Tengiráðgjafar

Málsnúmer 202512037

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 293. fundur - 10.02.2026

Tekið fyrir erindi dags. 25.11.2025 frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu þar sem fram kemur að Félags- og húsnæðismálaráðuneytið leggi ríka áherslu á að efla þjónustu við eldra fólk, með sérstakri áherslu á uppbyggingu hjúkrunarrýma og dagdvalarrýma um land allt. Á síðustu árum hefur myndast veruleg uppsöfnuð þörf fyrir ný hjúkrunarrými og er því brýnt að ráðast í markvissar aðgerðir til að bregðast við þeirri stöðu.
Samhliða uppbyggingu hjúkrunarheimila verði áfram unnið að því að styðja við eldra fólk til að búa á eigin heimili eins lengi og kostur er. Til þess verður lögð áhersla á frekari eflingu og þróun dagdvala, sem eru mikilvægur þáttur í því að styðja sjálfstæða búsetu, draga úr félagslegri einangrun og efla lífsgæði eldra fólks.
Undanfarin ár hefur ráðuneytið veitt styrki til ráðningar tengiráðgjafa sem höfðu það hlutverk að vinna gegn félagslegri einangrun og einmanaleika viðkvæmra hópa. Tengiráðgjafarnir hafa gegnt veigamiklu hlutverki og unnið ötullega að markmiði sínu, auk þess sem þeir hafa verið mikilvægur þáttur í undirbúningi og innleiðingu samþættrar heimaþjónustu á þróunarsvæðum Gott að eldast.
Styrkveitingar til ráðningar tengiráðgjafa voru hluti af viðbrögðum stjórnvalda við félags- og heilsufarslegum afleiðingum Covid-19 heimsfaraldursins. Sérstökum mótvægisaðgerðum til að sporna gegn afleiðingum heimsfaraldursins er nú lokið. Af þeim sökum er ekki unnt að veita áframhaldandi styrki til ráðningar tengiráðgjafa.
Ráðuneytið mun áfram leggja ríka áherslu á að efla stuðningsúrræði og uppbyggingu þjónustu fyrir eldra fólk, tryggja samfellu í þróun þjónustu og vinna að fjölbreyttum lausnum sem styrkja bæði einstaklinga og nærumhverfi þeirra.

Dalvíkurbyggð er þátttakandi í tilraunaverkefninu Gott að eldast og var ráðinn tengiráðgjafi á tilraunatímabilinu eða út árið 2027. Búið er að senda bréf til byggðarráðs vegna þessa í samvinnu við forstöðumann Dalbæjar.
Félagsmálaráð lýsir yfir óánægju sinni með ákvörðun Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins um að hætta að veita fjárstyrk í störf tengiráðgjafa í verkefninu Gott að eldast. Félagsmálaráð skorar á ráðuneytið að staðið verði við nýgerða samninga og greiði þessa upphæð á meðan tilraunaverkefninu Gott að eldast stendur. Mjög mikil vinna og metnaður hefur farið í þetta verkefni og telur ráðið þetta vera algjöran forsendubrest fyrir þessu mikilvæga verkefni.

Sveitarstjórn - 387. fundur - 17.02.2026

Á 293. fundi félagsmálaráðs þann 10. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi dags. 25.11.2025 frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu þar sem fram kemur að Félags- og húsnæðismálaráðuneytið leggi ríka áherslu á að efla þjónustu við eldra fólk, með sérstakri áherslu á uppbyggingu hjúkrunarrýma og dagdvalarrýma um land allt. Á síðustu árum hefur myndast veruleg uppsöfnuð þörf fyrir ný hjúkrunarrými og er því brýnt að ráðast í markvissar aðgerðir til að bregðast við þeirri stöðu.
Samhliða uppbyggingu hjúkrunarheimila verði áfram unnið að því að styðja við eldra fólk til að búa á eigin heimili eins lengi og kostur er. Til þess verður lögð áhersla á frekari eflingu og þróun dagdvala, sem eru mikilvægur þáttur í því að styðja sjálfstæða búsetu, draga úr félagslegri einangrun og efla lífsgæði eldra fólks.
Undanfarin ár hefur ráðuneytið veitt styrki til ráðningar tengiráðgjafa sem höfðu það hlutverk að vinna gegn félagslegri einangrun og einmanaleika viðkvæmra hópa. Tengiráðgjafarnir hafa gegnt veigamiklu hlutverki og unnið ötullega að markmiði sínu, auk þess sem þeir hafa verið mikilvægur þáttur í undirbúningi og innleiðingu samþættrar heimaþjónustu á þróunarsvæðum Gott að eldast.
Styrkveitingar til ráðningar tengiráðgjafa voru hluti af viðbrögðum stjórnvalda við félags- og heilsufarslegum afleiðingum Covid-19 heimsfaraldursins. Sérstökum mótvægisaðgerðum til að sporna gegn afleiðingum heimsfaraldursins er nú lokið. Af þeim sökum er ekki unnt að veita áframhaldandi styrki til ráðningar tengiráðgjafa.
Ráðuneytið mun áfram leggja ríka áherslu á að efla stuðningsúrræði og uppbyggingu þjónustu fyrir eldra fólk, tryggja samfellu í þróun þjónustu og vinna að fjölbreyttum lausnum sem styrkja bæði einstaklinga og nærumhverfi þeirra.
Dalvíkurbyggð er þátttakandi í tilraunaverkefninu Gott að eldast og var ráðinn tengiráðgjafi á tilraunatímabilinu eða út árið 2027. Búið er að senda bréf til byggðarráðs vegna þessa í samvinnu við forstöðumann Dalbæjar.
Niðurstaða : Félagsmálaráð lýsir yfir óánægju sinni með ákvörðun Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins um að hætta að veita fjárstyrk í störf tengiráðgjafa í verkefninu Gott að eldast. Félagsmálaráð skorar á ráðuneytið að staðið verði við nýgerða samninga og greiði þessa upphæð á meðan tilraunaverkefninu Gott að eldast stendur. Mjög mikil vinna og metnaður hefur farið í þetta verkefni og telur ráðið þetta vera algjöran forsendubrest fyrir þessu mikilvæga verkefni."
Til máls tóku:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri.
Monika Margrét Stefánsdóttir.
Kristinn Bogi Antonsson.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að taka undir bókun félagsmálaráðs og lýsir sveitarstjórn yfir mikilli óánægju sinni með ákvörðun Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins um að hætta að veita fjárstyrk í störf tengiráðgjafa í verkefninu Gott að eldast. Sveitarstjórn skorar á ráðuneytið að staðið verði við nýgerða samninga á meðan tilraunaverkefninu Gott að eldast stendur. Mjög mikil vinna og metnaður hefur farið í þetta verkefni. Gott að eldast verkefnið hefur gengið mjög vel en er á mjög viðkvæmum stað og mikilvægt að sú vinna sem er í gangi fái að halda áfram óáreitt. Sveitarstjórn jafnframt fer fram á fund um málið með ráðherra/ráðuneytinu sem fyrst.