Byggðaráð

883. fundur 17. október 2018 kl. 16:00 - 19:52 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Jón Ingi Sveinsson formaður
  • Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson varaformaður
  • Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Starfsmenn
  • Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Frá 230. fundi fræðsluráðs þann 10. október 2018; Matarkostnaður í grunnskólum

Málsnúmer 201810039Vakta málsnúmer

Frestað til næsta fundar.

2.Fasteignaálagning 2019; tillaga um afslátt til elli- og örorkulífeyrisþega

Málsnúmer 201806121Vakta málsnúmer

Frestað til næsta fundar.

3.Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Beiðni um umsögn - rekstarleyfi. Hjallasel

Málsnúmer 201810054Vakta málsnúmer

Frestað til næsta fundar.

4.Frá vinnuhópi um nýja persónuverndarlöggjöf; Persónuverndarstefna og Öryggisstefna Dalvíkurbyggðar - tillaga

Málsnúmer 201807063Vakta málsnúmer

Frestað til næsta fundar.

5.Frá nefndasviði Alþingis; Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2019 - 2023 , 172. mál.

Málsnúmer 201810064Vakta málsnúmer

Frestað til næsta fundar.

6.Frá nefndasviði Alþingis; Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2019 -2033 , 173. mál.

Málsnúmer 201810065Vakta málsnúmer

Frestað til næsta fundar.

7.Frá Eyþingi; Skipun í fulltrúaráð Eyþings

Málsnúmer 201810034Vakta málsnúmer

Frestað til næsta fundar.

8.Frá Eyþingi; Byggðaráðstefnan 2018

Málsnúmer 201810053Vakta málsnúmer

Frestað til næsta fundar.

9.Frá Eyþingi; fundargerð stjórnar nr. 311

Málsnúmer 201802067Vakta málsnúmer

Frestað til næsta fundar.

10.Íbúafundur um Gamla skóla; samantekt úr könnun

Málsnúmer 201809053Vakta málsnúmer

Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Margrét Víkingsdóttir, upplýsingafulltrúi, kl. 16:00.


Á 878. fundi byggðaráðs þann 20. september 2018 var eftirfarandi bókað:
"Á 877. fundi byggðaráðs þann 13. september 2018 var eftirfarandi bókað:
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Margrét Víkingsdóttir, upplýsingafulltrúi, kl. 13:09. Til umræðu og undirbúningur fyrir fyrirhugaðan íbúafund um "Gamla skóla" og framtíðarhlutverk hans.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela upplýsingafulltrúa að koma með inn á næsta fund byggðaráðs tillögu að könnun til íbúa um hvert framtíðarhlutverk húsnæðisins ætti að vera.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga að rafrænni könnun um ofangreint málefni.
Til umræðu.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að könnun með áorðnum breytingum sem gerðar voru á fundinum."

Upplýsingafulltrúi kynnti samantekt sína úr ofangreindri könnun. Könnunin var framkvæmd í gegnum kannanakerfið SurveyMonkey og var opin frá 25. september til og með 5. október 2018. Könnunin var birt á heimasíðu og facebooksíðu sveitarfélagsins og var öllum opin þátttaka. Heildarfjöldi spurninga voru 5 og alls bárust 204 svör.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela upplýsingafulltrúa að birta helstu niðurstöður á heimasíðu Dalvíkurbyggðar.

11.Frá 37. fundi Atvinnumála- og kynningarráðs; 20 ára afmæli Dalvíkurbyggðar - beiðni um viðauka

Málsnúmer 201801076Vakta málsnúmer

Á 37. fundi atvinnumála- og kynningarráðs þann 3. október 2018 var eftirfarandi bókað:
"Á 36. fundi atvinnumála- og kynningarráðs var eftirfarandi meðal annars bókað:
,,Atvinnumála- og kynningarráð felur upplýsingafulltrúa að koma með tillögu að frekari hátíðarhöldum ásamt kostnaðaráætlun fyrir næsta fund ráðsins. "

Upplýsingafulltrúi leggur fyrir ráðið tillögu að hátíðarhöldum ásamt kostnaðaráætlun.
Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að leggja til að haldið verði upp á 20 ára afmæli Dalvíkurbyggðar með því að bjóða íbúum sveitarfélagsins í 20 ára afmæliskaffi. Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að óska eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2018 að upphæð allt að 450.000.- á deild 21-500. "

Með fundarboði byggðaráðs fylgdið beiðni um viðauka að upphæð kr. 450.000 á deild 21500 vegna afmæliskaffis í tilefni af 20 ára afmæli Dalvíkurbyggðar.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðauka nr. 36 við fjárhagsáætlun 2018, allt að kr. 450.000 við deild 21500. Viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að samið verði við Basalt á grundvelli tilboðs.

12.Frá Markaðsstofu Norðurlands; Skýrsla flugklasans Air 66N

Málsnúmer 201803105Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir rafpóstur dagsettur þann 10. október 2018 frá Markaðsstofu Norðurlands þar sem kynnt er skýrsla um starf Flugklasans Air 66N síðustu mánuði.

Til umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar.

13.Frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu; Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2018/2019

Málsnúmer 201810001Vakta málsnúmer

Guðmundur St. Jónsson vék af fundi kl. 16:44 vegna vanhæfis.

Tekinn fyrir rafpóstur frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, dagsettur þann 5. október 2018, þar sem kynnt er auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskiveiðiársins 2018/2019. Með auglýsingunni vill ráðuneytið gefa bæjar- og sveitarstjórnum kost á að sækja um byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2018/2019 á grundvelli 10. gr. laga nr. 116/2006, með síðari breytingum. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2018.

Til umræðu ofangreint.

Margrét vék af fundi kl. 16:46.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að fela sveitarstjóra að sækja um byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2018/2019, Guðmundur St. Jónsson tekur ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.

14.Frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs; Bílamál sveitarfélagsins, endurskoðun - nýkaup fyrir UT-svið

Málsnúmer 201806106Vakta málsnúmer

Guðmundur St. Jónsson kom inn á fundinn að nýju kl.16:47.

Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Börkur Þór Ottósson, sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs, kl. 16:48.

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga sviðsstjóra UT-sviðs um að keyptur verði Nissa Leaf N-Connecta ásamt vetrardekkjum á felgum og hleðslustöð. Áætlaður heildarkostnaður er nálægt þeim 5 m.kr. sem gert er ráð fyrir í bílakaup á þessu ári fyrir UT-svið.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindri beiðni til fjárhagsáætlunar 2019 og heimilar kaup á ofangreindri tegund að bifreið með fyrirvara um að tillagan verði samþykkt í fjárhagsáætlun 2019 af sveitarstjórn.

15.Frá sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs; Fjárhagsáætlun 2018: endurnýjun og/eða viðhald á stoðvegg á lóðarmörkum við Hafnarbraut 16 og 18 - beiðni um viðauka

Málsnúmer 201708036Vakta málsnúmer

Tekin fyrir erindi frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2018 þannig að áætlað framlag að upphæð 2,0 m.kr. vegna stoðveggja við Hafnarbraut 16 og 18 færist yfir á fjárhagsáætlun 2019 þar sem húseigendur munu ekki hefja framkvæmdir fyrr en á næsta ári samkvæmt samþykktu samkomulagi sem tekið var fyrir á fundi byggðaráðs nr.879.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka nr. 37 við fjárhagsáætlun 2018 þannig að liður 09290-4620 verði kr. 0. Viðaukunum verði mætt með hækkun á handbæru fé.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi hvað varðar árið 2019 til gerðar fjárhagsáætlunar 2019.

16.Frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs; Samantekt vegna framkvæmda við rennibrautir

Málsnúmer 201810063Vakta málsnúmer

Tekin fyrir greinargerð frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs, dagsett þann 11. október 2018, er varðar framkvæmdir við rennibrautir við Sundlaug Dalvíkur og framúrkeyrslu á kostnaði umfram heimildir.

Í upprunalegri áætlun var gert ráð fyrir 35,0 m.kr. í rennibraut en bygginganefnd Sundlaugar Dalvíkur mælti með að keypt yrði tvöföld vatnsrennibraut og óskaði því eftir viðauka að upphæð 15 m.kr., sbr. erindi dagsett þann 26. mars 2018. Áætlaður heildarkostnaður við verkið var kr. 49.931.020 og samþykkt heimild á fjárhagsáætlun 50 m.kr.

Í greinargerð sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs kemur fram að heildarkostnaður við rennibrautirnar varð kr. 66.749.331 eða 33,5% fram yfir heimild og er farið yfir ástæður þess að verkið var mun kostnaðarsamara en gert var ráð fyrir í greinargerðinni.

Til umræðu ofangreint.

Lagt fram til kynningar.

17.Fjárhagsáætlun 2019; Frá Hjörleifi Hjartarsyni- Friðland Svarfdæla

Málsnúmer 201808076Vakta málsnúmer

Á 876. fundi byggðaráðs þann 6. september 2018 var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Hjörleifi Hjartarsyni, dagsett þann 18. ágúst 2018, þar sem Hjörleifur minnir á að við gerð fjárhagsáætlunar 2019 þurfi að gera ráð fyrir verkefnum tengd Friðlandi Svarfdæla sem áður voru á höndum Náttúruseturs á Húsabakka.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til umfjöllunar umhverfisráðs og óskar eftir að fá rökstudda tillögu að afgreiðslu."

Á fundinum upplýsti sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs að erindið hefur ekki verið tekið fyrir í umhverfisráði þar sem beðið er eftir viðbrögðum frá Umhverfisstofnun varðandi drög að samkomulagi á milli Dalvíkurbyggðar og Umhverfisstofnunar um Friðland Svarfdæla.

Á 857. fundi byggðaráðs þann 22. febrúar 2018 var meðal annars bókað:"Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að eiga fund með Umhverfisstofnun um ofangreind samningsdrög og koma ábendingum sem fram hafa komið á framfæri."

Sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs gerði grein fyrir fundi sem hann og fyrrverandi sveitarstjóri áttu með Umhverfisstofnun og hvar málið er statt.
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að óska eftir fundi með Umhverfisstofnun við fyrsta tækifæri í Dalvíkurbyggð svo hægt sé að ljúka málinu hið fyrsta.

b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til að gert verði ráð fyrir kr. 1.000.000 á fjárhagsáætlun 2019 vegna Friðlands Svarfdæla; viðhald og uppbygging.

18.Fjárhagsáætlun 2019; Beiðni um framlag til bílakaupa og endurbóta á salernisaðstöðu

Málsnúmer 201809015Vakta málsnúmer

Á 878. fundi byggðaráðs þann 20. september 2018 var eftirfarandi bókað:
"Á 221. fundi félagsmálaráðs þann 18. september s.l. var meðal annars eftirfarandi bókað:
a)Félagsmálaráð leggur til að byggðarráð samþykki styrk til bílakaupa til Dalbæjar með þeim rökum að með nýjum lögum er aukin þörf á slíkum bíl til ferðaþjónustu fatlaðra í sveitarfélaginu. Við leggjum til að gerður verði þjónustusamningur um samnýtingu bifreiðarinnar milli Dalbæjar og félagsmálasviðs. Við leggjum til að styrkurinn verði í hlutfalli við áætlaða nýtingu sviðsins á bifreiðinni. b) Félagsmálaráð vísar erindinu samhljóða til eignarsjóðs og telur sig ekki hafa forsendur til að meta umsókn þessa. "
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2019 og 2020-2022."

Til umræðu ofangreint.

Börkur Þór vék af fundi kl. 17:40.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til að gert verði ráð fyrir allt að kr. 6.000.000 framlagi frá Dalvíkurbyggð vegna kaupa á bifreið fyrir Dalbæ og gerður verði samningur á milli Dalvíkurbyggðar og Dalbæjar um afnot sveitarfélagsins.

19.Fjárhagsáætlun 2019 og þriggja ára áætlun 2020-2022; allt sem stendur út af.

Málsnúmer 201806016Vakta málsnúmer

a) Starfsáætlanir

Með fundarboði byggðaráðs fylgdu uppfærðar starfsáætlanir frá umhverfis- og tæknisviði og fræðslu- og menningarsviði.

b) Rekstur og rammar

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi samantekt á niðurstöðum vinnubóka í samanburði við fjárhagsramma. Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir frávik.

c) Viðhald

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi uppfærð tillaga að viðhaldi Eignasjóðs.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir breytingar á milli funda.

d) Framkvæmdir

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi uppfærð tillaga frá umhverfis- og tæknisviði að framkvæmdum Eignasjóðs

e) Beiðnir um búnaðarkaup

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi samantekt á beiðnum stjórnenda um búnaðarkaup. Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti samantektina og frávik á milli beiðna, áætlunar og endurnýjaráætlunar vegna tölvu- og hugbúnaðamála.

f) Afgreiðslur á erindum

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi samantekt á erindum sem bárust vegna auglýsingar um fjárhagsáætlun, umfjöllun og afgreiðslur á þeim. Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti stöðu mála.

g) Önnur mál.

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi samantekt á öðrum útistandandi atriðum sem á eftir að taka ákvörðun um.
a) Lagt fram til kynningar.
b) Lagt fram til kynningar.
c) Samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum að taka út úr viðhaldsáætlun Eignasjóðs 5,0 m.kr. vegna girðingar við Sundlaug Dalvíkur.
d) Lagt fram til kynningar.
e) Á fundinum var unnið að breytingum á áætlun um búnaðarkaup á grundvelli frávika.
f) Lagt fram til kynningar.
g) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til að 2,0 m.kr. verði settar á deild 13800 inn á fjárhagsáætlun 2019 vegna nýsköpunar- og þróunarstyrkja í samræmi við fyrirliggjandi drög að reglum.

Á fundinum var farið yfir bókanir veitu- og hafnaráðs frá 79. fundi þann 17. október 2018, mál 201808031 og mál 201707032. Byggðaráð felur sveitarstjóra að fara yfir málin með sviðsstjóra veitu- og hafnasviðs.

Frekari umfjöllun frestað til næsta fundar.

20.Frá 229. fundi fræðsluráðs þann 12. september 2018; Skólamatur - Breyting á kostnaðarskiptingu

Málsnúmer 201809031Vakta málsnúmer

Frestað til næsta fundar.

21.Gjaldskrár Dalvíkurbyggðar 2019; til umræðu

Málsnúmer 201808068Vakta málsnúmer

Frestað til næsta fundar.

Fundi slitið - kl. 19:52.

Nefndarmenn
  • Jón Ingi Sveinsson formaður
  • Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson varaformaður
  • Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Starfsmenn
  • Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs