Málsnúmer 202509144Vakta málsnúmer
Undir þessum lið mætti á fundinn Gísli Bjarnson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, kl. 14:07.Jón Stefán Jónsson, íþróttafulltrúi, boðaði forföll.
Á 384. fundi sveitarstjórnar þann 18.nóvember sl. var fjárfestingasamningur á milli Dalvíkurbyggðar og Hestamannafélgsins Hrings vegna byggingu reiðhallar í Hringsholti tekinn til umfjöllunar og afgreiðslu. Fyrirliggjandi samningur var samþykktur samhljóða. Styrktarfjárhæð er alls 133 m.kr.
Á 185. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 3. mars sl. var eftirfarandi bókað:
"Hestamannafélagið Hringur hefur óskað eftir að samningur um byggingu nýrrar reiðhallar félagsins við Dalvíkurbyggð verði tekinn upp og styrktarupphæðir endurskoðaðar. Fyrirliggjandi kostnaðaráætlun við framvkæmdina frá félaginu.
Niðurstaða : Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir með fjórum atkvæðum, uppfærðan samning sveitarfélagsins við Hestamannafélagið Hring."
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað íþróttafulltrúa, dagsett þann 10. mars sl., þar sem farið er yfir ferlið við gerð samningsins um styrk til Hestamannafélagsins Hrings til byggingu reiðhallar. Við upptöku samningsins er nú lagt til að styrktarfjárhæðin verði alls 170 m.kr.
Til umræðu ofangreint.