Umsagnarbeiðni tækifærisleyfi - Umf. Þorsteinn Svörfuður vþorrablóts að Húsabakka

Málsnúmer 202601004

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1171. fundur - 08.01.2026

Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, dagsett þann 5.janúar sl., þar sem óskað er umsagnar vegna umsóknar um þorrablót að félagsheimilinu Rimum 31.janúar nk. Með fundarboði byggðaráðs fylgdi jákvæð umsögn slökkviliðsstjóra.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við að ofangreind leyfi sé veitt með fyrirvara um umsögn frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra. Samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum.

Sveitarstjórn - 386. fundur - 20.01.2026

Á 1171. fundi byggðaráðs þann 8. janúar sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, dagsett þann 5.janúar sl., þar sem óskað er umsagnar vegna umsóknar um þorrablót að félagsheimilinu Rimum 31.janúar nk. Með fundarboði byggðaráðs fylgdi jákvæð umsögn slökkviliðsstjóra.
Niðurstaða : Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við að ofangreind leyfi sé veitt með fyrirvara um umsögn frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra. Samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og gerir ekki athugasemdir við að umrætt leyfi sé veitt með fyrirvara um umsögn frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra.