Líkgeymsla á Dalvík - HSN; drög að húsaleigusamningi

Málsnúmer 202512010

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1174. fundur - 12.02.2026

Í október 2025 barst sveitarfélaginu tilkynning frá forstjóra HSN að HSN hyggst hætta rekstri líkgeymslu í húsnæði heilsugæslunnar á Dalvík. Ástæðan er sú að kælibúnaðurinn er ónýtur og ekki hyggilegt að endurnýja hann. HSN lítur ekki á það sem hlutverk heilsugæslustöðva að reka slíka þjónustu sem og HSN hefur ekki fjármuni eða mannskap í verkefnið.

Sveitarstjóri gerði grein fyrir þeirri vinnu sem hefur farið fram, eftirfylgni við málið, samskipti við ráðuneyti, HSN, Dalbæ og íbúa í samfélaginu og þeirra lausna sem hefur verið leitað. Unnið hefur verið að lausn á þeim forsendum að um er að ræða sameiginlegt verkefni fyrir samfélagið. Safnað hefur verið fyrir nýjum kælibúnaði að frumkvæði íbúa.

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi drög að húsaleigusamningi á milli HSN og Dalvíkurbyggðar þar sem HSN er tilbúið að leigja Dalvíkurbyggð húsnæði fyrir rekstur á líkhúsi til 5 ára.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að ofangreind samningsdrög á milli HSN og Dalvíkurbyggðar um leigu á húsnæði fyrir líkgeymslu verði samþykktur með breytingu á 3. gr. þar sem fram kemur að leigutaki annist á sinn kostnað alla umsýslu og þjónustu tengt rekstri líkshúss. Hlutverk Dalvíkurbyggðar samkvæmt samningi verði eingöngu að leigja umrætt húsnæði af HSN.

Sveitarstjórn - 387. fundur - 17.02.2026

Á 1174. fundi byggðaráðs þann 12. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Í október 2025 barst sveitarfélaginu tilkynning frá forstjóra HSN að HSN hyggst hætta rekstri líkgeymslu í húsnæði heilsugæslunnar á Dalvík. Ástæðan er sú að kælibúnaðurinn er ónýtur og ekki hyggilegt að endurnýja hann. HSN lítur ekki á það sem hlutverk heilsugæslustöðva að reka slíka þjónustu sem og HSN hefur ekki fjármuni eða mannskap í verkefnið.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir þeirri vinnu sem hefur farið fram, eftirfylgni við málið, samskipti við ráðuneyti, HSN, Dalbæ og íbúa í samfélaginu og þeirra lausna sem hefur verið leitað. Unnið hefur verið að lausn á þeim forsendum að um er að ræða sameiginlegt verkefni fyrir samfélagið. Safnað hefur verið fyrir nýjum kælibúnaði að frumkvæði íbúa.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi drög að húsaleigusamningi á milli HSN og Dalvíkurbyggðar þar sem HSN er tilbúið að leigja Dalvíkurbyggð húsnæði fyrir rekstur á líkhúsi til 5 ára.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að ofangreind samningsdrög á milli HSN og Dalvíkurbyggðar um leigu á húsnæði fyrir líkgeymslu verði samþykktur með breytingu á 3. gr. þar sem fram kemur að leigutaki annist á sinn kostnað alla umsýslu og þjónustu tengt rekstri líkhúss. Hlutverk Dalvíkurbyggðar samkvæmt samningi verði eingöngu að leigja umrætt húsnæði af HSN."
Til máls tóku:
Kristinn Bogi Antonsson.
Freyr Antonsson.
Monika Margrét Stefánsdóttir.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi drög að samningi á milli HSN og Dalvíkurbyggðar um leigu á húsnæði fyrir líkgeymslu með breytingu á 3. gr. þar sem Dalvíkurbyggð sem leigutaki mun ekki annast á sinn kostnað alla umsýslu og þjónustu tengt rekstri líkhúss.
Leigufjárhæðin er kr. 10.000 á mánuði, Dalbær sér um umsjón rýmisins, Kristján Ólafsson safnaði fyrir endurnýjun búnaðar. Nú er að hefjast vinna við að koma þessu rými í notkun aftur.
Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að byggðaráð taki málefnið almennt rekstur líkgeymslna til umfjöllunar.