Byggðaráð

1165. fundur 30. október 2025 kl. 13:15 - 17:50 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Helgi Einarsson formaður
  • Freyr Antonsson varaformaður
  • Lilja Guðnadóttir, aðalmaður boðaði forföll og Monika Margrét Stefánsdóttir varamaður, sat fundinn í hans stað.
Starfsmenn
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
Í upphafi fundar var óskað heimildar að bæta máli 202012002 á dagskrá, erindisbréf vinnuhóps um húsnæðisáætlanir, og var það samþykkt.

1.Vinnuhópur um leiksvæði; skýrsla

Málsnúmer 202509011Vakta málsnúmer

Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Helga Íris Ingólfsdóttir, deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar og Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, kl. 13.15. Ofangreind skipa vinnuhóp um leiksvæði og leikvelli sveitarfélagsins ásamt formanni umhverfis- og dreifbýlisráðs og formanni fræðsluráðs.

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi skýrsla vinnuhópsins. Tilgangur skýrslunnar er að veita yfirsýn yfir ástand leiktækja og leiksvæða, greina viðhaldsþörf og leggja fram tillögur um endurnýjun, lokun og framtíðarskipulag. Skýrslan byggir á vettvangsathugunum og samráð innan vinnuhópsins og er hugsuð sem stefnumótandi verkfæri fyrir kjörna fulltrúa og aðra sem koma að skipulagi og þróun leiksvæða í Dalvíkurbyggð.

Helga Íris og Gísli kynntu skýrslu vinnuhópsins.

Helga Íris vék af fundi kl. 13:25.
Byggðaráð þakkar vinnuhópnum fyrir skýrsluna og vinnuna.

2.Frá 178. fndi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 30.09.2025; Fjárhagsáætlun 2026; fjármögnun starfsmanns UMFS.

Málsnúmer 202508068Vakta málsnúmer

Jón Stefán Jónsson, íþróttafulltrúi, kominn inn á fundinn kl. 13:26.

Á 178. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 30. september sl. var eftirfarandi bókað:
"Umræður um ósk UMFS um styrk til ráðningar starfsmanns fyrir félagið. Ljóst er að ekkert verður af því að UMSE og UMFS verði með sameiginlegan starfsmann og því þarf að endurmeta möguleikana.
Niðurstaða : Íþrótta - og æskulýðsráð er fylgjandi því að starfsmaður verði ráðinn og vísar málinu til Byggðaráðs Dalvíkurbyggðar í vinnu við fjárhagsáætlun fyrir fjárhagsárið 2026. Íþrótta - og æskulýðsráð óskar eftir að íþróttafulltrúi fylgir málinu eftir inn í Byggðaráð."

Íþróttafulltrúi gerði grein fyrir ofangreindu og mögulegri sviðsmynd fyrir samstarfi íþrótta- og æskulýðsfélaganna í Dalvíkurbyggð og hvernig stöðugildi starfsmanns kæmi mögulega þar inn.

Jón Stefán vék af fundi kl.14:05.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela íþróttafulltrúa og íþrótta- og æskulýðsráði að vinna áfram að ofangreindum hugmyndum.

3.Trúnaðarmál

Málsnúmer 202505046Vakta málsnúmer

Bókað í trúnaðarmálabók.
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, vék af fundi kl. 14:24.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2025, viðauka nr. 51, að upphæð kr. 896.000 á lið 04290-4990, og að honum verði mætt með lækkun á handbæru fé. Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

4.Frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar; Vinnuhópur um húsnæði byggðasafnsins; viðaukabeiðni sbr. 382. fundur sveitarstjórnar. Viðauki #52

Málsnúmer 202503032Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi um viðauka frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar, en á fundi sveitarstjórnar þann 16. september sl., var henni falið að sækju um viðauka fyrir þeim kostnaði sem fellur til á þessu ári vegna tillagna vinnuhóps um viðbyggingu við Berg vegna húsnæði fyrir byggðasafn.

Samkvæmt meðfylgjandi rökstuðningi deildarstjóra kemur fram að óskað er eftir kr. 2.000.000 viðauka á lið 32200-11860 vegna vinnu við undirbúning og frumkostnaðaráætlunar fyrir nýtt Byggðasafn. Fram kemur að deildarstjóri og forstöðumaður safna og Menningarhúss hafa leitað til hönnuðs Menningarhússins Bergs varðandi frumhönnun að nýju Byggðasafni.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauka nr. 52 við fjárhagsáætlun 2025, þannig að liður 3220011860 hækki um kr. 2.000.000. Byggðaráð samþykkir jafnframt að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

5.Frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar; Endurbætur á aðstöðu fyrir netþjóna Dalvíkurbyggðar; viðaukabeiðni. Viðauki #53.

Málsnúmer 202509081Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar, dagsett þann 22. október sl., þar sem óskað er viðauka við fjárhagsáætlun 2025 vegna endurbóta á aðstöðu fyrir netþjóna sveitarfélagsins. Gert var ráð fyrir þessu verkefni í fjárhagsáætlun ársins 2024 en ekki varð úr því þá.

Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 5.400.000 á deild 48200-11605.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauki nr. 53 við fjárhagsáætlun 2025, á lið 48200-11605 þannig að hækki um kr. 5.400.000. Byggðaráð samþykkir að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

6.Frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs; Framlög Jöfnunarsjóðs 2025; viðaukabeiðni; viðauki #54

Málsnúmer 202510125Vakta málsnúmer

Tekið fyrir minnisblað frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs, dagsett þann 28. október sl., þar sem lagður er til viðauki við fjárhagsáætlun 2025 vegna breytinga á framlögum úr Jöfnunarsjóði skv. nýjustu upplýsingum, en nettó hækkunin er kr. -19.844.393. Fram kemur að Dalvíkurbyggð er úthlutað tekjujöfnunarframlagi að upphæð kr. -16.526.133, liður 00100-0111.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauka nr. 54 við fjárhagsáætlun 2025, þannig að deild 00100 hækki um kr. -19.844.393 og dreifist á lykla í samræmi við meðfylgjandi sundurliðun.
Byggðaráð samþykkir samhljóða að viðaukanum verði mætt með hækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

7.Starfs- og fjárhagsáætlun 2026-2029; tillaga að fjárhagsáætlunarlíkani

Málsnúmer 202505063Vakta málsnúmer

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi frumvarp að fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2026 og þriggja ára áætlun 2027-2029 ásamt fylgigögnum og ítarefni.

Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti helstu niðurstöður og forsendur.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2026 og þriggja ára áætlun 2027-2029 til fyrri umræðu í sveitarstjórn 4. nóvember nk.

8.Þjónustustefna skv. sveitarstjórnarlögum; drög #1

Málsnúmer 202505031Vakta málsnúmer

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi fyrstu drög að Þjónustustefnu Dalvíkurbyggðar í samræmi við sveitarstjórnarlög. Þjónustustefnan er hluti af fjárhagsáætlun. Drögin eru unnin af hverju fagsviði fyrir sig og sett saman í eina heildarstefnu.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindum drögum að Þjónustustefnu til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leitað verði umsagna íbúa sveitarfélagsins við Þjónustustefnuna á milli umræða með því að auglýsa hana á vefmiðlum sveitarfélagsins og íbúum þannig gefinn kostur á að koma með ábendingar.

9.Samþykkt um starfskjör, laun og þóknanir kjörinna fulltrúa; endurskoðun

Málsnúmer 202401035Vakta málsnúmer

Á 1116. fundi byggðaráðs þann 15. ágúst 2024 var eftirfarandi bókað:"Á 365. fundi sveitarstjórnar þann 23. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
Á 1092. fundi byggðaráðs þann 11. janúar sl. var eftirfarandi bókað: Með fundarboði byggðaráðs fylgdi ný tillaga sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að samþykkt um starfskjör, laun og þóknanir kjörinna fulltrúa Dalvíkurbyggðar. Drögin hafa fengið umsögn framkvæmdastjórnar og ekki komu fram athugasemdir.Niðurstaða:Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi drög að samþykktinni með breytingu á 1. mgr.í 13. lið og vísar henni til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
Niðurstaða:Til máls tóku:
Kristinn Bogi Antonsson. Freyr Antonsson. Fleiri tóku ekki til máls. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að samþykkt um starfskjör, laun og þóknanir kjörinna fulltrúa í Dalvíkurbyggð.
Á fundinum var farið fyrir tillögu að breytingum / leiðréttingum á ofangreindu þannig að liðurinn að aðalmenn í byggðaráði fái 3% af þingfararkaupi fyrir hvern fund falli út.
Til umræðu ofangreint.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu og að hún taki gildi frá 1.1.2024."

Með fundaboði byggðaráðs fylgdi gildandi Samþykkt um starfskjör, laun og þóknana kjörinna fulltrúa til yfirferðar og endurskoðunar.
Til umræðu ofangreint.
AFgreiðslu frestað og unnið áfram að ofangreindu á fundum byggðaráðs.

10.Gjaldskrár 2026; tillögur fagráða.

Málsnúmer 202508069Vakta málsnúmer

Með fundarboði byggðaráðs fylgdu tillögur fagráða að gjaldskrám sveitarfélagsins fyrir árið 2026.
https://www.dalvikurbyggd.is/is/stjornsysla/fjarmal-og-rafraen-stjornsysla/gjaldskrar
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
b) Aðrar gjaldskrár verða áfram í umfjöllun byggðaráðs.

11.Frá Akureyrarbæ; Barnaverndarþjónusta; ný drög að samningi

Málsnúmer 202212124Vakta málsnúmer

Á 382. fundi sveitarstjórnar þann 16. september sl. var m.a. eftirfarandi bókað:
Með fundarboði byggðaráðs fylgdu eftirfarandi gögn frá Akureyrarbæ:
Drög að samningi um Barnaverndarþjónustu á Norðurlandi eystra á milli sveitarfélaganna Akureyrarbæjar, Dalvíkurbyggðar, Eyjafjarðarsveitar, Fjallabyggðar, Grýtubakkahrepps, Hörgársveitar, Langanesbyggðar, Norðurþings, Svalbarðsstrandarhrepps, Tjörneshrepps og Þingeyjarsveita, móttekið 21. ágúst sl.
Frumuppkast vegna kostnaðar Barnaverndar, móttekið 22.08.2025.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi drög að samningi við Akureyrarbær um Barnaverndaþjónustu og vísar samningi til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdi jafnframt fylgiskjal með samningi um barnaverndarþjónustuna á Norðurlandi eystra; Samþykkt um fullnaðarafgreiðslu mála hjá Barnaverndarþjónustunni á Norðurlandi eystra samkvæmt 3. mgr. 12. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
Niðurstaða : Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum að vísa ofangreindum samningi um barnaverndarþjónustu á Norðurlandi ásamt fylgiskjali með Samþykkt um fullnaðarafgreiðslu til síðari umræðu í sveitarstjórn."

Með fundarboði byggðaráðs fylgdu uppfærð drög að ofangreindum samningi. Engar efnislegar breytingar hafa verið gerðar annað en af því að samningurinn gildir einnig fyrir desember á þessu ári var settur inn texti í samninginn þar sem fram
kemur að þeir sem voru aðilar samningar greiða eins og þeir hafa gert ráð fyrir en sérstaklega er tekið fram hvað Dalvíkurbyggð og Fjallabyggð eiga að greiða. Upphæðin sem Dalvíkurbyggð á að greiða í desember 2025 er kr. 1.674.358.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindum samningsdrögum til síðari umræðu í sveitarstjórn.

12.Frá sveitarstjóra; Veitur Dalvikurbyggðar, mögulegt samstarf við Norðurorku

Málsnúmer 202510053Vakta málsnúmer

Á 1162. fundi byggðaráðs þann 16. október sl. vr eftirfarandi bókað:
"Sveitarstjóri kynnti hugmyndir um tímabundið samstarf á milla veitna Dalvíkurbyggðar og Norðurorku um að Norðurorka komi að rekstri og veiti jafnvel einhverja aðstoð við verkefni á vettvangi veitna. Fram kom að Norðurorka er tilbúin að taka að sér verkefni fyrir Dalvíkurbyggð.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að vinna áfram að ofangreindu í formi tímabundinnar úrlausna."

Sveitarstjóri lagði fram til kynningar drög að samningi á milli Dalvíkurbyggðar og Norðurorku um ráðgjöf og þjónustu við rekstur vatns-, hita-, og fráveítu í Dalvíkurbyggð.
AFgreiðslu frestað.

13.Frá sveitarstjóra; Viðræður um inngöngu í Hafnasamlag Norðurlands; tilboð í könnun á sameiningu

Málsnúmer 202506144Vakta málsnúmer

Á 382. fundi sveitarstjórnar þann 16. september sl. var m.a. eftirfarandi bókað:
"Forseti sveitarstjórnar sem leggur til að sveitarstjórn samþykki að taka aftur upp viðræður við Hafnasamlag Norðurlands um inngöngu Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar í samlagið og að viðræðuhópinn skipi Byggðarráð, formaður og varaformaður veitu-og hafnaráðs ásamt hafnarstjóra.
Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum ofangreinda tillögu forseta sveitarstjórnar."

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tilboð frá HLH ráðgjöf, dagsett þann 24. október sl., í vinnu vegna greiningar á sameiningu Hafnasamlags Norðurlands og Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreint tilboð fyrir sitt leyti og felur sveitarstjóra að leggja fyrir sveitarstjórn viðaukabeiðni vegna þessa verkefnis.

14.Frá Byggðastofnun; Byggðaráðstefna 2025 haldin 4.nóvember 2025

Málsnúmer 202510075Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir rafpóstur frá Byggðastofnun, dagsettur þann 14. október sl., þar sem vakin er athygli á Byggðaráðstefnunni 2025 sem verður haldinn nk. þriðjudag í Skjólbrekku Mývatnssveit. Einnig er hægt að fylgjast með í streymi.

Lagt fram til kynningar.

15.Erindi frá Markaðsstofu Norðurlands; flugklasinn Air 66N

Málsnúmer 202510113Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Markaðsstofu Norðurlands, dagsett þann 27. október sl., þar sem Markaðsstofa Norðurlands óskar eftir stuðningi sveitarfélagsins að upphæð 500 kr. á hvern íbúa fyrir árið 2026 vegna fjármögnunar á Flugklasanum. Í tillögu að fjárhagsáætlun 2026 er gert ráð fyrir kr. 988.000.
Lagt fram til kynningar.

16.Frá SSNE; Styrkbeiðni Fjölskylduþjónustu Norðurlands eystra

Málsnúmer 202510051Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Fjölskylduþjónustu Norðurlands eystra, þar sem sótt er um styrk vegna verkefnsins, eða kr. 995.000 frá Dalvíkurbyggð. Verkefnið er hugsað sem 24 mánaða tilraunaverkefni á árunum 2026-2027. Verkefnið er hugsað þannig að Akureyrarbær sjái um vistun og umsýslu verkefnis en vinni það í samvinnu við þau sveitarfélög á Norðurlandi eystra sem vilja taka þátt í og eiga aðgang að úrræðinu. Þetta verkefni er sérstaklega mikilvægt fyrir smærri sveitarfélög þar sem aðgengi að sérhæfðri þjónustu er takmarkað.

Mennta- og barnamálaráðuneytið veitti Akureyrarbæ 70 m.kr. styrk í verkefnið sem er nýtt meðferðarúrræði., áætlaður kostnaður við verkefnið er um 90 m.kr.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til umfjöllunar í félagsmálaráði og fræðsluráði.

17.Trúnaðarmál

Málsnúmer 202510085Vakta málsnúmer

Bókað í trúnaðarmálabók.

18.Frá Innviðaráðuneytinu; Frumvarp til laga um breytingar á sveitarstjórnarlögum nr. 1382011

Málsnúmer 202510056Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir rafpóstur frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis, dagsettur þann 15. október sl., þar sem Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnarfrumvarp til laga um sveitarstjórnarlög (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn), 81. mál
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 29. október nk.
Lagt fram til kynningar.

19.Frá Alþingi; Til umagnar. Frumvarp til laga um vegalög (þjóðferjuleiðir). 66. mál

Málsnúmer 202510070Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir rafpóstur frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis, dagsettur þann 15. október sl., þar sem Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnarfrumvarp til laga um vegalög (þjóðferjuleiðir), 66. mál. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 29. október nk.
Lagt fram til kynningar.

20.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025; fundarerð nr. 987.

Málsnúmer 202502019Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.nr. 987 frá 21. október sl.
Lagt fram til kynningar.

21.Frá Eignahaldsfélaginu Brunabótafélag Íslands; Tilkynning-Ágóðahlutur til aðildarsveitarfélaga EBÍ

Málsnúmer 202510126Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Eignahaldsfélagi Brunabótafélags Íslands, dagsett þann 27. október sl., þar sem fram kemur að ágóðahlutagreiðsla til Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2025 er kr. 842.000. Gert er ráð fyrir þessari upphæð í fjárhagsáætlun 2025.
Lagt fram til kynningar.

22.Húsnæðisáætlun - vinnuhópur- erindisbréf

Málsnúmer 202012002Vakta málsnúmer

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi uppfærð tillaga að erindisbréfi fyrir vinnuhóp starfsmanna um húsnæðisáætlun Dalvíkurbyggðar.
Byggðaráð samþykkir samljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að erindisbréfi vinnuhópsins og vísar því til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

Fundi slitið - kl. 17:50.

Nefndarmenn
  • Helgi Einarsson formaður
  • Freyr Antonsson varaformaður
  • Lilja Guðnadóttir, aðalmaður boðaði forföll og Monika Margrét Stefánsdóttir varamaður, sat fundinn í hans stað.
Starfsmenn
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs