Á 386. fundi sveitarstjórnar þann 20.janúar sl. var m.a. eftirfarandi bókað:
"a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og þá tillögu að sérreglur Dalvíkurbyggðar fyrir úthlutun byggðakvóta verði óbreyttar á milli ára.
b)Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu sveitarfélagsins að sérreglum byggðakvóta til fiskveiðiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026 varðar byggðarlögin Árskógssand, Dalvík og Hauganes.
c) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu forseta að bókun sveitarstjórnar."
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi erindi frá Innviðaráðuneytinu, dagsett þann 16. febrúar sl., þar sem fram kemur að ráðuneytið hefur samþykkt framlagða tillögu sveitarstjórnar að sérstökum skilyrðum vegna úthlutnar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2025/2026. Auglýsing um sérreglur verður send Stjórnartíðindum til birtingar og að því loknu verður Fiskistofu falið að auglýsa byggðakvóta til umsóknar í samræmi við gildandi reglur og staðfestar sérreglur.
Einnig fylgdi með fundarboði byggðaráðs rafpóstur ráðuneytisins frá 21. janúar sl., þar sem staðfest er móttaka á mótmælum sveitarfélagsins, sbr. c. liður hér að ofan frá fundi sveitarstjórnar þann 20.1.2026.