Á 42. fundi skipulagsráðs þann 14. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Erindi dagsett 9.janúar 2026 þar sem Freyr Antonsson f.h. Miðgarðs akstursíþróttafélags og MSÍ sækir um leyfi til að halda Íslandsmeistaramót í snocrossi á Dalvík þann 31.janúar nk.
Fyrirhuguð staðsetning er svæði fyrir neðan Brekkusel en til vara er sótt um svæði norðan við Samherja.
Meðfylgjandi eru greinargerð og afstöðumyndir.
Niðurstaða : Skipulagsráð samþykkir erindið með fyrirvara um jákvæða umsögn slökkviliðs Dalvíkurbyggðar, hafnarstjóra og lóðarhafa á svæðinu auk leyfis lögreglustjórans á Norðurlandi eystra.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Fyrir liggja eftirfarandi umsagnir:
Umsögn sveitarstjóra/hafnastjóra fyrir hönd Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar, dagsett þann 15. janúar 2026, þar sem gerð er ein athugasemd við fyrirhugaða lokun á Austurgarði. Fram kemur að hafa þarf lokunina aðeins norðar en merkt er inn á meðfylgjandi teikningu. Tryggja þarf að masturshús lokist ekki inni svo hægt sé að sinna löndun ef þess þarf.
Umsögn Slökkviliðsstjóra Dalvíkurbyggðar, dagsett þann 19. janúar sl. Engar athugasemdir.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.