Skipulagsráð

42. fundur 14. janúar 2026 kl. 14:00 - 16:04 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Katrín Sif Ingvarsdóttir formaður
  • Freyr Antonsson, aðalmaður boðaði forföll og Júlíus Magnússon varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Emil Júlíus Einarsson aðalmaður
  • Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson aðalmaður
  • Þorsteinn Ingi Ragnarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • María Markúsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson
Fundargerð ritaði: María Markúsdóttir Skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045

Málsnúmer 202302116Vakta málsnúmer

Lögð fram til umræðu staða vinnu við nýtt Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045.
Lagt fram til umræðu.

2.Nýtt íbúðasvæði við Böggvisbraut - breyting á aðalskipulagi

Málsnúmer 202410032Vakta málsnúmer

Auglýsingu tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna íbúðabyggðar vestan Böggvisbrautar lauk þann 12.janúar sl.
Engar athugasemdir bárust.
Umsagnir bárust frá Norðurorku, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, Minjastofnun Íslands, Rarik, Vegagerðinni og Náttúruverndarstofnun.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020, skv. 1.mgr. 32.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

3.Böggvisbraut - nýtt deiliskipulag

Málsnúmer 202302121Vakta málsnúmer

Auglýsingu tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir íbúðabyggð vestan Böggvisbrautar lauk þann 12.janúar sl.
Engar athugasemdir bárust.
Umsagnir bárust frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, Mílu, Minjastofnun Íslands, Vegagerðinni og Rarik.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að deiliskipulagi íbúðarbyggðar vestan Böggvisbrautar skv. 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeirri breytingu eftir auglýsingu að götuheitum verði bætt inn á skipulagsuppdrátt.
Skipulagsráð samþykkir að götur innan skipulagssvæðisins fái heitin Karlsrauðatorg, Ægisgata og Garðastígur.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

4.Selárland - breyting á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar

Málsnúmer 202503039Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020, unnin af Teikna - teiknistofu arkitekta, vegna áforma um uppbyggingu afþreyingar- og ferðamannasvæðis í landi Selár við Hauganes.
Kynningu á tillögu á vinnslustigi lauk þann 23.júlí sl. og bárust engar athugasemdir.
Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 6.júní sl.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 og að tillagan verði auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

5.Selárland - nýtt deiliskipulag fyrir ferðaþjónustu og frístundabyggð

Málsnúmer 202503040Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir ferðamanna- og þjónustusvæði í Selárlandi við Hauganes, unnin af teiknistofunni NordicArch.
Kynningu á tillögu á vinnslustigi lauk þann 23.júlí sl. og bárust engar athugasemdir.
Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 6.júní sl.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að deiliskipulagi með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum og að tillagan verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samhliða auglýsingu aðalskipulagsbreytingar.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

6.Deiliskipulag Hauganess - breyting á skipulagsmörkum

Málsnúmer 202509051Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að breyttri afmörkun deiliskipulags fyrir Hauganes í tengslum við nýtt deiliskipulag fyrir ferðaþjónustu- og frístundabyggð við Sandvík.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hauganess og að tillagan verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samhliða auglýsingu aðalskipulagsbreytingar og deiliskipulagstillögu fyrir ferðaþjónustu og frístundabyggð við Sandvík.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

7.Hesthúsasvæði Hringsholti - nýtt deiliskipulag

Málsnúmer 202409139Vakta málsnúmer

Kynningu á skipulagslýsingu fyrir nýtt deiliskipulag hesthúsasvæðis í Hringsholti lauk þann 24.desember sl.
Engar athugasemdir bárust.
Umsagnir bárust frá Mílu, Minjastofnun Íslands, Hestamannafélaginu Hring, Rarik og Vegagerðinni.
Skipulagsráð felur skipulagsfulltrúa að vinna áfram að deiliskipulagstillögu í samvinnu við skipulagshönnuði.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

8.Athafnasvæði við Sandskeið - nýtt deiliskipulag

Málsnúmer 202409138Vakta málsnúmer

Kynningu á skipulagslýsingu fyrir nýtt deiliskipulag athafnasvæðis við Sandskeið á Dalvík lauk þann 23.desember sl.
Engar athugasemdir bárust.
Umsagnir bárust frá Mílu, Minjastofnun Íslands, Rarik, framkvæmdasviði Dalvíkurbyggðar og Vegagerðinni.
Skipulagsráð felur skipulagsfulltrúa að vinna áfram að deiliskipulagstillögu í samvinnu við skipulagshönnuði.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

9.Athafnasvæði í landi Ytri Haga - nýtt deiliskipulag

Málsnúmer 202511032Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga á vinnslustigi, unnin af Eflu verkfræðistofu, að deiliskipulagi iðnaðarsvæðis í landi Ytri-Haga þar sem Norðurorka hyggst byggja upp svæði til jarðhitanýtingar.
Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 28.júní 2024.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu á vinnslustigi og að tillagan verði kynnt skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

10.Ægisgata 31 Árskógssandi - fyrirspurn um uppbyggingaráform

Málsnúmer 202504020Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Hellings ehf. þar sem kynnt eru áform um uppbyggingu á lóðum nr. 29 og 31 við Ægisgötu og 26 við Öldugötu á Árskógssandi.
Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 9.apríl 2025.
Lagt fram til kynningar.

11.Dalbær - umsókn um uppsetningu hleðslustöðvar

Málsnúmer 202601003Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 31.desember 2025 þar sem Elísa Rán Ingvarsdóttir f.h. Dalbæjar hjúkrunarheimilis sækir um leyfi til uppsetningar á hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla á lóð Dalbæjar.
Skipulagsráð samþykkir erindið með fyrirvara um jákvæða umsögn framkvæmdasviðs.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

12.Íslandsmeistaramót í snocrossi 2026

Málsnúmer 202601048Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9.janúar 2026 þar sem Freyr Antonsson f.h. Miðgarðs akstursíþróttafélags og MSÍ sækir um leyfi til að halda Íslandsmeistaramót í snocrossi á Dalvík þann 31.janúar nk.
Fyrirhuguð staðsetning er svæði fyrir neðan Brekkusel en til vara er sótt um svæði norðan við Samherja.
Meðfylgjandi eru greinargerð og afstöðumyndir.
Skipulagsráð samþykkir erindið með fyrirvara um jákvæða umsögn slökkviliðs Dalvíkurbyggðar, hafnarstjóra og lóðarhafa á svæðinu auk leyfis lögreglustjórans á Norðurlandi eystra.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

13.Hamarslandið - skráning staðfanga

Málsnúmer 202502087Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar dagsett 7.febrúar 2025 þar sem farið er fram á að frístundalóðum í landi Hamars verði gefin formleg staðföng, þ.e. götuheiti og húsnúmer.
Frestað til næsta fundar.

14.Bekkur Jóhanns Svarfdælings - færsla á Ráðhúslóð

Málsnúmer 202407048Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar bókun menningarráðs frá 11.desember sl. varðandi staðsetningu á bekk Jóhanns Svarfdælings.
Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 10.desember sl. og var afgreiðslu frestað þar sem umsögn menningarráðs lá ekki fyrir.
Skipulagsráð samþykkir að minnismerkinu verði fundinn nýr staður þegar nýtt byggðasafn hefur risið.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

15.Gjaldskrár 2026

Málsnúmer 202508069Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað Pacta lögmanna, dagsett 11.desember sl., varðandi gjaldtöku vegna uppbyggingar á svæðum utan þéttbýlis í Dalvíkurbyggð.
Lagt fram til kynningar.

16.Landeldi við Hauganes - tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu

Málsnúmer 202511122Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Skipulagsstofnunar þar sem tilkynnt er um að Laxós ehf. hefur dregið til baka tilkynningu til ákvörðunar um matsskyldu á áformum um uppbyggingu landeldis norðan við Hauganes og hyggst nú fara með áformin í fullt mat á umhverfisáhrifum.
Lagt fram til kynningar.

17.Fundargerðir byggingarfulltrúa 2025

Málsnúmer 202501031Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 10. fundar dags. 19.desember 2025, með fullnaðarafgreiðslum erinda.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 16:04.

Nefndarmenn
  • Katrín Sif Ingvarsdóttir formaður
  • Freyr Antonsson, aðalmaður boðaði forföll og Júlíus Magnússon varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Emil Júlíus Einarsson aðalmaður
  • Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson aðalmaður
  • Þorsteinn Ingi Ragnarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • María Markúsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson
Fundargerð ritaði: María Markúsdóttir Skipulagsfulltrúi