Á 1174. fundi byggðaráðs þann 12. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekinn fyrir póstur frá Atlantsflugi ehf., dagsettur þann 2. febrúar sl., þar sem vakin er athygli á þingsályktunartillögu sem nú liggur fyrir Alþingi, 16. mál á 157. löggjafarþingi, um að koma á fastri starfsstöð fyrir eina af þyrlum Landhelgisgæslu Íslands (LHG) á Akureyri. Hér er beinn tengill á þingsályktunartillöguna:
https://eur01.safelinks.protection.outlook.com/?url=https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/157/16/ltg=157&mnr=16&data=05|02|dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is|548e4dd96b96Sveitarfélagið er hvatt til að nýta sér umsagnarfrestinn og koma fram með sjálfstæða umsögn þar sem tekið er miðaf hagsmunum íbúa og mikilvægi þess að fjármunir ríkisins séu nýttir á sem skilvirkastan hátt.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykktir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að ítreka bókun sína frá 362. fundi þann 7. nóvember 2023.
"Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar fagnar framkominni þingsályktunartillögu um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri. Að mati sveitarstjórnar væri þetta skynsamleg og tímabær ráðstöfun til að tryggja betur öryggi fólks víða um land, en eins og fram kemur í umsögn Landhelgisgæslu Íslands um sama mál þá yrði þetta stórt framfaraskref í viðbragðs-, öryggis,- og eftirlits- og björgunarmálum þjóðarinnar. Þannig myndi neyðar- og viðbragðsgeta Landhelgisgæslunnar við íbúa um land allt stóraukast, einkum á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi, á hálendinu og miðum landsins. Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar bendir einnig á niðurstöðu vísindarannsóknar teymis Dr. Björns Gunnarsson yfirlæknis sjúkraflugs og Dósents við Heilbrigðisvísindastofnun Háskólans á Akureyri. Þar er stuðst við gögn frá Hagstofu Íslands um búsetu allra landsmanna og einnig gögn frá Neyðarlínu um staðsetningar útkalla í fyrsta forgangi á sjö ára tímabili. Niðurstaðan er að viðbragðstími innan 60 mínútna færi úr 62% dekkunar fyrir eina starfsstöð eins og í dag í 94% dekkun fyrir seinni starfsstöð á Akureyri. Sveitarstjórn telur því ekki skynsamlegt að hafa allar þyrlur landhelgisgæslunnar staðsettar á sama landsvæði. Björgunarþyrla á Akureyri myndi ekki bara styrkja innviði neyðar- og viðbragðsþjónustu á því svæði sem betur verður þjónustað heldur skapast tækifæri til að koma á landsdekkandi sérhæfðu neyðar- og björgunarviðbragði með markvissu samstarfi viðbragðsaðila og þjálfun þeirra. Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar skorar á Alþingi að afgreiða þetta mál sem allra fyrst á jákvæðan hátt, enda myndi föst viðvera þyrlusveitarinnar á Akureyri einfaldlega geta bjargað mannslífum."