Á 1174. fundi byggðaráðs þann 12. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Eignahaldsfélagi Brunabótafélags Íslands, dagsett þann 27. janúar sl., þar sem auglýst er eftir umsóknum um styrki úr styrktarsjóði EBÍ. Umsóknarfrestur er til febrúarloka.
https://ebi.is/styrktarsjodur_reglur.htmlNiðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela stjórnendum og starfsmönnum þeirra málaflokka sveitarfélagsins sem úthlutunarreglurnar ná yfir að sameinast um eitt verkefni og að senda inn umsókn fyrir hönd
sveitarfélagsins. Umsóknin þarf að falla undir gildandi starfs- og fjárhagsáætlun."
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi upplýsingar og gögn þar sem fram kemur að Dalvíkurbyggð fékk úthlutað styrk úr sjóðnum að upphæð kr. 400.000 vegna umsóknar sinnar um "Upplýsingaskilti við Bögg", sbr. svarbréf Styrktarsjóðs EBÍ frá 31.03.2026.
Umsóknin þarf að falla undir gildandi starfs- og fjárhagsáætlun.