Á 379. fundi sveitarstjórnar þann 15. apríl sl. var eftirfarandi bókað:
"Á 377.fundi sveitarstjórnar þann 18.febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og lokadrög vegna verðfyrirspurnar um rekstur tjaldsvæðis á Dalvík.
Á 1144.fundi byggðaráðs þann 10.apríl var eftirfarandi bókað:
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar, dagsett þann 24. mars sl., þar sem gert er grein fyrir niðurstöðum úr verðfyrirspurn vegna tjaldsvæðisins á Dalvík. Tvö tilboð bárust; frá Draumablá ehf. og frá EB ehf. Eftir yfirferð og skoðun tilboða er lagt til að gengið verði til samninga við Draumablá ehf. um rekstur á tjaldsvæðinu á Dalvík frá 15. apríl 2025 til 1. október 2027.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að gengið verði til samninga við Draumablá. Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn. Lilja Guðnadóttir tekur ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis."
Niðurstaða : Til máls tók:
Katrín Sif Ingvarsdóttir lýsir yfir vanhæfi sínu við umfjöllun og afgreiðslu málsins og vék af fundi kl. 16:58
Sveitarstjórn samþykkir með 5 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs að gengið verði til samninga við Draumablá ehf. frá 15.apríl 2025 til 1.október 2027, með möguleika á framlengingu tvisvar sinnum í eitt ár í senn.
Lilja Guðnadóttir og Katrín Sif Ingvarsdóttir komu aftur til fundar kl. 17:00."
Með fundarboði byggðaráðs fylgdu drög að samningi um rekstur og umsjón tjaldsvæðisins á Dalvík við Draumablá ehf.