra verður háttað.
Byggðaráði og hafnastjóra er hér með falið að annast söluferlið og koma með tillögu til sveitarstjórnar. "
Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu forseta sveitarstjórnar.