Sveitarstjórn

386. fundur 20. janúar 2026 kl. 16:15 - 17:03 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Freyr Antonsson aðalmaður
  • Sigríður Jódís Gunnarsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Júlíus Magnússon varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Katrín Sif Ingvarsdóttir aðalmaður
  • Helgi Einarsson aðalmaður
  • Gunnar Kristinn Guðmundsson aðalmaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
  • Kristinn Bogi Antonsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
Engar athugasemdir við fundarboð eða fundarboðun.

1.Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 1171; frá 08.01.2026

Málsnúmer 2601001FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 14 liðum.
Liður 2 er sér mál á dagskrá; mál 202512066.
Liður 3 er sér mál á dagskrá; mál 202512087.
Liður 4 er sér mál á dagskrá; mál 202503086.
Liður 10 er sér mál á dagskrá; mál 202601004.
Liður 11 er sér mál á dagskrá; mál 202510025.
Enginn tók til máls um fundargerðina.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

2.Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 1172; frá 15.01.2026

Málsnúmer 2601005FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 9 liðum
Liður 2 er sér mál á dagskrá; mál 202509063.
Liður 4 er sér mál á dagskrá; mál 202601035.
Liður 5 er sér mál á dagskrá; mál 202512066.
Liður 6 er sér mál á dagskrá; mál 202601005.
Liður 7 er sér mál á dagskrá; mál 202601064.
Liður 8 er sér mál á dagskrá; mál 202601066.
Enginn tók til máls um fundargerðina.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

3.Íþrótta- og æskulýðsráð - 181; frá 15.01.2026

Málsnúmer 2601003FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 3 liðum.
Ekkert þarfnast afgreiðslu.
Enginn tók til máls um fundargerðina.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

4.Skipulagsráð - 42; frá 14.01.2026

Málsnúmer 2601004FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 17 liðum.
Liður 2 er sér mál á dagskrá; mál 202410032.
Liður 3 er sér mál á dagskrá; mál 202302121.
Liður 4 er sér mál á dagskrá; mál 202503039.
Liður 5 er sér mál á dagskrá; mál 202503040.
Liður 6 er sér mál á dagskrá; mál 202509051.
Liður 12 er sér mál á dagskrá; mál 202601048.
Liður 14 er sér mál á dagskrá; mál 202407048.
Enginn tók til máls um fundargerðina.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

5.Skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga - 48; frá 08.01.2026

Málsnúmer 2512008FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 8 liðum.
Ekkert þarfnast afgreiðslu.
Enginn tók til máls um fundargerðina.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

6.Frá 1172. fundi sveitarstjórnar þann 08.01.2026; Viðaukabeiðni #1

Málsnúmer 202601005Vakta málsnúmer

Á 1172. fundi byggðaráðs þann 15. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
Á 1171. fundi byggðaráðs þann 8. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá leikskólastjóra þar sem óskað er eftir heimild til þess að auglýsa í 100% starf við Kötlukot.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að heimila leikskólastjóra að auglýsa starfið laust til umsóknar og óskar eftir því að fá viðaukabeiðni inn á næsta fund ráðsins."
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi viðaukabeiðni, viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun 2026, þar sem óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 7.644.968 á deild 04240-laun vegna aukningu stöðugilda í Kötlukoti vegn inntöku nemenda í skólann. Um er að ræða 100% starf leikskólakennara frá 1. janúar - 3. júlí og svo 7,5% aukning vegna flutnings leikskólakennara frá Krílakoti. Í janúar er aukning um 4 nemendur í Kötlukoti, barngildin eru 8 sem er þá eitt stöðugildi.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun 2026, að upphæð kr. 7.644.968 á deild 04240-laun og að honum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 1. við fjárhagsáætlun 2026 að upphæð kr. 7.644.968 á deild 04240-laun.
Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.

7.Frá 1172. fundi byggðaráðs þann 15.01.2026; Viðaukabeiðni #2.

Málsnúmer 202601064Vakta málsnúmer

Á 1172. fundi byggðaráðs þann 15. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Bókað í trúnaðarmálabók.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðaukabeiðni leikskólastjóra Krílakots, viðauka nr. 2. við fjárhagsáætlun 2026, að upphæð kr. 3.652.053 á deild 04140 og að honum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun 2026 að upphæð kr. 3.652.053 á deild 04140.
Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.

8.Frá 1172. fundi byggðaráðs þann 15.01.2026; Viðaukabeiðni #3

Málsnúmer 202601066Vakta málsnúmer

Á 1172. fundi byggðaráðs þann 15. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Bókað í trúnaðarmálabók.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðaukabeiðni, viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun 2026, að upphæð kr. 5.665.142 á deild 04210 og að honum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun 2026 að upphæð kr. 5.665.142 á deild 04210.
Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.

9.Frá 1171. og 1172. fundi byggðaráðs frá 08.01. og 15.01.2026; Skíðafélagið -styrkur - töfrateppi; viðaukabeiðni #4.

Málsnúmer 202512066Vakta málsnúmer

Á 1172. fundi byggðaráðs þann 15. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Á 1171. fundi byggðaráðs þann 8. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
Skíðafélag Dalvíkur óskar eftir styrk um 10.000.000 kr til kaupa og uppsetningar á töfrateppi í aðstöðu félagsins í Böggvistaðafjalli. Fram kemur í erindinu að styrktaraðili að verkefninu sé fundinn og með umræddum styrk frá Dalvíkurbyggð er framkvæmdin að fullu fjármögnuð. Umræddur styrkur Dalvíkurbyggðar var samþykktur á árinu 2023, en á 1077.fundi byggðaráðs þann 24.ágúst 2023 var eftirfarandi bókað:
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að Dalvíkurbyggð er tilbúið að koma með krónu á móti hverri þeirri krónu sem Skíðafélagið safnar í styrki fyrir Töfrateppið en þó að hámarki kr. 10.000.000. Skíðafélag Dalvíkur
endurvekur hér með beiðni sína frá árinu 2023. Þá hefur verið send inn umsókn fyrir framkvæmdaleyfi og á 40.fundi skipulagsráðs þann 12.nóvember 2025 var eftirfarandi bókað:
Erindi dagsett 10.nóvember 2025 þar sem Hörður Elís Finnbogason f.h. Skíðafélags Dalvíkur sækir um framkvæmdaleyfi fyrir landmótun og uppsetningu færibands á skíðasvæðinu á Dalvík. Meðfylgjandi eru
framkvæmdalýsing og leyfi Náttúruverndarstofnunar. Skipulagsráð samþykkir erindið og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öll tilskilin gögn hafa borist. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að styrkja Skíðafélag Dalvíkur um allt að kr.
10.000.000 til kaupa á töfrateppi á árinu 2026. Íþróttafulltrúa er falið að útbúa viðaukabeiðni og leggja fyrir næsta fund byggðaráðs.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi erindi frá íþróttafulltrúa, dagsett þann 13. janúar sl., þar sem lagt er til að styrkja Skíðafélag Dalvíkur um kr. 10.000.000 til kaupa á töfrateppi í aðstöðu Skíðafélagsins í Böggvisstaðafjalli, ásamt
viðaukabeiðni þar sem lagt er til að liður 06800-9145 hækki um kr. 10.000.000.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun 2026, þannig að liður 06800-9145 hækki um kr. 10.000.000 og verði kr. 117.691.569.
Byggðaráð samþykkir jafnframt að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Til máls tók:
Freyr Antonsson.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun 2026 að upphæð kr. 10.000.000 á lið 06800-9145.
Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.

10.Frá 1172. fundi byggðaráðs þann 15.01.2026: Ný heimasíða sveitarfélagsins; a) verk- og þjónustusamningar vegna aðalvefs og aukavefa b) tilboð í mörkun Dalvíkurbyggðar og uppfærsla á byggðamerki

Málsnúmer 202509063Vakta málsnúmer

Á 1172. fundi byggðaráðs þann 15. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Friðjón Árni Sigurvinsson, upplýsingafulltrúi, kl. 14:15.
Á 385. fundi sveitarstjórnar þann 16. desember sl. var eftirfarandi bókuð:
Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdu drög að verk- og þjónustusamningum á milli Dalvíkurbyggðar og Stefnu vegna nýrrar heimasíðu, sbr. heimild í fjárhagsáætlun 2026.
Niðurstaða : Til máls tók:
Freyr Antonsson, forseti sveitarstjórnar, sem leggur fram að þessum lið sé vísað til byggðaráðs til frekari vinnslu og afgreiðslu frestað.
Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu forseta sveitarstjórnar.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdu eftirfarandi gögn:
a) Drög að verk- og þjónustusamningum á milli Dalvíkurbyggðar og Stefnu vegna nýrrar heimasíðu, sbr. heimild í
fjárhagsáætlun 2026.
b) Minnisblað með fjárhagsáætlun 2026 - Afhverju ný heimasíða.
c) Minnisblað upplýsingafulltrúa dagsett þann 13. janúar 2026.
d) Tilboð í mörkun og endurhönnun á byggðamerki Dalvíkurbyggðar.
Friðjón Árni gerði grein fyrir ofangreindu.
Niðurstaða : a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum drög að verk- og þjónustusamningum á milli Dalvíkurbyggðar og Stefnu vegna nýrrar heimasíðu.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
b) Lagt fram til kynningar.
c) Lagt fram til kynningar.
d) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum tillögu upplýsingafulltrúa að gengið verði til samninga við Kríu hönnunarstofu um mörkun Dalvíkurbyggðar. Vísað á deild 21500 og til afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók máls.

a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og samþykkir fyrirliggjandi drög að verk- og þjónustusamningi á milli Dalvíkurbyggðar og Stefnu vegna nýrrar heimasíðu.
d) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofnagreinda afgreiðslu byggðaráðs og samþykkir að gengið verði til samninga við Kríu hönnunarstofu um mörkun Dalvíkurbyggðar og uppfærslu á byggðamerki. Kostnaði vísað á deild 21500.

11.Frá 1171. fundi byggðaráðs þann 08.01.2026: Draumablá - Uppsögn á samningi vegna rekstrar tjaldsvæðis á Dalvík

Málsnúmer 202503086Vakta málsnúmer

Á 1171. fundi byggðaráðs þann 8. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Fyrir fundinum liggur uppsögn á samningi vegna rekstar tjaldsvæðis á Dalvík frá Draumablá ehf. á grundvelli 12.gr. samningsins, án fyrirvara og meintra vanefnda Dalvíkurbyggðar.
Niðurstaða : Byggðaráð staðfestir móttöku á uppsögn samningsins og leggur til að auglýst verði eftir nýjum rekstraraðila.
Samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum."
Enginn tók til máls.

a)Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum uppsögn frá Draumablá ehf., dagsett þann 31.12.2025, á samningi um rekstur og umsjón tjaldsvæðisins á Dalvík, dagsettur þann 11. júlí 2025.
b) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að auglýst verði eftir nýjum rekstraraðila.

12.Frá 1171. fundi byggðaráðs þann 08.01.2026; Úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga - sérreglur Dalvíkurbyggðar.

Málsnúmer 202512087Vakta málsnúmer

Á 1171. fundi byggðaráðs þann 8. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Með fundarboði fylgdi erindi frá Innviðaráðuneytinu, dagsett þann 18.desember 2025 þar sem gert er grein fyrir úthlutun byggðakvóta innan Dalvíkurbyggðar. Samtals er eftirfarandi til ráðstöfunar fiskveiðiárið 2025/2026:
Árskógssandur 37,358 þorskígildistonn, Dalvík 26,757 þorskígildistonn. Hauganes 15 þorskígildistonn. Þess er óskað að sveitarstjórnir sem ekki hafa fyrirhugað að senda ráðuneytinu tillögur að sérreglum sendi ráðuneytinu staðfestingu um slíkt. Í þeim tilvikum þar sem þess er óskað að leggja fram tillögur að sérreglum er sveitarstjórn gefinn kostur á að senda ráðuneytinu tillögur til 19.janúar nk.
Jafnframt fylgdu með fundarboði byggðaráðs upplýsingar um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga innan Dalvíkurbyggðar fyrir síðustu 5 fiskveiðiár.
Sveitarstjóri hefur óskað eftir fresti til þess að skila inn tillögum að sérreglum til 21.janúar nk.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum þá tillögu að sérreglur Dalvíkurbyggðar fyrir úthlutun byggðakvóta verði óbreyttar á milli ára. Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn."

Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdi útfyllt eyðublað vegna tillögu sveitarstjórnar að sérstökum skilyrðum fyrir úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026.
Til máls tók:
Freyr Antonsson, sem leggur fram eftirfarandi tillögu að bókun:

"Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar mótmælir harðlega skerðingu á úthlutun byggðakvóta til byggðalaga innan sveitarfélagsins Dalvíkurbyggðar síðastliðin tvö ár. Skerðingin nemur 221 tonni. Mest er skerðingin á Árskógssandi úr 165 tonnun í 0, Dalvík úr 65 tonnun í 24 tonn, Hauganes 15 tonn í 0

Með bréfi sveitarstjóra 5. febrúar 2025 og bréfi lögmanns Dalvíkurbyggðar 14. október 2025 var gerð alvarleg athugasemd við úthlutun byggðakvóta til sveitarfélagsins og byggðarlaga innan þess. Sérstök athugasemd var gerð við úthlutun til Árskógssands þar sem skerðingin nam 107 tonnun á síðasta ári og nú 58 tonnum en samkvæmt reglugerð nr. 818/2024 segir í E.lið 2. gr.:
Þegar reiknaður hefur verið út hlutur einstakra byggðarlaga samkvæmt A-lið hér að framan, skal hlutur byggðarlaga með færri íbúa en 400 og sem úthlutað var aflaheimildum á fiskveiðiárinu 2023/2024, og eiga rétt til úthlutunar fiskveiðiárið 2024/2025, leiðréttur þannig að ekkert þeirra lækki um meira en 15 þorskígildistonn, milli fiskveiðiáranna 2023/2024 og 2024/2025.
Samkvæmt þessu ætti Árskógssandur að fá úthlutað hið minnsta 150 tonn 2024/2025 og 135 tonnum 2025/2026


Úthlutun 2023/2024
Úthlutun 2024/2025
Úthlutun 2025/2026
Heildarúthlutun
4829
3807
3465
Árskógssandur
165
58
0
Hauganes
15
15
0
Dalvík
65
21
24
Alls
245
94
24

Svo sem rakið hefur verið mótmælir Dalvíkurbyggð harðlega þeim skerðingum á úthlutun byggðakvóta sem sveitarfélagið hefur þurft að þola undanfarin ár. Þá hafnar Dalvíkurbyggð því alfarið að nokkrar þær ástæður séu uppi sem réttlæta þá stefnubreytingu sem orðið hefur varðandi úthlutun byggðakvóta til sveitarfélagsins en ekki verður séð að sú ákvörðun byggi á skýrri lagaheimild. Þvert á móti telur Dalvíkurbyggð að ráðuneytið hafi horft framhjá því að í E.lið 2.gr. reglugerðar nr. 818/2024 kemur það sérstaklega fram aðeigi að koma til skerðingar af einhverjum þeim ástæðum sem taldar eru upp í A. lið 2. gr. reglugerðarinnar skuli sú skerðing aldrei nema meira en sem nemur 15 þorskígildistonnum á milli fiskveiðiáranna 2023/2024 og 2024/2025.
Engar skýringar hafa fengist á því hvers vegna úthlutunin var með þessum hætti og það enn ítrekað að Dalvíkurbyggð telur þann rökstuðning sem sveitarfélaginu barst frá ráðuneytinu dags. 12. ágúst 2025. hvorki fullnægjandi né efnislega í samræmi við ákvæði reglugerðarinnar. Þá virðist ráðuneytið ennfremur ekki hafa horft til þess að íbúar á Árskógssandi eru langt undir 400 sem er einmitt það viðmið sem gengið er út frá í títtnefndum E.lið 2. gr. reglugerðar nr. 818/2024 og í rökstuðningi ráðuneytisins er engin tilraun gerð til þess að útskýra hvers vegna horft er framhjá því viðmiði."


Fleiri tóku ekki til máls.

a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og þá tillögu að sérreglur Dalvíkurbyggðar fyrir úthlutun byggðakvóta verði óbreyttar á milli ára.
b)Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu sveitarfélagsins að sérreglum byggðakvóta til fiskveiðiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026 varðar byggðarlögin Árskógssand, Dalvík og Hauganes.
c) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu forseta að bókun sveitarstjórnar.

13.Frá 1171. fundi byggðaráðs þann 08.01.2026; Umsagnarbeiðni tækifærisleyfi - Umf. Þorsteinn Svörfuður vþorrablóts að Húsabakka

Málsnúmer 202601004Vakta málsnúmer

Á 1171. fundi byggðaráðs þann 8. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, dagsett þann 5.janúar sl., þar sem óskað er umsagnar vegna umsóknar um þorrablót að félagsheimilinu Rimum 31.janúar nk. Með fundarboði byggðaráðs fylgdi jákvæð umsögn slökkviliðsstjóra.
Niðurstaða : Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við að ofangreind leyfi sé veitt með fyrirvara um umsögn frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra. Samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og gerir ekki athugasemdir við að umrætt leyfi sé veitt með fyrirvara um umsögn frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra.

14.Frá 1172. fundi byggðaráðs þann 15.01.2026; Umsagnarbeiðni tækifærisleyfi - vegna þorrablóts í Árskógi

Málsnúmer 202601035Vakta málsnúmer

Á 1172. fundi byggðaráðs þann 15. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, dagsett þann 5. janúar sl., þar sem óskað er umsagnar vegna umsóknar um tækifærisleyfi frá Þorrablótsnefnd Árskógsstrandar vegna þorrablóts í Árskógi 7. febrúar nk.
Fyrir liggur jákvæð umsögn frá slökkviliðsstjóra, dagsett þann 6. janúar 2026.
Niðurstaða : Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við að ofangreint leyfi sé veitt, með fyrirvara um umsögn Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og gerir ekki athugasemdir við að ofangreint leyfi sé veitt, með fyrirvara um umsögn Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra.

15.Frá 1171. fundi byggðaráðs þann 08.01.2026; Endurskoðun húsnæðisáætlana 2026

Málsnúmer 202510025Vakta málsnúmer

Á 1171. fundi byggðaráðs þann 8. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Á 1170.fundi byggðaráðs þann 11.desember 2025 var frekari umfjöllun og afgreiðslu á húsnæðisáætlun Dalvíkurbyggðar frestað til þessa fundar.
Með fundarboði fylgdu drög að húsnæðisáætlun og eiga sveitarstjórnir að vera búnir að staðfesta endurskoðun á þeim fyrir 20.janúar nk., áður þarf það senda hana til yfirferðar til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi húsnæðisáætlun og vísar henni til sveitarstjórnar til umfjöllunar og afgreiðslu."

Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdi staðfesting á því að búið er að fá yfirferð HMS á húsnæðisáætlunni.
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum meðfylgjandi húsnæðisáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2026 eins og hún liggur fyrir.

16.Frá 42. fundi skipulagsráðs þann 14.01.2026; Nýtt íbúðasvæði við Böggvisbraut - breyting á aðalskipulagi

Málsnúmer 202410032Vakta málsnúmer

Á 42. fundi skipulagsráðs þann 14. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Auglýsingu tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna íbúðabyggðar vestan Böggvisbrautar lauk þann 12.janúar sl.
Engar athugasemdir bárust.
Umsagnir bárust frá Norðurorku, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, Minjastofnun Íslands, Rarik, Vegagerðinni og Náttúruverndarstofnun.
Niðurstaða : Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020, skv. 1.mgr. 32.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu skipulagsráðs og framlagða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020, skv. 1.mgr. 32.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

17.Frá 42. fundi skipulagsráðs þann 14.01.2026; Böggvisbraut - nýtt deiliskipulag

Málsnúmer 202302121Vakta málsnúmer

Á 42. fundi skipulagsráðs þann 14. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Auglýsingu tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir íbúðabyggð vestan Böggvisbrautar lauk þann 12.janúar sl.
Engar athugasemdir bárust.
Umsagnir bárust frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, Mílu, Minjastofnun Íslands, Vegagerðinni og Rarik.
Niðurstaða : Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að deiliskipulagi íbúðarbyggðar vestan Böggvisbrautar skv. 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeirri breytingu eftir auglýsingu að götuheitum verði bætt inn á skipulagsuppdrátt.
Skipulagsráð samþykkir að götur innan skipulagssvæðisins fái heitin Karlsrauðatorg, Ægisgata og Garðastígur.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu skipulagsráðs og framlagða tillögu að deiliskipulagi íbúðarbyggðar vestan Böggvisbrautar skv. 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeirri breytingu eftir auglýsingu að götuheitum verði bætt inn á skipulagsuppdrátt.

18.Frá 42. fundi skipulagsráðs þann 14.01.2026; Selárland - breyting á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar

Málsnúmer 202503039Vakta málsnúmer

Á 42. fundi skipulagsráðs þann 14. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Lögð fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020, unnin af Teikna - teiknistofu arkitekta, vegna áforma um uppbyggingu afþreyingar- og ferðamannasvæðis í landi Selár við Hauganes.
Kynningu á tillögu á vinnslustigi lauk þann 23.júlí sl. og bárust engar athugasemdir.
Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 6.júní sl.
Niðurstaða : Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 og að tillagan verði auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu skipulagsráðs og framlagða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 og að tillagan verði auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

19.Frá 42. fundi skipulagsráðs þann 14.01.2026; Selárland - nýtt deiliskipulag fyrir ferðaþjónustu og frístundabyggð

Málsnúmer 202503040Vakta málsnúmer

Á 42. fundi skipulagsráðs þann 14. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir ferðamanna- og þjónustusvæði í Selárlandi við Hauganes, unnin af teiknistofunni NordicArch.
Kynningu á tillögu á vinnslustigi lauk þann 23.júlí sl. og bárust engar athugasemdir.
Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 6.júní sl.
Niðurstaða : Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að deiliskipulagi með þeim breytingum
sem ræddar voru á fundinum og að tillagan verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samhliða auglýsingu aðalskipulagsbreytingar.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu skipulagsráðs og framlagða tillögu að deiliskipulagi með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum og að tillagan verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samhliða auglýsingu aðalskipulagsbreytingar.

20.Frá 42. fundi skipulagsráðs þann 14.01.2026; Deiliskipulag Hauganess - breyting á skipulagsmörkum

Málsnúmer 202509051Vakta málsnúmer

Á 42. fundi skipulagsráðs þann 14. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Lögð fram tillaga að breyttri afmörkun deiliskipulags fyrir Hauganes í tengslum við nýtt deiliskipulag fyrir ferðaþjónustu- og frístundabyggð við Sandvík.
Niðurstaða : Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hauganess og að tillagan verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samhliða auglýsingu aðalskipulagsbreytingar og deiliskipulagstillögu fyrir ferðaþjónustu og frístundabyggð við Sandvík.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu skipulagsráðs og framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hauganess og að tillagan verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samhliða auglýsingu aðalskipulagsbreytingar og deiliskipulagstillögu fyrir ferðaþjónustu og frístundabyggð við Sandvík.

21.Frá 42. fundi skipulagsráðs þann 14.01.2026; Bekkur Jóhanns Svarfdælings - færsla á Ráðhúslóð

Málsnúmer 202407048Vakta málsnúmer

Á 42. fundi skipulagsráðs þann 14. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Lögð fram til kynningar bókun menningarráðs frá 11.desember sl. varðandi staðsetningu á bekk Jóhanns Svarfdælings.
Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 10.desember sl. og var afgreiðslu frestað þar sem umsögn menningarráðs lá ekki fyrir.
Niðurstaða : Skipulagsráð samþykkir að minnismerkinu verði fundinn nýr staður þegar nýtt byggðasafn hefur risið.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu skipulagsráðs um að minnismerkinu um Jóhann Svarfdæling verði fundinn nýr staður þegar nýtt byggðasafn hefur risið.

22.Frá 42. fundi skipulagsráðs þann 14.01.2026; Íslandsmeistaramót í snocrossi 2026

Málsnúmer 202601048Vakta málsnúmer

Á 42. fundi skipulagsráðs þann 14. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Erindi dagsett 9.janúar 2026 þar sem Freyr Antonsson f.h. Miðgarðs akstursíþróttafélags og MSÍ sækir um leyfi til að halda Íslandsmeistaramót í snocrossi á Dalvík þann 31.janúar nk.
Fyrirhuguð staðsetning er svæði fyrir neðan Brekkusel en til vara er sótt um svæði norðan við Samherja.
Meðfylgjandi eru greinargerð og afstöðumyndir.
Niðurstaða : Skipulagsráð samþykkir erindið með fyrirvara um jákvæða umsögn slökkviliðs Dalvíkurbyggðar, hafnarstjóra og lóðarhafa á svæðinu auk leyfis lögreglustjórans á Norðurlandi eystra.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."

Fyrir liggja eftirfarandi umsagnir:
Umsögn sveitarstjóra/hafnastjóra fyrir hönd Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar, dagsett þann 15. janúar 2026, þar sem gerð er ein athugasemd við fyrirhugaða lokun á Austurgarði. Fram kemur að hafa þarf lokunina aðeins norðar en merkt er inn á meðfylgjandi teikningu. Tryggja þarf að masturshús lokist ekki inni svo hægt sé að sinna löndun ef þess þarf.
Umsögn Slökkviliðsstjóra Dalvíkurbyggðar, dagsett þann 19. janúar sl. Engar athugasemdir.

Til máls tók:
Freyr Antonsson, sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu við umfjöllun og afgreiðslu og vék af fundi kl. 16:39.

1. varaforseti, Monika Margrét Stefánsdóttir, tók við fundarstjórn.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum ofangreinda umsókn og veitir leyfi til að halda Íslandsmeistaramót í Snocrossi á Dalvík 31. janúar nk. með breytingum á fyrirhugaðri lokun á Austurgarði í samræmi við ábendingu hafnastjóra og með fyrirvara um leyfi Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra.
Freyr Antonsson tekur ekki þátt í umfjöllun og afgreiðslu vegna vanhæfis.

Freyr Antonsson kom inn á fundinn að nýju kl. 16:41 og tók við fundarstjórn.

Fundi slitið - kl. 17:03.

Nefndarmenn
  • Freyr Antonsson aðalmaður
  • Sigríður Jódís Gunnarsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Júlíus Magnússon varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Katrín Sif Ingvarsdóttir aðalmaður
  • Helgi Einarsson aðalmaður
  • Gunnar Kristinn Guðmundsson aðalmaður
  • Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
  • Kristinn Bogi Antonsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs