Umhverfisráð

311. fundur 19. október 2018 kl. 08:15 - 11:45 í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Haukur Gunnarsson Formaður
  • Eva Björg Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Helga Íris Ingólfsdóttir aðalmaður
  • Friðrik Vilhelmsson varamaður
  • Snæþór Vernharðsson varamaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá
Monika Margrét Stefánsdóttir boðaði forföll og í hennar stað mætti Friðrik Vilhelmsson.
Lilja Bjarnadóttir boðaði einnig forföll og í hennar stað mætti Snæþór Vernharðsson

1.Húsnæðismál og bygging

Málsnúmer 201808074Vakta málsnúmer

Trúnaðarmál 201808074.
Undir þessum lið kom inn á fundinn Eyrún Rafnsdóttir sviðsstjóri félagsmálasviðs kl. 08:15.
Bókað í trúnaðarmálabók
Eyrún vék af fundi kl.08:27.

2.Lagning 11kV jarðstrengs að hafnarsvæði Dalvíkur

Málsnúmer 201809005Vakta málsnúmer

Á 309. fundi umhverfisráðs þann 3. september var eftirfandi bókað:
"Umhverfisráð getur ekki fallist á umbeðna lagnaleið og óskar eftir því að strengirnir verði lagðir meðfram þjóðveginum að Skíðabraut 21til þess að minnka rask í Friðlandi Svarfdæla.
Sviðsstjóra er falið að óska eftir nýrri tillögu."
Til kynningar ný tillaga frá RARIK dags. 6. septeber 2018
Umhverfisráð felur sviðsstjóra að veita umbeðið framkvæmdarleyfi miðað við breytta legu strengjanna, en ráðið leggur áherslu á að umsagnir frá Umhverfisstofnun, Hafrannsóknarstofnun, Fiskistofu, veiðifélagi Svarfaðardalsár og Vegagerðarinnar liggi fyrir áður en framkvæmdir hefjast.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

3.Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 201810057Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 2. október 2018 óskar Hjörleifur Stefánsson eftir byggingarleyfi fyrir skemmu að Gullbringulæk samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknin og felur svisstjóra að veita umbeðið byggingarleyfi með fyrirvara um að fornleifum verði ekki raskað.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

4.Friðland Svarfdæla - Vegna fjárhagsáætlunar 2019

Málsnúmer 201808076Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Hjörleifi Hjartarsyni, dagsett þann 18. ágúst 2018, þar sem Hjörleifur minnir á að við gerð fjárhagsáætlunar 2019 þurfi að gera ráð fyrir verkefnum tengdum Friðlandi Svarfdæla sem áður voru á höndum Náttúruseturs á Húsabakka.
Umhverfisráð þakka Hjörleifi erindið.
Á 883. fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað.
" a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að óska eftir fundi með Umhverfisstofnun við fyrsta tækifæri í Dalvíkurbyggð svo hægt sé að ljúka málinu hið fyrsta.

b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til að gert verði ráð fyrir kr. 1.000.000 á fjárhagsáætlun 2019 vegna Friðlands Svarfdæla; viðhald og uppbygging. "

Umhverfisráð óskar eftir lista frá umhverfisstjóra yfir forgangsröðun verkefna fyrir árið 2019 miðað við þá fjármuni sem ætlaðir eru í Friðlandið.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

5.Aukin vetrarþjónusta og hálkuvarnir í Svarfaðardal

Málsnúmer 201801038Vakta málsnúmer

Til umræðu svar Vegagerðarinnar vegna vetrarþjónustu í Svarfaðar- og Skíðadal.
Undir þessum lið kom á fundinn Heimir Gunnarsson frá Vegagerðinni kl. 09:00.
Umhverfisráð leggur til að forsendur verði óbreyttar frá fyrri ákvörðun Vegagerðarinnar.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

6.Umferðarhraði á þjóðvegum í þéttbýli Dalvíkurbyggðar

Málsnúmer 201809040Vakta málsnúmer

Til umræðu umferðarhraði á þjóðvegum í þéttbýli Dalvíkurbyggðar
Heimir vék af fundi kl. 09:29
Umhverfisráð þakkar Heimi fyrir greinagóða yfirferð á fyrirhuguðum verkefnum Vegagerðarinnar á næsta ári. Ráðið felur sviðsstjóra eftirfarandi.

1. Kanna möguleika á flutningi á spennistöð RARIK við Hafnarbraut 28 vegna fyrirhugaðra framkvæmda við gatnamót Skíðabraut/Hafnarbraut/Grundargata.
2. Senda erindi á Vegagerðina vegna óskar um nýja gangbraut og bílastæði við Skíðabraut 7a
3. Senda umsókn til Vegamálastjóra um göngustíg frá Olís að Árgerði þar sem göngustígurinn er komin inn á gildandi skipulag.
4.Ráðið óskar eftir staðfestingu frá Vegagerðinni um að farið verði í yfirlögn á Skíðabraut og Hafnarbraut samhliða framkvæmdinni við gatnamót Skíðabrautar/Hafnarbrautar/Grundargötu.

7.Ósk um uppsetningu á gangbraut við Skíðabraut

Málsnúmer 201810017Vakta málsnúmer

Með innsendum rafpósti dags. 1. október 2018 óska þau Margrét Víkingsdóttir og Vignir Þór Hallgrímsson eftir því að sett verði upp gangbraut yfir Skíðabraut á Dalvík, sunnan við gatnamótin á Mímisvegi og Skíðabraut ásamt niðurtekt fyrir bílastæði sunnan við Skíðabraut 7a.
Vísað í fyrri bókun undir máli nr. 201809040.

8.Opið svæði milli Svarfaðarbrautar og Goðabrautar ( gæsluvöllur ).

Málsnúmer 201604142Vakta málsnúmer

Til umræðu framtíðaskipulag á opnu svæði milli Svarfaðarbrautar og Goðabrautar
(gæsluvöllur).
Ráðið leggur áherslu á að við endurskoðun Aðalskipulags Dalvíkurbyggðar verði ákveðið hvað gert verði við svæðið.

9.Framkvæmdir við áningarstað 2018

Málsnúmer 201809001Vakta málsnúmer

Til kynningar og umræðu staða framkvæmda við áningarstað við Hrísatjörn.
Ráðið lýsir áhyggjum sýnum á aðkomu að svæðinu og leggur til að gatnamótin verði útfærð betur með umferðaöryggi í huga.
Sviðsstjóra falið að ræða við Vegagerðina um málið.

Lagt fram til kynningar

10.Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 201809142Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 17. september 2018 óskar Jórunn Arnbjörg Magnúsdóttir eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Goðabraut 11, Dalvík samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umóknina með fyrirvara um jákvæðar undirtektir úr grendarkynningu.
Umhverfisráð felur sviðsstjóra að grendarkynna framkvæmdina eftirfarandi nágrönnum:
Goðabraut 9 og 13
Bjarkarbraut 6

Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

11.Umsókn um lóð

Málsnúmer 201810072Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 15. október 2018 sækja þau Anita Aanesen og Guðmundur Pálsson um lóðina við Hringtún 24, Dalvík samkvæmt meðfylgjandi umsókn.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknin og felur sviðsstjóra að ganga frá lóðarleigusamningi.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

12.Deiliskipulag í landi Laugahlíðar

Málsnúmer 201810073Vakta málsnúmer

Til kynningar er skipulagslýsing dags. 19. október 2018 vegna deiliskipulags í landi Laugahlíðar Svarfaðardal.
Fyrirhugað er að ljúka vinnu við deiliskipulag íbúðar- og þjónustusvæðis, auk þess að fjölga íbúðarlóðum samkvæmt samþykktu aðalskipulagi.
Sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs er falið að leita umsagnar um hana hjá umsagnaraðilum og Skipulagsstofnun og að kynna hana almenningi í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

13.Umsókn um byggingarleyfi við Hrigtún 9, Dalvík

Málsnúmer 201810075Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 17. október 2018 óskar Fanney Hauksdóttir AVH fyrir hönd Tréverks ehf eftir byggingarleyfi á lóðinni Hringtún 9 samkvæmt meðfylgjandi gögnum.

Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknin og felur sviðsstjóra að veita umbeðið byggingarleyfi.

Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

14.Umsókn um byggingarleyfi við Hringtún 11

Málsnúmer 201810076Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 17. október 2018 óskar Fanney Hauksdóttir AVH fyrir hönd Tréverks ehf eftir byggingarleyfi á lóðinni Hringtún 11 samkvæmt meðfylgjandi gögnum.

Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknin og felur sviðsstjóra að veita umbeðið byggingarleyfi.

Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

15.Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2019 - 2023 , 172. mál.

Málsnúmer 201810064Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 12. október 2018 óskar Hildur Edwald fyrir hönd Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis eftir umsögn vegna þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2019-2023, 172 mál.
Lagt fram til kynningar
Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar vill koma eftirfarandi umsögn á framfæri.
Ráðið harmar að framkvæmdir við vegi 805,02-03 og 807,02-03 sem eru framdalir Svarfaðar og Skíðdals, séu ekki inni á tillögu að fimm ára samgönguáætlun.
Ráðið felur sviðsstjóra að óska eftir fundi með Vegagerðinni vegna málsins.

16.Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2019 -2033 , 173. mál.

Málsnúmer 201810065Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 12. október 2018 óskar Hildur Edwald fyrir hönd Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis eftir umsögn vegna þingsályktunar um samgönguáætlun 2019-2033, 173 mál.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.

17.Fjárhagsáætlun 2019; erindi frá íbúum Túnahverfis

Málsnúmer 201809002Vakta málsnúmer

Til umræðu innsent erindi frá Önnu Kristínu Guðmundsdóttur dags. 26. september 2018 þar sem óskað er nánari rökstuðnings vegna áður innsends erindis frá íbúum Túnahverfis.
Umhverfisráði er falið að forgangsraða afar takmörkuðum fjármunum til margra mismunandi verkefna um allt sveitafélagið. Í vinnu við gerð framkvæmdaráætlunar töldum við mörg eldri verkefni brýnni.

18.Yfirlit yfir lögmælt verkefni sveitarfélaga

Málsnúmer 201809095Vakta málsnúmer

Til kynningar yfirlit dags. 21.09.2018 frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti um lögmælt verkefni sveitarfélaga skv. 1.mgr.7.gr.sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Yfirlitinu er ætlað til leiðbeiningar fyrir sveitarfélög við stefnumótun og áætlanagerð ásamt því að auðvelda umræðu og yfirsýn yfir skyldur og hlutverk sveitarfélaga. Lögmælt verkefni sveitarfélaga er flokkuð eftir málaflokkum og hvort um lögskyld eða lögheimil verkefni er að ræða. Verkefni er lögskyld ef sveitarfélögum er skylt að rækja þau. Í lögheimilum verkefnum felst að sveitarfélag hefur svigrúm til þess að ákveða hvort verkefninu er sinnt.
Lagt fram til kynningar.

19.Hreinsunarátak á iðnaðarlóðum í Dalvíkurbyggð.

Málsnúmer 201807010Vakta málsnúmer

Undir þessum lið mætti Valur Þór Hilmarsson umhverfisstjóri kl. 11:18
Farið yfir stöðu mála eftir útsendingu á bréfi vegna hreinsunarátaks.
Valur Þór vék af fundi kl. 11:45.
Umhverfisráð þakka Val fyrir yfirferðina og leggur til að sent verði ítrekunarbréf á þá aðila sem ekki hafa orðið að neinu leyti við ábendingum.

Fundi slitið - kl. 11:45.

Nefndarmenn
  • Haukur Gunnarsson Formaður
  • Eva Björg Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Helga Íris Ingólfsdóttir aðalmaður
  • Friðrik Vilhelmsson varamaður
  • Snæþór Vernharðsson varamaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs