Sveitarstjórn

387. fundur 17. febrúar 2026 kl. 16:15 - 17:52 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Freyr Antonsson aðalmaður
  • Sigríður Jódís Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Katrín Sif Ingvarsdóttir aðalmaður
  • Helgi Einarsson aðalmaður
  • Gunnar Kristinn Guðmundsson aðalmaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
  • Kristinn Bogi Antonsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
Engar athugasemdir við fundarboð eða fundarboðun.

1.Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 1173; frá 29.01.2026

Málsnúmer 2601010FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 10 liðum.
Liður 1 er sér mál á dagskrá; mál 202411089.
Liður 2 er sér mál á dagskrá, mál 202601105.
Liður 8 er sér mál á dagskrá; mál 202601057.
Enginn tók til máls.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

2.Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 1174; frá 12.02.2026

Málsnúmer 2602005FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 22 liðum.
Liður 1 er sér mál á dagskrá; mál 202411089.
Liður 4 er sér mál á dagskrá; mál 202110061.
Liður 5 er sér mál á dagskrá; mál 202602008.
Liður 7 er sér mál á dagskrá; mál 202602011.
Liður 8 er sér mál á dagskrá; mál 202506144.
Liður 10 er sér mál á dagskrá; mál 202512010.
Liður 12 er sér mál á dagskrá; mál 202602039.
Liður 15 er sér mál á dagskrá; mál 202602003.
Liður 16 er sér mál á dagskrá; mál 202602027.
Liður 22 er sér mál á dagskrá; mál 202602055.
Enginn tók til máls.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

3.Félagsmálaráð - 293; frá 10.02.2026

Málsnúmer 2601007FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 11 liðum.
Liður 5 er sér mál á dagskrá; mál 202512037.
Liður 6 er sér mál á dagskrá; mál 202601017.
Enginn tók til máls.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

4.Fræðsluráð - 313; fá 11.02.2026

Málsnúmer 2602003FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 10 liðum.
Liður 2 er sér mál á dagskrá; mál 202602032.
Liður 6 er sér mál á dagskrá; mál 202601070.
Liður 8 er sér mál á dagskrá; mál 202602034.
Enginn tók til máls.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

5.Íþrótta- og æskulýðsráð - 183; frá 17.01.2026

Málsnúmer 2601009FVakta málsnúmer

Fundargerðin er 1 liður og ekkert þarfnast afgreiðslu.
Enginn tók til máls.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

6.Íþrótta- og æskulýðsráð - 184; frá 03.02.2026

Málsnúmer 2601011FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 5 liðum.
Liður 2 er sér mál á dagskrá; mál 202512008.
Enginn tók til máls.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

7.Skipulagsráð - 43; frá 11.02.2026

Málsnúmer 2602004FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 10 liðum.
Ekkert þarfnast afgreiðslu.
Enginn tók til máls.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

8.Umhverfis- og dreifbýlisráð - 40; frá 06.02.2026

Málsnúmer 2601002FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 8 liðum.
Liður 2 er sér mál á dagskrá; mál 202601085.
Liður 8 er sér mál á dagskrá; mál 202512014.
Enginn tók til máls.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

9.Ungmennaráð - 48; frá 04.02.2026

Málsnúmer 2602002FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 6 liðum.
Ekkert þarfnast afgreiðslu.
Enginn tók til máls.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

10.Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 153; frá 04.02.2026

Málsnúmer 2602001FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 13 liðum og ekkert þarfnast afgreiðslu.
Enginn tók til máls.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

11.Frá 1173. fundi byggðaráðs þann 29.01.2026; viðauki #5

Málsnúmer 202601105Vakta málsnúmer

Á 1173. fundi byggðaráðs þann 29. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðaukabeiðni nr. 5 við fjárhagsáætlun 2026 að upphæð kr.10.911.097.
Byggðaráð samþykkir samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 5 við fjárhagsáætlun 2026 að upphæð kr.10.911.097.
Sveitarstjórn samþykkir jafnframt að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.

12.Frá 1174. fundi byggðaráðs þann 12.02.2026; Fjárfestingar og framkvæmdir 2026; viðauki #6.

Málsnúmer 202602011Vakta málsnúmer

a) Á 1174. fundi byggðaráðs þann 12. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Til umræðu áætlun um fjárfestingar og framkvæmdir Dalvíkurbyggðar samkvæmt fjárhagsáætlun 2026 og þriggja ára áætlun 2027-2029.
Niðurstaða : Byggðaráð felur sveitarstjóra að afla upplýsinga hjá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar fyrir fund
sveitarstjórnar varðandi hugmyndir um breytingu á framkvæmdaáætlun."

b) Viðauki nr. 6 í fjárhagsáætlun 2026 er tæknilegur viðauki og er skipting á fjárfestinga-og framkvæmdaáætlun 2026 niður á verknúmer samkvæmt samþykktri fjárhagsáætlun.
a)
Til máls tóku:
Freyr Antonsson, sem leggur fram þá tillögu að bætt verði við á fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun á árinu 2026 kr. 50.000.000 vegna endurnýjunar á gólfefnum á sal Íþróttamiðstöðvar. Gert var ráð fyrir verkefninu á árinu 2027.

Fleiri tóku ekki til máls.


Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu og að bætt verði við viðauka nr. 6, sjá b) lið hér að neðan, við fjárhagsáætlun 2026 að upphæð kr. 50.000.000 á lið 32200-11603.
Sveitarstjórn samþykkir jafnframt að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Málsnúmer 202602089.

b) Lagt fram til kynningar.

13.Frá 1174. fundi byggðaráðs þann 12.02.2026; Íþróttamiðstöð - breytingar á gufuklefa; Viðauki #7

Málsnúmer 202411089Vakta málsnúmer

Á 1174. fundi byggðaráðs þann 12. febrúar sl. var m.a. eftirfarandi bókað:
"Með fundarboði byggðaráðs fylgdi viðaukabeiðni frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar og íþróttafulltrúa, dagsett þann 10. febrúar sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 til þess að kaupa frístandandi gufuklefa á lóð Sundlaugar Dalvíkur eða Íþróttamiðstöðvar. Í erindinu kemur fram hvaða tegund er lögð til í samráði við starfsmenn Íþróttamiðstöðvar. Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 4.000.000 á lið 32200-11603.
Niðurstaða : Byggðráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2026, viðauka nr. 7 að upphæð kr. 4.000.000 á lið 32200-11603. Byggðaráð samþykkir að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Freyr Antonsson situr hjá."
Til máls tóku:

Freyr Antonsson, sem leggur til að samþykktur verði stærri viðauki við fjárhagsáætlun 2026 vegna gufuklefa á lóð Íþróttamiðstöðvar. Fyrir liggur tillaga um lítinn gufuklefa sem er að hans mati of lítill, engin forstofa, engin sturta. Hans mat er að sveitarfélagið eigi að fara í stærra hús með forstofu, sturtu og stærri gufuklefa. Áætlun hljóðar uppá 4 milljónir en Freyr telur að sveitarfélagið ætti að gera þetta stærra og setja 26,3 milljónir í viðauka, sbr. meðfylgjandi gögn sem fylgdu með fundarboði, sem hægt er að vinna eftir.

Helgi Einarsson, sem leggur til að málinu verði vísað aftur til byggðaráðs.
Monika Margrét Stefánsdóttir.
Katrín Sif Ingvarsdóttir.
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir.
Kristinn Bogi Antonsson.
Gunnar Kristinn Guðmundsson.


Fleiri tóku ekki til máls.

Tilaga Freys Antonarssonar borin fyrst upp til afgreiðslu þar sem hún gengur lengst af þeim þremur tillögum sem liggja fyrir.
a) Sveitarstjórn samþykkir með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu Freys Antonssonar, Helgi Einarsson og Monika Margrét Stefánsdóttir greiða atkvæði á móti og Katrín Sif Ingvarsdóttir og Gunnar Kristinn Guðmundsson sitja hjá.
Sveitarstjórn samþykkir með 3 atkvæðum viðauka nr. 7 við fjárhagsáætlun 2026 að upphæð kr. 26.300.000 við lið 32200-11603 vegna gufuklefa við Íþróttamiðstöðina, Helgi Einarsson og Monika Margrét Stefánsdóttir greiða atkvæði á móti og Katrín Sif Ingvarsdóttir og Gunnar Kristinn Guðmundsson sitja hjá.
Sveitarstjórn samþykkir jafnframt að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.

14.Frá 1174. fundi byggðaráðs þann 12.02.2026; viðauki #8

Málsnúmer 202602008Vakta málsnúmer

Á 1174. fundi byggðaráðs þann 12. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauka nr. 8 við fjárhagsáætlun 2026, þannig að liður 02570-4970 hækki um kr. 1.448.128. Byggðaráð samþykkir jafnfram að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé. Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 8 við fjárhagsáætlun 2026 þannig að liður 02570-4970 hækki um kr. 1.448.128.
Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða með 7 atkvæðum að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.

15.Frá 1174. fundi byggðaráðs þann 12.02.2026; Vinnuhópur um brunamál; tillaga um að leggja vinnuhópinn niður.

Málsnúmer 202110061Vakta málsnúmer

Á 1174. fundi byggðaráðs þann 12. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Til umræðu staða mála hvað varðar áætlanir um byggingu nýrrar slökkvistöðvar.
Sveitarstjóri upplýsti um stöðu mála.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að vinnuhópur vegna húsnæðismála slökkviliðs verði lagður niður og verkefnið verði unnið áfram í gegnum byggðaráð. Samráð verði áfram við slökkviliðsstjóra, slökkvilið og aðra hlutaðeigandi. Aðilar verði því boðaðir inn á fundi byggðaráðs eftir því sem þurfa þykir."
Til máls tóku:
Helgi Einarsson.
Freyr Antonsson.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu byggðaráðs um að leggja vinnuhóp vegna húsnæðismála slökkviliðs niður og að málið verði unnið áfram í gegnum byggðaráð.

16.Frá 40. fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 06.02.2026; Skógræktaráætlanir fyrir Bögg og Brúarhvammsreit

Málsnúmer 202512014Vakta málsnúmer

Á 40. fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 6. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Fyrir fundinum lágu skógræktaráætlanir fyrir Bögg og Brúarhvammsreit unnar af Skógræktarfélagi Eyfirðinga. Búið er að halda tvo kynningarfundi fyrir íbúa vegna framtíðaráætlana fyrir skógarreitina í nóvember sl.
Niðurstaða : Umhverfis- og dreifbýlisráð gerir ekki athugasemdir við framlagðar skógræktaráætlanir fyrir Bögg og Brúarhvammsreit og leggur áherslu á að þær verði hafðar til hliðsjónar við vinnslu fjárhagsáætlana næstu ára.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

a)Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi skógræktaráætlanir fyrir Bögg og Brúarhvammsreit og að þær verði aðgengilegar á heimasíðu Dalvíkurbyggðar.
b)Sveitarstjórn tekur undir með umhverfis- og dreifbýlisráði að þessar áætlanir verði hafðar til hliðsjónar við gerð fjárhagsáætlana ár hvert.

17.Frá 40. fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 06.02.2026; Drög að loftslagsstefnu Norðurlands eystra

Málsnúmer 202601085Vakta málsnúmer

Á 40. fundi umhverfis-og dreifbýlisráðs þann 6. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá SSNE, rafpóstur dagsettur þann 20. janúar sl., þar sem meðfylgjandi er erindi til sveitarfélaga ásamt lokadrögum að loftlagsstefnu Norðurlands eystra.
Fram kemur að á 79. stjórnarfundi SSNE, sem haldinn var 8. janúar s.l., voru meðfylgjandi drög að loftslagsstefnu Norðurlands eystra lögð fram, en starfshópur SSNE um sameiginlega loftslagsstefnu landshlutans hefur nú lokið störfum. Stjórn samþykkti að drögin yrðu send til umfjöllunar í sveitarstjórnum innan SSNE. Drögin eru því hér með send til umfjöllunar í sveitarstjórnum sveitarfélaga innan SSNE og er óskað eftir því að athugasemdir eða ábendingar berist SSNE í síðasta lagi þann 4. mars næstkomandi. Stefnt er að því að loftslagsstefnan verði staðfest á ársþingi SSNE sem haldið verður þann 26. mars næstkomandi.
Niðurstaða : Umhverfis- og dreifbýlisráð gerir ekki athugasemdir við framlögð drög að Loftslagsstefnu á starfssvæði SSNE og leggur áherslu á að hún verði höfð til hliðsjónar við vinnslu fjárhagsáætlana næstu ára.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

a)Sveitarstjórn tekur undir með umhverfis- og dreifbýlisráði og gerir ekki athugasemdir við framlögð drög að Loftlagsstefnu á starfssvæði SSNE.
b) Sveitarstjórn tekur undir með umhverfis- og dreifýlisráði að Loftlagsstefnan verði höfð til hliðjónar við gerð fjárhagsáætlana ár hvert, með fyrirvara um endanlega útgáfu Loftlagsstefnunnar.

18.Frá 1174. fundi byggðaráðs þann 12.02.2026; Viðræður um inngöngu í Hafnasamlag Norðurlands

Málsnúmer 202506144Vakta málsnúmer

Á 1174. fundi byggðaráðs þann 12. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Á 1173. fundi byggðaráðs þann 29. janúar sl. kynntu Arnar Haraldsson og Haraldur L. Haraldsson frá HLH Ráðgjöf drög að greiningu á sameiningu Hafnasamlag Norðurlands og Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar.
Með fundarboði fylgdi lokadrög að ofangreindri greiningu. Fram kemur tillaga að skipulagi og framkvæmd viðræðna um sameininguna.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að viðræðum við Hafnasamlag Norðurlands verði haldið áfram."
Til máls tók:

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri.


Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir með 5 atkvæðum ofangreinda tillögu byggðaráðs að fela vinnuhópi að halda áfram viðræðum við Hafnasamlag Norðurlands, Kristinn Bogi Antonsson og Monika Margrét Stefánsdóttir sitja hjá.

19.Frá 293. fundi félagsmálaráðs; Tengiráðgjafar

Málsnúmer 202512037Vakta málsnúmer

Á 293. fundi félagsmálaráðs þann 10. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi dags. 25.11.2025 frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu þar sem fram kemur að Félags- og húsnæðismálaráðuneytið leggi ríka áherslu á að efla þjónustu við eldra fólk, með sérstakri áherslu á uppbyggingu hjúkrunarrýma og dagdvalarrýma um land allt. Á síðustu árum hefur myndast veruleg uppsöfnuð þörf fyrir ný hjúkrunarrými og er því brýnt að ráðast í markvissar aðgerðir til að bregðast við þeirri stöðu.
Samhliða uppbyggingu hjúkrunarheimila verði áfram unnið að því að styðja við eldra fólk til að búa á eigin heimili eins lengi og kostur er. Til þess verður lögð áhersla á frekari eflingu og þróun dagdvala, sem eru mikilvægur þáttur í því að styðja sjálfstæða búsetu, draga úr félagslegri einangrun og efla lífsgæði eldra fólks.
Undanfarin ár hefur ráðuneytið veitt styrki til ráðningar tengiráðgjafa sem höfðu það hlutverk að vinna gegn félagslegri einangrun og einmanaleika viðkvæmra hópa. Tengiráðgjafarnir hafa gegnt veigamiklu hlutverki og unnið ötullega að markmiði sínu, auk þess sem þeir hafa verið mikilvægur þáttur í undirbúningi og innleiðingu samþættrar heimaþjónustu á þróunarsvæðum Gott að eldast.
Styrkveitingar til ráðningar tengiráðgjafa voru hluti af viðbrögðum stjórnvalda við félags- og heilsufarslegum afleiðingum Covid-19 heimsfaraldursins. Sérstökum mótvægisaðgerðum til að sporna gegn afleiðingum heimsfaraldursins er nú lokið. Af þeim sökum er ekki unnt að veita áframhaldandi styrki til ráðningar tengiráðgjafa.
Ráðuneytið mun áfram leggja ríka áherslu á að efla stuðningsúrræði og uppbyggingu þjónustu fyrir eldra fólk, tryggja samfellu í þróun þjónustu og vinna að fjölbreyttum lausnum sem styrkja bæði einstaklinga og nærumhverfi þeirra.
Dalvíkurbyggð er þátttakandi í tilraunaverkefninu Gott að eldast og var ráðinn tengiráðgjafi á tilraunatímabilinu eða út árið 2027. Búið er að senda bréf til byggðarráðs vegna þessa í samvinnu við forstöðumann Dalbæjar.
Niðurstaða : Félagsmálaráð lýsir yfir óánægju sinni með ákvörðun Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins um að hætta að veita fjárstyrk í störf tengiráðgjafa í verkefninu Gott að eldast. Félagsmálaráð skorar á ráðuneytið að staðið verði við nýgerða samninga og greiði þessa upphæð á meðan tilraunaverkefninu Gott að eldast stendur. Mjög mikil vinna og metnaður hefur farið í þetta verkefni og telur ráðið þetta vera algjöran forsendubrest fyrir þessu mikilvæga verkefni."
Til máls tóku:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri.
Monika Margrét Stefánsdóttir.
Kristinn Bogi Antonsson.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að taka undir bókun félagsmálaráðs og lýsir sveitarstjórn yfir mikilli óánægju sinni með ákvörðun Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins um að hætta að veita fjárstyrk í störf tengiráðgjafa í verkefninu Gott að eldast. Sveitarstjórn skorar á ráðuneytið að staðið verði við nýgerða samninga á meðan tilraunaverkefninu Gott að eldast stendur. Mjög mikil vinna og metnaður hefur farið í þetta verkefni. Gott að eldast verkefnið hefur gengið mjög vel en er á mjög viðkvæmum stað og mikilvægt að sú vinna sem er í gangi fái að halda áfram óáreitt. Sveitarstjórn jafnframt fer fram á fund um málið með ráðherra/ráðuneytinu sem fyrst.

20.Frá 313. fundi fræðsluráðs þann 11.02.2026; Rannsakendur við Kennaradeild Háskólans á Akureyri, rannsókn á því hvernig barnabækur eru notaðar í leikskólastarfi

Málsnúmer 202602034Vakta málsnúmer

Á 313. fundi fræðsluráðs þann 11. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir bréf frá Rannveigu Oddsdóttur, ósk um að gera rannsókn við leikskólann á Krílakoti.
Niðurstaða : Fræðsluráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að leikskólar Dalvíkurbyggðar taki þátt ofangreindri rannsókn.
Ágústa, Elvý, Una, Gitta og Ingigerður fóru af fundi kl. 9:58."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu fræðsluráðs um að leikskólar Dalvíkurbyggðar taki þátt í rannsókn á því hvernig barnabækur eru notaðar í leikskólastarfi, með þeim fyrirvara að það sé mat stjórnanda skólans að svigrúm sé innan starfa skólans til þátttöku.

21.Frá 184. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 03.02.2026; Uppfærsla á reglum afreks- og styrktarsjóðs

Málsnúmer 202512008Vakta málsnúmer

Á 184. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 3. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Íþróttafulltrúi leggur til uppfærslu á reglum afreks- og styrktarsjóðs Dalvíkurbyggðar.
Niðurstaða : Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir með 5 atkvæðum, uppfærðar reglur Afreks- og styrktarsjóðs Dalvíkurbyggðar."
Til máls tóku:
Helgi Einarsson.
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir.
Freyr Antonsson.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að reglum Afreks- og styrktarsjóðs Dalvíkurbyggðar.

22.Frá 1173. fundi byggðaráðs þann 29.01.2026; Samstarf um að kom upp sjósunds aðstöðu

Málsnúmer 202601057Vakta málsnúmer

Á 1173. fundi byggðaráðs þann 29. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Húna Húnfjörð, dagsett þann 12. janúar sl., þar sem fram kemur áhugi að kanna hvort fótur sé fyrir samstarfi með að koma á laggirnar sjósundsaðstöðu á sandinum á Dalvík, rétt við Steypustöðina.
Það fari ört vaxandi að fólk stundi sjósund um allt landið og sánu-gusur þar á milli.
Til umræðu ofangreint.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hafna ofangreindu erindi.
Byggðaráð bendir á að það er vinna í gangi varðandi strandlengjuna á Dalvík - sjá nánar.
https://www.dalvikurbyggd.is/is/frettir-og-tilkynningar/category/1/strandlengjan-a-dalvik-fra-isstod-ad-arkjafti
Einnig er deiliskipulagsvinna vegna Sandskeiðs hafin."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og hafnar erindinu.

23.Frá 313. fundi fræðsluráðs þann 11.02.2026; Leiksýning frá Sögustund - beiðni um styrk frá Foreldrafélagi Krílakots

Málsnúmer 202601070Vakta málsnúmer

Á 313. fundi fræðsluráðs þann 11. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Foreldrafélagi Krílakots, þar sem að þau óska eftir styrk til að kaupa leiksýningu fyrir leikskólabörn í Dalvíkurbyggð.
Niðurstaða : Fræðsluráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að hafna ofangreindu erindi, þar sem ekki er gert ráð fyrir þessu á fjárhagsáætlun."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu fræðsluráðs og hafnar erindinu.
Sveitarstjórn bendir Foreldrafélagi Krílakots á þann möguleika að sækja um styrk í Menningar- og viðurkenningarsjóð Dalvíkurbyggðar, án loforðs um styrk.

24.Frá 1174. fundi byggðaráðs þann 12.02.2026; Styrkbeiðni frá Ittoqqortoormiit

Málsnúmer 202602055Vakta málsnúmer

Á 1174. fundi byggðaráðs þann 12. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá vinabæ Dalvíkurbyggðar á Grænlandi, dagsett þann 4. febrúar sl., þar sem óskað er eftir stuðningi og þátttöku í að kaupa tvær neyðarrafstöðvar til að tryggja hita og grunnþjónustu.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn."
Til máls tóku:
Monika Margrét Stefánsdóttir.
Freyr Antonsson.


Fleiri tóku ekki til máls.


Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum þá tillögu að styrkja Ittoqqortoormiit um kr. 400.000 vegna kaupa á neyðarrafstöðvum. Vísað á deild 21510 - vinabæjasamskipti.

25.Frá 313. fundi fræðsluráðs þann 11.02.2026; Færa skipulagsdag í Kötlukoti

Málsnúmer 202602032Vakta málsnúmer

Á 313. fundi fræðsluráðs þann 11. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Fyrir fundinum liggur beiðni frá Ágústu Kristínu Bjarnadóttur, leikskólastjóra þess efnis að starfsfólk Kötlukots taki þátt í starfsdegi Krílakots sem haldinn verður 6.mars nk. og á móti fellur niður skipulagsdagur Kötlukots sem er áætlaður þann 4.júni skv. skóladagatali Árskógarskóla - Kötlukot.
Niðurstaða : Fræðsluráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum ofangreinda beiðni leikskólastjóra."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu fræðsluráðs og breytingu á skóladagatali Árskógarskóla- Kötlukots.

26.Frá 293. fundi félagsmálasviðs þann 10.02.2026; Ný skýrsla - Umönnunarbilið og þjónusta sveitarfélaga

Málsnúmer 202601017Vakta málsnúmer

Á 293. fundi félagsmálasviðs þann 10. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi dags. 10.12.2025 frá Jafnréttisstofu. Kynnt er skýrsla þar sem fjallað er um umönnunarbil milli fæðingarorlofs og leikskóladvalar barna sem hefur verið áskorun fyrir fjölskyldur. Ný skýrsla Jafnréttisstofu sýnir að án heildstæðrar stefnu og jafnréttismats geta kerfisbreytingar fest kynjahlutverk í sessi og aukið kynjabil í tekjum og tækifærum.
Niðurstaða : Lagt fram til kynningar."
Til máls tók:
Freyr Antonsson, leggur fram eftirfarandi bókun.
"Umræðan um svonefnt umönnunarbil, tímabilið frá lokum fæðingarorlofs þar til leikskóladvöl barna hefst, hefur verið áberandi í íslensku samfélagi undanfarin ár. Foreldrar hafa bent á að það geti verið erfitt að brúa þetta bil og Jafnréttisstofa hefur tekið undir þær áhyggjur. Núverandi fyrirkomulag endurspeglar að hluta til sögulega þróun og áhrif kynjakerfis á fjölskyldu- og atvinnulíf, sem hefur átt þátt í því að koma í veg fyrir framgang kynjajafnréttis.
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar vill benda á að Dalvíkurbyggð hefur í yfir 20 ár tekið á móti börnum sem fyrst eftir að fæðingarorlofi lýkur og það er ennþá stefnan hjá Dalvíkurbyggð."


Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu forseta sveitarstjórnar að bókun.

27.Frá 1174. fundi byggðaráðs þann 12.02.2026; Líkgeymsla á Dalvík - HSN

Málsnúmer 202512010Vakta málsnúmer

Á 1174. fundi byggðaráðs þann 12. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Í október 2025 barst sveitarfélaginu tilkynning frá forstjóra HSN að HSN hyggst hætta rekstri líkgeymslu í húsnæði heilsugæslunnar á Dalvík. Ástæðan er sú að kælibúnaðurinn er ónýtur og ekki hyggilegt að endurnýja hann. HSN lítur ekki á það sem hlutverk heilsugæslustöðva að reka slíka þjónustu sem og HSN hefur ekki fjármuni eða mannskap í verkefnið.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir þeirri vinnu sem hefur farið fram, eftirfylgni við málið, samskipti við ráðuneyti, HSN, Dalbæ og íbúa í samfélaginu og þeirra lausna sem hefur verið leitað. Unnið hefur verið að lausn á þeim forsendum að um er að ræða sameiginlegt verkefni fyrir samfélagið. Safnað hefur verið fyrir nýjum kælibúnaði að frumkvæði íbúa.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi drög að húsaleigusamningi á milli HSN og Dalvíkurbyggðar þar sem HSN er tilbúið að leigja Dalvíkurbyggð húsnæði fyrir rekstur á líkhúsi til 5 ára.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að ofangreind samningsdrög á milli HSN og Dalvíkurbyggðar um leigu á húsnæði fyrir líkgeymslu verði samþykktur með breytingu á 3. gr. þar sem fram kemur að leigutaki annist á sinn kostnað alla umsýslu og þjónustu tengt rekstri líkhúss. Hlutverk Dalvíkurbyggðar samkvæmt samningi verði eingöngu að leigja umrætt húsnæði af HSN."
Til máls tóku:
Kristinn Bogi Antonsson.
Freyr Antonsson.
Monika Margrét Stefánsdóttir.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi drög að samningi á milli HSN og Dalvíkurbyggðar um leigu á húsnæði fyrir líkgeymslu með breytingu á 3. gr. þar sem Dalvíkurbyggð sem leigutaki mun ekki annast á sinn kostnað alla umsýslu og þjónustu tengt rekstri líkhúss.
Leigufjárhæðin er kr. 10.000 á mánuði, Dalbær sér um umsjón rýmisins, Kristján Ólafsson safnaði fyrir endurnýjun búnaðar. Nú er að hefjast vinna við að koma þessu rými í notkun aftur.
Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að byggðaráð taki málefnið almennt rekstur líkgeymslna til umfjöllunar.

28.Frá 1174. fundi byggðaráðs þann 12.02.2026; Yfirlýsing um að nýta ekki forkaupsrétt á Sigurvin EA-380

Málsnúmer 202602039Vakta málsnúmer

Á 1174. fundi byggðaráðs þann 12. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Bátum og búnaði ehf., dagsett þann 9. febrúar sl., þar sem óskað er yfirlýsingar Dalvíkurbyggðar um að sveitarfélagið ætli ekki að nýta sér forkaupsrétt á skipi nr. 1881.Um er að ræða Sigurvin EA-380.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að sveitarfélagið nýti sér ekki forkaupsrétt á Sigurvini EA-380 nr. 1881, sbr. lög um stjórn fiskiveiða nr. 116/2006, 12. gr., 3. mgr."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu byggðaráðs og samþykkir að sveitafélagið nýtir sér ekki forkaupsrétt á Sigurvini EA-380, nr. 1881.

29.Frá 1174. fundi byggðaráðs þann 12.02.2026; Breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir (mál nr. S-32026) í samráðsgátt

Málsnúmer 202602027Vakta málsnúmer

Á 1174. fundi byggðaráðs þann 12. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekinn fyrir rafpóstur frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, dagsettur þann 6. febrúar sl., þar sem Vakin er athygli á því að drög að frumvarpi um breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir eru nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Um er að ræða mál nr. S-3/2026. https://island.is/samradsgatt/mal/4150
Breytingarnar fela í sér umfangsmikinn flutning verkefna og valds frá kjörnum fulltrúum í heilbrigðisnefndum sveitarfélaga til ríkisins. Til að mynda flytur frumvarpið öll sértæk þvingunarúrræði laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir (áminningar, dagsektir, stöðvun framkvæmda o.s.frv.) frá sveitarfélögum til ríkisins (Umhverfis- og orkustofnunar).
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að breytingarnar muni hafa neikvæð áhrif á sveitarfélögin. Þar segir orðrétt:
„Viss óbein neikvæð áhrif á sveitarfélög kunna að felast í því að sérfræðiþekking sem hingað til hefur verið bundin við sveitarstjórnarstig flytjist að hluta til ríkisins [...]. Þá mun tiltekinn einskiptiskostnaður falla á sveitarfélög, t.d.
vegna mögulegra biðlaunagreiðslna o.fl.“
Sveitarfélög á Norðurlandi eystra eru hvött til þess að kynna sér efni frumvarpsins vel og skila inn umsögnum í samráðsgátt fyrir 17. febrúar nk.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til sveitarstjórnar til umfjöllunar og afgreiðslu."
Til máls tók:
Freyr Antonsson, sem leggur til eftirfarandi bókun:
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar ítrekar mikilvægi þess að áframhaldandi vinna við málið fari fram í nánu samráði við sveitarfélög, Samband íslenskra sveitarfélaga og aðra viðeigandi hagaðila, og að tryggt verði að breytingarnar leiði hvorki til kostnaðarauka né þjónustuskerðingar fyrir sveitarfélögin.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu Freys Antonssonar að bókun.

30.Frá 1174. fundi byggðaráðs þann 12.02.2026; Hvatning til umsagnar um þingsályktunartillögu um staðsetningu þyrlu Landhelgisgæslunnar

Málsnúmer 202602003Vakta málsnúmer

Á 1174. fundi byggðaráðs þann 12. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekinn fyrir póstur frá Atlantsflugi ehf., dagsettur þann 2. febrúar sl., þar sem vakin er athygli á þingsályktunartillögu sem nú liggur fyrir Alþingi, 16. mál á 157. löggjafarþingi, um að koma á fastri starfsstöð fyrir eina af þyrlum Landhelgisgæslu Íslands (LHG) á Akureyri. Hér er beinn tengill á þingsályktunartillöguna:
https://eur01.safelinks.protection.outlook.com/?url=https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/157/16/ltg=157&mnr=16&data=05|02|dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is|548e4dd96b96
Sveitarfélagið er hvatt til að nýta sér umsagnarfrestinn og koma fram með sjálfstæða umsögn þar sem tekið er miðaf hagsmunum íbúa og mikilvægi þess að fjármunir ríkisins séu nýttir á sem skilvirkastan hátt.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykktir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að ítreka bókun sína frá 362. fundi þann 7. nóvember 2023.
"Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar fagnar framkominni þingsályktunartillögu um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri. Að mati sveitarstjórnar væri þetta skynsamleg og tímabær ráðstöfun til að tryggja betur öryggi fólks víða um land, en eins og fram kemur í umsögn Landhelgisgæslu Íslands um sama mál þá yrði þetta stórt framfaraskref í viðbragðs-, öryggis,- og eftirlits- og björgunarmálum þjóðarinnar. Þannig myndi neyðar- og viðbragðsgeta Landhelgisgæslunnar við íbúa um land allt stóraukast, einkum á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi, á hálendinu og miðum landsins. Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar bendir einnig á niðurstöðu vísindarannsóknar teymis Dr. Björns Gunnarsson yfirlæknis sjúkraflugs og Dósents við Heilbrigðisvísindastofnun Háskólans á Akureyri. Þar er stuðst við gögn frá Hagstofu Íslands um búsetu allra landsmanna og einnig gögn frá Neyðarlínu um staðsetningar útkalla í fyrsta forgangi á sjö ára tímabili. Niðurstaðan er að viðbragðstími innan 60 mínútna færi úr 62% dekkunar fyrir eina starfsstöð eins og í dag í 94% dekkun fyrir seinni starfsstöð á Akureyri. Sveitarstjórn telur því ekki skynsamlegt að hafa allar þyrlur landhelgisgæslunnar staðsettar á sama landsvæði. Björgunarþyrla á Akureyri myndi ekki bara styrkja innviði neyðar- og viðbragðsþjónustu á því svæði sem betur verður þjónustað heldur skapast tækifæri til að koma á landsdekkandi sérhæfðu neyðar- og björgunarviðbragði með markvissu samstarfi viðbragðsaðila og þjálfun þeirra. Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar skorar á Alþingi að afgreiða þetta mál sem allra fyrst á jákvæðan hátt, enda myndi föst viðvera þyrlusveitarinnar á Akureyri einfaldlega geta bjargað mannslífum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og ítrekar bókun sína frá 362. fundi sveitarstjórnar þann 7. nóvember 2023.

Fundi slitið - kl. 17:52.

Nefndarmenn
  • Freyr Antonsson aðalmaður
  • Sigríður Jódís Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Katrín Sif Ingvarsdóttir aðalmaður
  • Helgi Einarsson aðalmaður
  • Gunnar Kristinn Guðmundsson aðalmaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
  • Kristinn Bogi Antonsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs