Deiliskipulag Hauganess - breyting á skipulagsmörkum

Málsnúmer 202509051

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 42. fundur - 14.01.2026

Lögð fram tillaga að breyttri afmörkun deiliskipulags fyrir Hauganes í tengslum við nýtt deiliskipulag fyrir ferðaþjónustu- og frístundabyggð við Sandvík.
Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hauganess og að tillagan verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samhliða auglýsingu aðalskipulagsbreytingar og deiliskipulagstillögu fyrir ferðaþjónustu og frístundabyggð við Sandvík.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

Sveitarstjórn - 386. fundur - 20.01.2026

Á 42. fundi skipulagsráðs þann 14. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Lögð fram tillaga að breyttri afmörkun deiliskipulags fyrir Hauganes í tengslum við nýtt deiliskipulag fyrir ferðaþjónustu- og frístundabyggð við Sandvík.
Niðurstaða : Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hauganess og að tillagan verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samhliða auglýsingu aðalskipulagsbreytingar og deiliskipulagstillögu fyrir ferðaþjónustu og frístundabyggð við Sandvík.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu skipulagsráðs og framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hauganess og að tillagan verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samhliða auglýsingu aðalskipulagsbreytingar og deiliskipulagstillögu fyrir ferðaþjónustu og frístundabyggð við Sandvík.