Frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar; Íþróttamiðstöð - breytingar á gufuklefa

Málsnúmer 202411089

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1173. fundur - 29.01.2026

Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Helga Íris Ingólfsdóttir, deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar, kl. 13:15.

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar og íþróttafulltrúa, dagsett þann 27.01.2026, er varðar ástandsmat gufuklefa í Íþróttamiðstöð í janúar 2026.
Fram kemur m.a. að undanfarið hefur verið ljóst að fara þarf í endurbætur á gufuklefanum í Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar og á viðhaldsáætlun Eignasjóðs og fjárfestingaáætlun Dalvíkurbyggðar er gert ráð fyrir því að fjárfesta í gufuklefa úti á sundlaugarsvæðinu og breyta núverandi klefa í hlutlausan sturtuklefa eða aðstöðu fyrir einstaklinga sem þurfa aðstoð. Öll útfærsla og hönnun á breytingum innanhúss er eftir.
Í byrjun janúar 2026 var ákveðið að loka gufuklefanum í Íþróttamiðstöðinni til að skoða betur hvort hægt væri að ráðast í lítilháttar viðgerðir á gólfinu í klefanum sem gæti haldið honum starfhæfum fram á næsta ár.

Í stórum dráttum er um þrjár leiðir að ræða til að takast á við þetta verkefni:
1. Loka gufuklefanum alveg og leyfa honum að þorna. Gert er ráð fyrir kaupum og uppsetningu á gufuklefa úti á sundlaugarsvæðinu á næsta ári og breytingum á núverandi klefa þannig að það svæði nýtist undir hlutlausa klefa. Framkvæmdir aðrar en fjarlæging á flísum og epoxý-húð geymd fram á næsta ár.
2. Loka gufuklefanum um ótiltekin tíma, flýta fyrir þornun og endurnýja gólfefni og þannig koma aftur í starfhæft ástand. Áætlaður opnunartími gufuklefans er þá óviss, en lílega ekkifyrr en í sumar í fyrsta lagi.
3. Flýta áætluðum kaupum á gufuklefa út á sundlaugarsvæði. Nýr gufuklefi ætti að vera kominn upp innan þriggja mánaða ef allt gengur upp. Núverandi klefa yrði lokað og honum leyft að þorna. Framkvæmdir innanhúss og breytingar á klefa verða áfram á áætlun ársins 2027.

Til umræðu ofangreint.

Helga Íris vék af fundi kl. 13:29.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til að farin verði leið #3 hér að ofan, með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar um viðauka.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela deildarstjóra EF-deildar og íþróttafulltrúa að vinna áfram að málinu og leggja fyrir byggðaráð tillögu að lausn skv. leið 3 ásamt viðaukabeiðni.

Byggðaráð - 1174. fundur - 12.02.2026

Á 1173. fundi byggðaráðs þann 29. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Helga Íris Ingólfsdóttir, deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar, kl. 13:15.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar og íþróttafulltrúa, dagsett þann 27.01.2026, er varðar ástandsmat gufuklefa í Íþróttamiðstöð í janúar 2026.
Fram kemur m.a. að undanfarið hefur verið ljóst að fara þarf í endurbætur á gufuklefanum í Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar og á viðhaldsáætlun Eignasjóðs og fjárfestingaáætlun Dalvíkurbyggðar er gert ráð fyrir því að fjárfesta í gufuklefa úti á sundlaugarsvæðinu og breyta núverandi klefa í hlutlausan sturtuklefa eða aðstöðu fyrir einstaklinga sem þurfa aðstoð. Öll útfærsla og hönnun á breytingum innanhúss er eftir.
Í byrjun janúar 2026 var ákveðið að loka gufuklefanum í Íþróttamiðstöðinni til að skoða betur hvort hægt væri að ráðast í lítilháttar viðgerðir á gólfinu í klefanum sem gæti haldið honum starfhæfum fram á næsta ár.
Í stórum dráttum er um þrjár leiðir að ræða til að takast á við þetta verkefni:
1. Loka gufuklefanum alveg og leyfa honum að þorna. Gert er ráð fyrir kaupum og uppsetningu á gufuklefa úti á sundlaugarsvæðinu á næsta ári og breytingum á núverandi klefa þannig að það svæði nýtist undir hlutlausa klefa.
Framkvæmdir aðrar en fjarlæging á flísum og epoxý-húð geymd fram á næsta ár.
2. Loka gufuklefanum um ótiltekin tíma, flýta fyrir þornun og endurnýja gólfefni og þannig koma aftur í starfhæft ástand. Áætlaður opnunartími gufuklefans er þá óviss, en lílega ekkifyrr en í sumar í fyrsta lagi.
3. Flýta áætluðum kaupum á gufuklefa út á sundlaugarsvæði. Nýr gufuklefi ætti að vera kominn upp innan þriggja mánaða ef allt gengur upp. Núverandi klefa yrði lokað og honum leyft að þorna. Framkvæmdir innanhúss og breytingar á klefa verða áfram á áætlun ársins 2027.
Til umræðu ofangreint.
Helga Íris vék af fundi kl. 13:29.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til að farin verði leið #3 hér að ofan, með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar um viðauka.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela deildarstjóra EF-deildar og íþróttafulltrúa að vinna áfram að málinu og leggja fyrir byggðaráð tillögu að lausn skv. leið 3 ásamt viðaukabeiðni."

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi viðaukabeiðni frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar og íþróttafulltrúa, dagsett þann 10. febrúar sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 til þess að kaupa frístandandi gufuklefa á lóð Sundlaugar Dalvíkur eða Íþróttamiðstöðvar. Í erindinu kemur fram hvaða tegund er lögð til í samráði við starfsmenn Íþróttamiðstöðvar. Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 4.000.000 á lið 32200-11603.
Byggðráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2026, viðauka nr. 7 að upphæð kr., 4.000.000 á lið 32200-11603. Byggðaráð samþykkir að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Freyr Antonsson situr hjá.

Sveitarstjórn - 387. fundur - 17.02.2026

Á 1174. fundi byggðaráðs þann 12. febrúar sl. var m.a. eftirfarandi bókað:
"Með fundarboði byggðaráðs fylgdi viðaukabeiðni frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar og íþróttafulltrúa, dagsett þann 10. febrúar sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 til þess að kaupa frístandandi gufuklefa á lóð Sundlaugar Dalvíkur eða Íþróttamiðstöðvar. Í erindinu kemur fram hvaða tegund er lögð til í samráði við starfsmenn Íþróttamiðstöðvar. Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 4.000.000 á lið 32200-11603.
Niðurstaða : Byggðráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2026, viðauka nr. 7 að upphæð kr. 4.000.000 á lið 32200-11603. Byggðaráð samþykkir að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Freyr Antonsson situr hjá."
Til máls tóku:

Freyr Antonsson, sem leggur til að samþykktur verði stærri viðauki við fjárhagsáætlun 2026 vegna gufuklefa á lóð Íþróttamiðstöðvar. Fyrir liggur tillaga um lítinn gufuklefa sem er að hans mati of lítill, engin forstofa, engin sturta. Hans mat er að sveitarfélagið eigi að fara í stærra hús með forstofu, sturtu og stærri gufuklefa. Áætlun hljóðar uppá 4 milljónir en Freyr telur að sveitarfélagið ætti að gera þetta stærra og setja 26,3 milljónir í viðauka, sbr. meðfylgjandi gögn sem fylgdu með fundarboði, sem hægt er að vinna eftir.

Helgi Einarsson, sem leggur til að málinu verði vísað aftur til byggðaráðs.
Monika Margrét Stefánsdóttir.
Katrín Sif Ingvarsdóttir.
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir.
Kristinn Bogi Antonsson.
Gunnar Kristinn Guðmundsson.


Fleiri tóku ekki til máls.

Tilaga Freys Antonarssonar borin fyrst upp til afgreiðslu þar sem hún gengur lengst af þeim þremur tillögum sem liggja fyrir.
a) Sveitarstjórn samþykkir með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu Freys Antonssonar, Helgi Einarsson og Monika Margrét Stefánsdóttir greiða atkvæði á móti og Katrín Sif Ingvarsdóttir og Gunnar Kristinn Guðmundsson sitja hjá.
Sveitarstjórn samþykkir með 3 atkvæðum viðauka nr. 7 við fjárhagsáætlun 2026 að upphæð kr. 26.300.000 við lið 32200-11603 vegna gufuklefa við Íþróttamiðstöðina, Helgi Einarsson og Monika Margrét Stefánsdóttir greiða atkvæði á móti og Katrín Sif Ingvarsdóttir og Gunnar Kristinn Guðmundsson sitja hjá.
Sveitarstjórn samþykkir jafnframt að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.