Byggðaráð

1174. fundur 12. febrúar 2026 kl. 13:15 - 16:30 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Helgi Einarsson formaður
  • Freyr Antonsson varaformaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
Samþykkt var samhljóða að bæta við 2 málum á dagskrá byggðaráðs:
Liður 21; mál 202602068.
Liður 22; mál 202602055.

1.Frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar og íþróttafulltrúa; Íþróttamiðstöð - breytingar á gufuklefa

Málsnúmer 202411089Vakta málsnúmer

Á 1173. fundi byggðaráðs þann 29. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Helga Íris Ingólfsdóttir, deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar, kl. 13:15.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar og íþróttafulltrúa, dagsett þann 27.01.2026, er varðar ástandsmat gufuklefa í Íþróttamiðstöð í janúar 2026.
Fram kemur m.a. að undanfarið hefur verið ljóst að fara þarf í endurbætur á gufuklefanum í Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar og á viðhaldsáætlun Eignasjóðs og fjárfestingaáætlun Dalvíkurbyggðar er gert ráð fyrir því að fjárfesta í gufuklefa úti á sundlaugarsvæðinu og breyta núverandi klefa í hlutlausan sturtuklefa eða aðstöðu fyrir einstaklinga sem þurfa aðstoð. Öll útfærsla og hönnun á breytingum innanhúss er eftir.
Í byrjun janúar 2026 var ákveðið að loka gufuklefanum í Íþróttamiðstöðinni til að skoða betur hvort hægt væri að ráðast í lítilháttar viðgerðir á gólfinu í klefanum sem gæti haldið honum starfhæfum fram á næsta ár.
Í stórum dráttum er um þrjár leiðir að ræða til að takast á við þetta verkefni:
1. Loka gufuklefanum alveg og leyfa honum að þorna. Gert er ráð fyrir kaupum og uppsetningu á gufuklefa úti á sundlaugarsvæðinu á næsta ári og breytingum á núverandi klefa þannig að það svæði nýtist undir hlutlausa klefa.
Framkvæmdir aðrar en fjarlæging á flísum og epoxý-húð geymd fram á næsta ár.
2. Loka gufuklefanum um ótiltekin tíma, flýta fyrir þornun og endurnýja gólfefni og þannig koma aftur í starfhæft ástand. Áætlaður opnunartími gufuklefans er þá óviss, en lílega ekkifyrr en í sumar í fyrsta lagi.
3. Flýta áætluðum kaupum á gufuklefa út á sundlaugarsvæði. Nýr gufuklefi ætti að vera kominn upp innan þriggja mánaða ef allt gengur upp. Núverandi klefa yrði lokað og honum leyft að þorna. Framkvæmdir innanhúss og breytingar á klefa verða áfram á áætlun ársins 2027.
Til umræðu ofangreint.
Helga Íris vék af fundi kl. 13:29.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til að farin verði leið #3 hér að ofan, með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar um viðauka.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela deildarstjóra EF-deildar og íþróttafulltrúa að vinna áfram að málinu og leggja fyrir byggðaráð tillögu að lausn skv. leið 3 ásamt viðaukabeiðni."

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi viðaukabeiðni frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar og íþróttafulltrúa, dagsett þann 10. febrúar sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 til þess að kaupa frístandandi gufuklefa á lóð Sundlaugar Dalvíkur eða Íþróttamiðstöðvar. Í erindinu kemur fram hvaða tegund er lögð til í samráði við starfsmenn Íþróttamiðstöðvar. Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 4.000.000 á lið 32200-11603.
Byggðráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2026, viðauka nr. 7 að upphæð kr., 4.000.000 á lið 32200-11603. Byggðaráð samþykkir að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Freyr Antonsson situr hjá.

2.Skrifstofur Dalvíkurbyggðar; endurbætur - staða mála.

Málsnúmer 202410125Vakta málsnúmer

Til umræðu staða mála hvað varðar áætlanir um endurbætur á Skrifstofum Dalvíkurbyggðar.

Sveitarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála.
Lagt fram til kynningar.

3.Húsnæðismál Byggaðsafns - staða mála.

Málsnúmer 202503032Vakta málsnúmer

Til umræðu staða mála hvað varðar áætlanir um byggingu á nýju byggðasafni.

Freyr Antonsson gerði grein fyrir stöðu mála.

Næsti fundur vinnuhóps er næst komandi þriðjudag. Þar mætir arkitekt með tillögur að byggðasafni; viðbygging við Berg. Sveitarstjórn er boðið að koma á fundinn kl. 14:00.
Lagt fram til kynningar.

4.Húsnæðismál Slökkvistöðvar - staða mála

Málsnúmer 202110061Vakta málsnúmer

Til umræðu staða mála hvað varðar áætlanir um byggingu nýrrar slökkvistöðvar.

Sveitarstjóri upplýsti um stöðu mála.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að vinnuhópur vegna húsnæðismála slókkviliðs verði lagður niður og verkefnið verði unnið áfram í gegnum byggðaráð. Samráð verði áfram við slökkviliðsstjóra, slökkvilið og aðra hlutaðeigandi. Aðilar verði því boðaðir inn á fundi byggðaráðs eftir því sem þurfa þykir.

5.Trúnaðarmál

Málsnúmer 202602008Vakta málsnúmer

Bókað í trúnaðarmálabók.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauka nr. 8 við fjárhagsáætlun 2026, þannig að liður 02570-4970 hækki um kr. 1.448.128. Byggðaráð samþykkir jafnfram að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé. Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn.

6.Mánaðarlegar skýrslur 2025; fjárfestingar og framkvæmdir

Málsnúmer 202502075Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti skýrslur yfir bókfærðar ( miðað við 03.02.2026) fjárfestingar og framkvæmdir Eignasjóðs, Hafnasjóðs, Vatnsveitu, Hitaveitu og Fráveitu 2025 í samanburði við heimildir í áætlun 2025.
Lagt fram til kynningar.

7.Fjárfestingar og framkvæmdir 2026

Málsnúmer 202602011Vakta málsnúmer

Til umræðu áætlun um fjárfestingar og framkvæmdir Dalvíkurbyggðar samkvæmt fjárhagsáætlun 2026 og þriggja ára áætlun 2027-2029.

Byggðaráð felur sveitarstjóra að afla upplýsinga hjá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar fyrir fund sveitarstjórnar varðandi hugmyndir um breytingu á framkvæmdaáætlun.

8.Viðræður um inngöngu í Hafnasamlag Norðurlands; lokaskýrslur

Málsnúmer 202506144Vakta málsnúmer

Á 1173. fundi byggðaráðs þann 29. janúar sl. kynntu Arnar Haraldsson og Haraldur L. Haraldsson frá HLH Ráðgjöf drög að greiningu á sameiningu Hafnasamlag Norðurlands og Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar.
Með fundarboði fylgdi lokadrög að ofangreindri greiningu. Fram kemur tillaga að skipulagi og framkvæmd viðræðna um sameininguna.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að viðræðum við Hafnasamlag Norðurlands verði haldið áfram.

9.Frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands; Styrktarsjóður EBÍ 2026 -umsóknarfrestur til febrúarloka

Málsnúmer 202601124Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Eignahaldsfélagi Brunabótafélags Íslands, dagsett þann 27. janúar sl., þar sem auglýst er eftir umsóknum um styrki úr styrktarsjóði EBÍ. Umsóknarfrestur er til febrúarloka.

https://ebi.is/styrktarsjodur_reglur.html

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela stjórnendum og starfsmönnum þeirra málaflokka sveitarfélagsins sem úthlutunarreglurnar ná yfir að sameinast um eitt verkefni og að senda inn umsókn fyrir hönd sveitarfélagsins.
Umsóknin þarf að falla undir gildandi starfs- og fjárhagsáætlun.

10.Líkgeymsla á Dalvík - HSN; drög að húsaleigusamningi

Málsnúmer 202512010Vakta málsnúmer

Í október 2025 barst sveitarfélaginu tilkynning frá forstjóra HSN að HSN hyggst hætta rekstri líkgeymslu í húsnæði heilsugæslunnar á Dalvík. Ástæðan er sú að kælibúnaðurinn er ónýtur og ekki hyggilegt að endurnýja hann. HSN lítur ekki á það sem hlutverk heilsugæslustöðva að reka slíka þjónustu sem og HSN hefur ekki fjármuni eða mannskap í verkefnið.

Sveitarstjóri gerði grein fyrir þeirri vinnu sem hefur farið fram, eftirfylgni við málið, samskipti við ráðuneyti, HSN, Dalbæ og íbúa í samfélaginu og þeirra lausna sem hefur verið leitað. Unnið hefur verið að lausn á þeim forsendum að um er að ræða sameiginlegt verkefni fyrir samfélagið. Safnað hefur verið fyrir nýjum kælibúnaði að frumkvæði íbúa.

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi drög að húsaleigusamningi á milli HSN og Dalvíkurbyggðar þar sem HSN er tilbúið að leigja Dalvíkurbyggð húsnæði fyrir rekstur á líkhúsi til 5 ára.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að ofangreind samningsdrög á milli HSN og Dalvíkurbyggðar um leigu á húsnæði fyrir líkgeymslu verði samþykktur með breytingu á 3. gr. þar sem fram kemur að leigutaki annist á sinn kostnað alla umsýslu og þjónustu tengt rekstri líkshúss. Hlutverk Dalvíkurbyggðar samkvæmt samningi verði eingöngu að leigja umrætt húsnæði af HSN.

11.Starfs- og kjaranefnd 2026 - fundargerðir

Málsnúmer 202601115Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynntu fundargerð starfs- og kjaranefndar frá 3. febrúar sl.
Lagt fram til kynningar.

12.Frá Bátum og búnaði ehf; Yfirlýsing um að nýta ekki forkaupsrétt á Sigurvin EA-380

Málsnúmer 202602039Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Bátum og búnaði ehf., dagsett þann 9. febrúar sl., þar sem óskað er yfirlýsingar Dalvíkurbyggðar um að sveitarfélagið ætli ekki að nýta sér forkaupsrétt á skipi nr. 1881.Um er að ræða Sigurvin EA-380.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að sveitarfélagið nýti sér ekki forkaupsrétt á Sigurvini EA-380 nr. 1881, sbr. lög um stjórn fiskiveiða nr. 116/2006, 12. gr., 3. mgr.

13.Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Hafðu áhrif - taktu þátt Átak til hvatningar framboða

Málsnúmer 202602021Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 5. febrúar sl. þar sem fram kemur að Sambandið ásamt innviðaráðuneytinu hefur sett í loftið átak sem miðar að því að styrkja lýðræðið á sveitarstjórnarstigi.
Markmið átaksins eru tvíþætt:
1. Hvetja nýtt fólk til þátttöku í stjórnmálum á sveitarstjórnarstigi, með áherslu á að virkja einstaklinga sem hafa ekki áður tekið þátt í framboði eða starfi sveitarstjórna.
2. Stuðla að áframhaldandi þátttöku núverandi kjörinna fulltrúa, þannig að þekking og reynsla haldist innan sveitarstjórna og tryggi stöðugleika í stjórnsýslu og ákvarðanatöku.

Sveitarfélög landsins eru hvött til að fylgjast með og styðja við átakið eftir því sem hægt er ? til dæmis með miðlun efnis á sínum samfélags- og vefmiðlum sem fram kemur í rafpóstinum.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela Upplýsingafulltrúa að miðla ofangreindu á vefmiðlum Dalvíkurbyggðar.

14.Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Landsþing Sambandsins á Akureyri

Málsnúmer 202602009Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur þann 3. febrúar sl., þar sem fram kemur að dagana 23.-25. september 2026 verður landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga haldið á Akureyri.
Landsþingið verður sett seinnipartinn þann 23. september og lýkur á hádegi 25. september.Öll sveitarfélög sem eiga aðild að Sambandinu eiga rétt til að senda fulltrúa á landsþingið í samræmi við íbúafjölda í viðkomandi sveitarfélagi 1. janúar 2026, sbr. ákvæði 5. gr.samþykkta Sambandsins. Þá eiga framkvæmdastjórar sveitarfélaga, þ.e. bæjar- og sveitarstjórar, auk formanna og framkvæmdastjóra landshlutasamtaka sveitarfélaga, rétt til setu á landsþingi með málfrelsi og tillögurétti.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að taka frá herbergi fyrir landsfulltrúa á vegum Dalvíkurbyggðar, í samræmi við rafpóst Sambandsins.

15.Frá Atlantsflugi ehf; Hvatning til umsagnar um þingsályktunartillögu um staðsetningu þyrlu Landhelgisgæslunnar

Málsnúmer 202602003Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir póstur frá Atlantsflugi ehf., dagsettur þann 2. febrúar sl., þar sem vakin er athygli á þingsályktunartillögu sem nú liggur fyrir Alþingi, 16. mál á 157. löggjafarþingi, um að koma á fastri starfsstöð fyrir eina af þyrlum
Landhelgisgæslu Íslands (LHG) á Akureyri. Hér er beinn tengill á þingsályktunartillöguna:
https://eur01.safelinks.protection.outlook.com/?url=https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-
thingum/ferill/157/16/?ltg=157&mnr=16&data=05|02|dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is|548e4dd96b96

Sveitarfélagið er hvatt til að nýta sér umsagnarfrestinn og koma fram með sjálfstæða umsögn þar sem tekið er mið af hagsmunum íbúa og mikilvægi þess að fjármunir ríkisins séu nýttir á sem skilvirkastan hátt.
Byggðaráð samþykktir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að ítreka bókun sína frá 362. fundi þann 7. nóvember 2023.

"Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar fagnar framkominni þingsályktunartillögu um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri. Að mati sveitarstjórnar væri þetta skynsamleg og tímabær ráðstöfun til að tryggja betur öryggi fólks víða um land, en eins og fram kemur í umsögn Landhelgisgæslu Íslands um sama mál þá yrði þetta stórt framfaraskref í viðbragðs-, öryggis,- og eftirlits- og björgunarmálum þjóðarinnar. Þannig myndi neyðar- og viðbragðsgeta Landhelgisgæslunnar við íbúa um land allt stóraukast, einkum á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi, á hálendinu og miðum landsins. Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar bendir einnig á niðurstöðu vísindarannsóknar teymis Dr. Björns Gunnarsson yfirlæknis sjúkraflugs og Dósents við Heilbrigðisvísindastofnun Háskólans á Akureyri. Þar er stuðst við gögn frá Hagstofu Íslands um búsetu allra landsmanna og einnig gögn frá Neyðarlínu um staðsetningar útkalla í fyrsta forgangi á sjö ára tímabili. Niðurstaðan er að viðbragðstími innan 60 mínútna færi úr 62% dekkunar fyrir eina starfsstöð eins og í dag í 94% dekkun fyrir seinni starfsstöð á Akureyri. Sveitarstjórn telur því ekki skynsamlegt að hafa allar þyrlur landhelgisgæslunnar staðsettar á sama landsvæði. Björgunarþyrla á Akureyri myndi ekki bara styrkja innviði neyðar- og viðbragðsþjónustu á því svæði sem betur verður þjónustað heldur skapast tækifæri til að koma á landsdekkandi sérhæfðu neyðar- og björgunarviðbragði með markvissu samstarfi viðbragðsaðila og þjálfun þeirra. Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar skorar á Alþingi að afgreiða þetta mál sem allra fyrst á jákvæðan hátt, enda myndi föst viðvera þyrlusveitarinnar á Akureyri einfaldlega geta bjargað mannslífum."

16.Frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra; Breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir (mál nr. S-32026) í samráðsgátt

Málsnúmer 202602027Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir rafpóstur frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, dagsettur þann 6. febrúar sl., þar sem Vakin er athygli á því að drög að frumvarpi um breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir eru nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Um er að ræða mál nr. S-3/2026. https://island.is/samradsgatt/mal/4150


Breytingarnar fela í sér umfangsmikinn flutning verkefna og valds frá kjörnum fulltrúum í heilbrigðisnefndum sveitarfélaga til ríkisins. Til að mynda flytur frumvarpið öll sértæk þvingunarúrræði laga nr. 7/1998 um
hollustuhætti og mengunarvarnir (áminningar, dagsektir, stöðvun framkvæmda o.s.frv.) frá sveitarfélögum til ríkisins (Umhverfis- og orkustofnunar).
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að breytingarnar muni hafa neikvæð áhrif á sveitarfélögin. Þar segir orðrétt:
„Viss óbein neikvæð áhrif á sveitarfélög kunna að felast í því að sérfræðiþekking sem hingað til hefur verið bundin við sveitarstjórnarstig flytjist að hluta til ríkisins [...]. Þá mun tiltekinn einskiptiskostnaður falla á sveitarfélög, t.d. vegna mögulegra biðlaunagreiðslna o.fl.“
Sveitarfélög á Norðurlandi eystra eru hvött til þess að kynna sér efni frumvarpsins vel og skila inn umsögnum í samráðsgátt fyrir 17. febrúar nk.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til sveitarstjórnar til umfjöllunar og afgreiðslu.

17.Frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis; Til umsagnar 305. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþings

Málsnúmer 202601126Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir rafpóstur frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis, dagsettur þann 28. janúar sl., þar sem Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar 305. mál ? Framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn
Frestur til að senda inn umsögn var til og með 11. febrúar sl.
Lagt fram til kynningar.

18.Frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis; Til umsagnar 311. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis

Málsnúmer 202601127Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis, dagsett þann 28. janúar sl., þar sem Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar311. mál ? Réttindavernd fatlaðs fólks
Frestur til að senda inn umsögn var til og með 11. febrúar sl.
Lagt fram til kynningar.

19.Frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis; Til umsagnar 312. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis

Málsnúmer 202601128Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis, rafpóstur dagsettur þann 29. janúar sl., þar sem Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar 312. mál ? Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir (stytting
bótatímabils o.fl.)
Frestur til að senda inn umsögn var til og með 11. febrúar sl.
Lagt fram til kynningar.

20.Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202602001Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Samband íslenskra sveitarfélaga nr. 992 frá 23. janúar sl.
Lagt fram til kynningar.

21.Frá Lánasjóði sveitarfélaga ohf.; Bréf til allra kjörinna fulltrúa - Vagna aðalfundar Lánasjóðsins 2026

Málsnúmer 202602068Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá framkvæmdastjóra Lánasjóðs sveitarfélaga, dagsett þann 12. febrúar sl., þar sem fyrir hönd tilnefningarnefndar Lánasjóðs sveitarfélaga er komið á framfæri erindi við alla kjörna fulltrúa í sveitarstjórn.
Auglýst er eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga og óskar tilnefningarnefnd eftir að framboð séu send í síðasta lagi kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 27. febrúar nk.
Lagt fram til kynningar.

22.Styrkbeiðni frá Ittoqqortoormiit

Málsnúmer 202602055Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá vinabæ Dalvíkurbyggðar á Grænlandi, dagsett þann 4. febrúar sl., þar sem óskað er eftir stuðningi og þátttöku í að kaupa tvær neyðarrafstöðvar til að tryggja hita og grunnþjónustu.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn.

Fundi slitið - kl. 16:30.

Nefndarmenn
  • Helgi Einarsson formaður
  • Freyr Antonsson varaformaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs