Ný skýrsla - Umönnunarbilið og þjónusta sveitarfélaga

Málsnúmer 202601017

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 293. fundur - 10.02.2026

Tekið fyrir erindi dags. 10.12.2025 frá Jafnréttisstofu. Kynnt er skýrsla þar sem fjallað er um umönnunarbil milli fæðingarorlofs og leikskóladvalar barna sem hefur verið áskorun fyrir fjölskyldur. Ný skýrsla Jafnréttisstofu sýnir að án heildstæðrar stefnu og jafnréttismats geta kerfisbreytingar fest kynjahlutverk í sessi og aukið kynjabil í tekjum og tækifærum.
Lagt fram til kynningar.

Sveitarstjórn - 387. fundur - 17.02.2026

Á 293. fundi félagsmálasviðs þann 10. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi dags. 10.12.2025 frá Jafnréttisstofu. Kynnt er skýrsla þar sem fjallað er um umönnunarbil milli fæðingarorlofs og leikskóladvalar barna sem hefur verið áskorun fyrir fjölskyldur. Ný skýrsla Jafnréttisstofu sýnir að án heildstæðrar stefnu og jafnréttismats geta kerfisbreytingar fest kynjahlutverk í sessi og aukið kynjabil í tekjum og tækifærum.
Niðurstaða : Lagt fram til kynningar."
Til máls tók:
Freyr Antonsson, leggur fram eftirfarandi bókun.
"Umræðan um svonefnt umönnunarbil, tímabilið frá lokum fæðingarorlofs þar til leikskóladvöl barna hefst, hefur verið áberandi í íslensku samfélagi undanfarin ár. Foreldrar hafa bent á að það geti verið erfitt að brúa þetta bil og Jafnréttisstofa hefur tekið undir þær áhyggjur. Núverandi fyrirkomulag endurspeglar að hluta til sögulega þróun og áhrif kynjakerfis á fjölskyldu- og atvinnulíf, sem hefur átt þátt í því að koma í veg fyrir framgang kynjajafnréttis.
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar vill benda á að Dalvíkurbyggð hefur í yfir 20 ár tekið á móti börnum sem fyrst eftir að fæðingarorlofi lýkur og það er ennþá stefnan hjá Dalvíkurbyggð."


Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu forseta sveitarstjórnar að bókun.