Matarkostnaður í grunnskólum

Málsnúmer 201810039

Vakta málsnúmer

Fræðsluráð - 230. fundur - 10.10.2018

Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu-og menningarsviðs, lagði fram minnisblað um verð á máltíðum til starfsmanna grunnskóla í nokkrum sveitarfélögum.
Lagt fram til kynningar og umræðu. Fræðsluráð samþykkir með fimm atkvæðum að verð á máltíðum til starfsmanna grunnskóla verði óbreytt frá því sem nú er.

Byggðaráð - 883. fundur - 17.10.2018

Frestað til næsta fundar.

Byggðaráð - 884. fundur - 18.10.2018

Á 230. fundi fræðsluráðs þann 10. október 2018 var eftirfarandi bókað:
"Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu-og menningarsviðs, lagði fram minnisblað um verð á máltíðum til starfsmanna grunnskóla í nokkrum sveitarfélögum.
Lagt fram til kynningar og umræðu. Fræðsluráð samþykkir með fimm atkvæðum að verð á máltíðum til starfsmanna grunnskóla verði óbreytt frá því sem nú er."

Til umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar með vísan í 4. lið hér að ofan.