Frá Húna Húnfjörð; Samstarf um að kom upp sjósunds aðstöðu

Málsnúmer 202601057

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1173. fundur - 29.01.2026

Tekið fyrir erindi frá Húna Húnfjörð, dagsett þann 12. janúar sl., þar sem fram kemur áhugi að kanna hvort fótur sé fyrir samstarfi með að koma á laggirnar sjósundsaðstöðu á sandinum á Dalvík, rétt við Steypustöðina.
Það fari ört vaxandi að fólk stundi sjósund um allt landið og sánu-gusur þar á milli.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hafna ofangreindu erindi.
Byggðaráð bendir á að það er vinna í gangi varðandi strandlengjuna á Dalvík - sjá nánar. https://www.dalvikurbyggd.is/is/frettir-og-tilkynningar/category/1/strandlengjan-a-dalvik-fra-isstod-ad-arkjafti
Einnig er deiliskipulagsvinna vegna Sandskeiðs hafin.

Sveitarstjórn - 387. fundur - 17.02.2026

Á 1173. fundi byggðaráðs þann 29. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Húna Húnfjörð, dagsett þann 12. janúar sl., þar sem fram kemur áhugi að kanna hvort fótur sé fyrir samstarfi með að koma á laggirnar sjósundsaðstöðu á sandinum á Dalvík, rétt við Steypustöðina.
Það fari ört vaxandi að fólk stundi sjósund um allt landið og sánu-gusur þar á milli.
Til umræðu ofangreint.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hafna ofangreindu erindi.
Byggðaráð bendir á að það er vinna í gangi varðandi strandlengjuna á Dalvík - sjá nánar.
https://www.dalvikurbyggd.is/is/frettir-og-tilkynningar/category/1/strandlengjan-a-dalvik-fra-isstod-ad-arkjafti
Einnig er deiliskipulagsvinna vegna Sandskeiðs hafin."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og hafnar erindinu.