Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Hafðu áhrif - taktu þátt Átak til hvatningar framboða

Málsnúmer 202602021

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1174. fundur - 12.02.2026

Tekinn fyrir rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 5. febrúar sl. þar sem fram kemur að Sambandið ásamt innviðaráðuneytinu hefur sett í loftið átak sem miðar að því að styrkja lýðræðið á sveitarstjórnarstigi.
Markmið átaksins eru tvíþætt:
1. Hvetja nýtt fólk til þátttöku í stjórnmálum á sveitarstjórnarstigi, með áherslu á að virkja einstaklinga sem hafa ekki áður tekið þátt í framboði eða starfi sveitarstjórna.
2. Stuðla að áframhaldandi þátttöku núverandi kjörinna fulltrúa, þannig að þekking og reynsla haldist innan sveitarstjórna og tryggi stöðugleika í stjórnsýslu og ákvarðanatöku.

Sveitarfélög landsins eru hvött til að fylgjast með og styðja við átakið eftir því sem hægt er ? til dæmis með miðlun efnis á sínum samfélags- og vefmiðlum sem fram kemur í rafpóstinum.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela Upplýsingafulltrúa að miðla ofangreindu á vefmiðlum Dalvíkurbyggðar.