Frá UT-teymi; OneSystems; hýsing og oneCore

Málsnúmer 202604016

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1179. fundur - 09.04.2026

Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs, dagsett þann 8. apríl sl., þar sem vísað er til meðfylgjandi minnisblað kerfisstjóra fyrir hönd UT-teymis þar sem fram kemur að lagt er til að farið verði með Onesystems mála- og skjalakerfið í hýsingu hjá Onesystems og keyptar verði þær uppfærslur sem tilgreindar eru í minnisblaðinu. Um er að ræða uppfærslu á OneCore sem er "léttari" útgáfa af skjala- og málakerfinu og nýtist m.a. vel í störfum starfsmanna skóla. Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 1.975.526 við fjárhagsáætlun 2026 vegna þessa.
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að gengið verði til samninga við OneSystems um hýsingu á mála- og skjalakerfi sveitarfélagsins sem og um þær uppfærslur sem hér að ofan greinir og samkvæmt fyrirliggjandi gögnum.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðauka við fjárhagsáætlun 2026, viðauka nr. 15, þannig að liður 21400-4338 hækki um kr 608.666 og liður 21400-4331 hækki um kr. 1.366.860. Byggðaráð samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn - 389. fundur - 21.04.2026

Á 1179. fundi byggðaráðs þann 9. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs, dagsett þann 8. apríl sl., þar sem vísað er til meðfylgjandi minnisblað kerfisstjóra fyrir hönd UT-teymis þar sem fram kemur að lagt er til að farið verði með
Onesystems mála- og skjalakerfið í hýsingu hjá Onesystems og keyptar verði þær uppfærslur sem tilgreindar eru í minnisblaðinu. Um er að ræða uppfærslu á OneCore sem er "léttari" útgáfa af skjala- og málakerfinu og nýtist m.a.
vel í störfum starfsmanna skóla. Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 1.975.526 við fjárhagsáætlun 2026 vegna þessa.
Niðurstaða : a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að gengið verði til samninga við OneSystems um hýsingu á mála- og skjalakerfi sveitarfélagsins sem og um þær uppfærslur sem hér að ofan greinir og samkvæmt fyrirliggjandi gögnum.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðauka við fjárhagsáætlun 2026, viðauka nr. 15, þannig að liður 21400-4338 hækki um kr 608.666 og liður 21400-4331 hækki um kr. 1.366.860. Byggðaráð samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.
a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og samþykkir að gengið verði til samninga við OneSystems um hýsingu á mála- og skjalakerfi sveitarfélagsins sem og þær uppfærslur sem lagðar eru til á fyrirliggjandi gögnum.
b) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 15 við fjárhagsáætlun 2026 þannig að liður 21400-4338 hækki um kr. 608.666 og liður 21400-4331 hækki um kr. 1.366.866. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.