Frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra; Breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir (mál nr. S-32026) í samráðsgátt

Málsnúmer 202602027

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1174. fundur - 12.02.2026

Tekinn fyrir rafpóstur frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, dagsettur þann 6. febrúar sl., þar sem Vakin er athygli á því að drög að frumvarpi um breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir eru nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Um er að ræða mál nr. S-3/2026. https://island.is/samradsgatt/mal/4150


Breytingarnar fela í sér umfangsmikinn flutning verkefna og valds frá kjörnum fulltrúum í heilbrigðisnefndum sveitarfélaga til ríkisins. Til að mynda flytur frumvarpið öll sértæk þvingunarúrræði laga nr. 7/1998 um
hollustuhætti og mengunarvarnir (áminningar, dagsektir, stöðvun framkvæmda o.s.frv.) frá sveitarfélögum til ríkisins (Umhverfis- og orkustofnunar).
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að breytingarnar muni hafa neikvæð áhrif á sveitarfélögin. Þar segir orðrétt:
„Viss óbein neikvæð áhrif á sveitarfélög kunna að felast í því að sérfræðiþekking sem hingað til hefur verið bundin við sveitarstjórnarstig flytjist að hluta til ríkisins [...]. Þá mun tiltekinn einskiptiskostnaður falla á sveitarfélög, t.d. vegna mögulegra biðlaunagreiðslna o.fl.“
Sveitarfélög á Norðurlandi eystra eru hvött til þess að kynna sér efni frumvarpsins vel og skila inn umsögnum í samráðsgátt fyrir 17. febrúar nk.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til sveitarstjórnar til umfjöllunar og afgreiðslu.

Sveitarstjórn - 387. fundur - 17.02.2026

Á 1174. fundi byggðaráðs þann 12. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekinn fyrir rafpóstur frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, dagsettur þann 6. febrúar sl., þar sem Vakin er athygli á því að drög að frumvarpi um breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir eru nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Um er að ræða mál nr. S-3/2026. https://island.is/samradsgatt/mal/4150
Breytingarnar fela í sér umfangsmikinn flutning verkefna og valds frá kjörnum fulltrúum í heilbrigðisnefndum sveitarfélaga til ríkisins. Til að mynda flytur frumvarpið öll sértæk þvingunarúrræði laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir (áminningar, dagsektir, stöðvun framkvæmda o.s.frv.) frá sveitarfélögum til ríkisins (Umhverfis- og orkustofnunar).
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að breytingarnar muni hafa neikvæð áhrif á sveitarfélögin. Þar segir orðrétt:
„Viss óbein neikvæð áhrif á sveitarfélög kunna að felast í því að sérfræðiþekking sem hingað til hefur verið bundin við sveitarstjórnarstig flytjist að hluta til ríkisins [...]. Þá mun tiltekinn einskiptiskostnaður falla á sveitarfélög, t.d.
vegna mögulegra biðlaunagreiðslna o.fl.“
Sveitarfélög á Norðurlandi eystra eru hvött til þess að kynna sér efni frumvarpsins vel og skila inn umsögnum í samráðsgátt fyrir 17. febrúar nk.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til sveitarstjórnar til umfjöllunar og afgreiðslu."
Til máls tók:
Freyr Antonsson, sem leggur til eftirfarandi bókun:
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar ítrekar mikilvægi þess að áframhaldandi vinna við málið fari fram í nánu samráði við sveitarfélög, Samband íslenskra sveitarfélaga og aðra viðeigandi hagaðila, og að tryggt verði að breytingarnar leiði hvorki til kostnaðarauka né þjónustuskerðingar fyrir sveitarfélögin.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu Freys Antonssonar að bókun.